Fréttablaðið - 22.12.2012, Page 73
| ATVINNA |
Deiliskipulag hafnarsvæðis á Patreksfirði
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjar-
stjórn Vesturbyggðar á fundi þann 16. maí 2012 að auglýsa
tillögu að deiliskipulagi af hafnarsvæðinu á Patreksfirði.
Deiliskipulagið afmarkast af neðri húsum við Urðagötu og
Mýrum að norðan, Aðalstrætis að austan og sjó að vestan og
sunnan. Tillagan var til sýnis á bæjarskrifstofunni að Aðal-
stræti 63 og á heimasíðu Vesturbyggðar, www.vesturbyggd.
is frá og með þriðjudeginum 12. júní til og með 31. júlí 2012.
Athugasemdir bárust og hafa umsagnir bæjastjórnar um
þær verið sendar þeim sem þær gerðu. Eftirfarandi breyting-
ar voru gerðar á tillögunni til samræmis við athugsemdir.
Aðkoma er sýnd frá Þórsgötu að Aðalstræti 7. og gerð grein
fyrir henni í greinargerð. Teknir voru út byggingarreitir fyrir
bílskúra við Aðalstræti vegna garðveggs við Aðalstræti 5-9
sem eru settir undir hverfisvernd. Byggingarreitur Odda hf. var
stækkaður. Byggingarreitur við Vatnskrók 1. og 2. er felldur út.
Gerð var grein fyrir hverfisvernd á hafnarsvæðinu í samræmi
við húsakönnun sem lauk á árinu 2012. Stækkun lóðar og
byggingarreits á iðnaðarlóð við Oddagötu og við núverandi
Vöru-afgreiðslu. Bæjarstjórn samþykkti deiliskipulagið á fundi
sínum þann 21. nóvember sl. og hefur skipulagið verið sent
Skipulagsstofnun til yfirferðar. Hverjum þeim sem telur rétti
sínum hallað með samþykkt þessari er heimilt að skjóta máli
sínu til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr.
52.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kærufrestur er einn mánuður
frá birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsins í B-
deild Stjórnartíðinda.
Bæjarstjórn samþykkt á fundi sínum þann 10. desember
síðastliðinn að auglýsa eftirfarandi skipulagslýsingu,
aðalskipulagsbreytingu og ný deiliskipulög. Vestur-
byggð óskar hér með eftir athugasemdum við lýsinguna
og skipulagstillögurnar sem eru:
Lýsing á skipulagsverkefni
Skv. 40. grein skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst
lýsing á skipulagsverkefni fyrir deiliskipulag Látrabjargs.
Fyrirhugað deiliskipulagssvæði nær yfir land þriggja jarða,
Hvallátra, Breiðavíkur og Keflavíkur. Stærð svæðisins er í allt
um 9.000 km2.
Skipulagslýsingin mun liggja frammi á skrifstofu Vesturbyggð-
ar Aðalstræti 75, Patreksfirði og á heimasíðu sveitarfélagsins
www.vesturbyggd.is á meðan unnið er að skipulaginu.
Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu Vesturbyggðar
Aðalstræti 63. eða á netfangið armann@vesturbyggd.is merkt
„skipulagsmál í Vesturbyggð“ fyrir 13. janúar 2013.
Eftir kynningu á skipulagslýsingunni verður fjallað um
deiliskipulagið og það kynnt samkvæmt skipulagslögum
nr. 123/2010.
Breyting á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018
Skv. 31. gr. laga nr. 123/2010 og 7 gr. laga nr.105/2006 er
auglýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingu á aðal-
skipulagi Vesturbyggðar 2006-2018 vegna laxeldis, urðunar,
landnotkunar í fjallshlíðum þéttbýla, iðnaðarsvæðis á
Bíldudal, Aðalstrætis 100 og nágrenni.
Skipulagstillögunni fylgir umhverfisskýrsla.
Skv. 41. gr. laga nr. 123/2010 er auglýst eftir athugasemd-
um við eftirfarandi deiliskipulagstillögur:
Sumarhúsabyggð í Dufansdal Efra land II. Uppdráttur með
greinargerð.
Kirkjuhvammur á Rauðasandi. Uppdráttur og greinargerð.
Urðunarstaður í Vatneyrarhlíðum. Skv. 41. gr. laga
nr. 123/2010 og 7. gr. laga nr. 105/2006
Uppdráttur með greinargerð og umhverfisskýrslu.
Hlaðseyri og nágrenni. Fóðurstöð fyrir Laxeldi. Uppdráttur
með greinargerð.
Aðalstræti 100 og nágrenni. Hótel og ofanflóðavarnir.
Uppdráttur með greinargerð.
Einnig samþykkt bæjarstjórn Vesturbyggðar þann
19. september 2012. að auglýsa: Deiliskipulag vegna
frístundabyggðar í Vesturbotni í Patreksfirði skv. 41 gr.
laga nr. 123/2010.
Skipulagsuppdrættir, umhverfisskýrslur og greinargerðir liggja
frammi á skrifstofu Vesturbyggðar Aðalstræti 75, Patreksfirði
og/eða hjá Skipulagsstofnun Laugavegi 166, Reykjavík frá
1. janúar 2013 til 26. febrúar 2013. Ennfremur verða gögnin
aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.vesturbyggd.is.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 26 febrúar 2013.
Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu Vesturbyggðar
Aðalstræti 63 eða á netfangið armann@vesturbyggd.is merkt
„skipulagsmál í Vesturbyggð “. Þeir sem ekki gera athugasemd-
ir innan tilskilins frests teljast samþykkir tillögunni.
Ármann Halldórsson byggingarfulltrúi.
Skipulagsmál í
Vesturbyggð Auglýsing um skipulags-
mál í Grindavík
1. Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér
kynnt tillaga að breytingu á aðalskipulagi Grindavíkur
bæjar 2010-2030 vegna fráveitu frá Svartsengi í
Grindavík, ásamt umhverfisskýrslu.
Leggja þarf affallslögn og þjónustuveg frá niðurdælingarsvæði
vestan við Þorbjörn og til sjávar, vestan Grindavíkur. Lögnin
mun flytja affallsvökva frá niðurdælingarveitu Svartsengis-
virkjunar til útrásar í Arfadalsvík.
2. Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér
kynnt tillaga að breytingu á aðalskipulagi Grindavíkur
bæjar 2010-2030 vegna miðbæjar, ásamt umhverfis
skýrslu.
Tilgangur breytingarinnar er að skapa betri umgjörð um lifandi
miðbæ í Grindavík með blandaðri starfsemi; verslun, þjónustu
og íbúðum. Lögð er áhersla á að uppbygging falli vel að því
byggðamynstri sem fyrir er. Breytingin gerir ráð fyrir breyttu
umferðarskipulagi.
3. Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér
kynnt tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar-
kjarna í Grindavík, ásamt umhverfisskýrslu.
Megininntak deiliskipulagstillögunnar er að skapa umgjörð um
lifandi miðbæ í Grindavík með blandaðri starfsemi; verslun,
þjónusta og íbúðir. Lögð er áhersla að uppbygging falli vel að
því byggðamynstri sem fyrir er. Einnig er lögð áhersla á að
auka umferðaröryggi í miðbænum, draga úr umferðarhraða
og gera gangandi og hjólandi vegfarendum hærra undir
höfði. Gerðar eru breytingar á gatnamótum Víkurbrautar og
Ránargötu þannig að umferðinni sé beint niður að höfn.
4. Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér
kynnt tillaga að deiliskipulagi fyrir íþróttasvæðið í
Grindavík.
Deiliskipulagið nær til íþróttasvæðis Grindavíkurbæjar og er
unnið með það að leiðarljósi að bæta aðstöðu til íþróttaiðku-
nar í bænum. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir nýjum mann-
virkjum á svæðinu s.s. íþróttamiðstöð, aðkomutorgi og fjölgun
bílastæða.
Tillögurnar liggja frammi á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar
að Víkurbraut 62 í Grindavík, virka daga kl. 9:30 - 15:00, frá 22.
desember 2012 til og með 2. febrúar 2013. Einnig má nálgast
skipulagstillögurnar ásamt umhverfisskýrslum á heimasíðu
Grindavíkurbæjar, www.grindavik.is.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að
kynna sér tillögurnar ásamt umhverfisskýrslum. Ábendin-
gum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega til
forstöðumanns Tæknideildar Grindavíkurbæjar eigi síðar en 2.
febrúar 2013. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillöguna.
Grindavík, 22. desember 2012.
Ingvar Þ. Gunnlaugsson,
sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Háholt 14, Mosfellsbær
Sími: 588 5530 • berg@berg.is
www.berg.is
Fax: 588 5540
Pétur Pétursson lögg. fasteignasali
Petur@berg.is
Húsafell
fjárfestingartækifæri
Til sölu fimm sumarhúsalóðir í þyrpingu. Verð kr. 2.500.000.-
Upplýsingar hjá Berg fasteignasölu S: 588-5530 eða berg@berg.is
Auglýsing um skipulag - Hörgársveit
Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga auglýsist hér með tillaga
að deiliskipulagi jarðarinnar Skúta ásamt spildu úr jörðinni
Moldhaugum, ásamt umhverfisskýrslu. Í tillögunni er gert ráð
fyrir efnistökusvæði, iðnaðarsvæði o.fl. Gert er ráð fyrir aðkomu
að svæðinu frá Hringvegi.
Gerð er grein fyrir tillögunni á skipulagsuppdrætti í
mælikvarðanum 1:10.000.
Tillagan, ásamt umhverfisskýrslu, verður til sýnis á skrifstofu
Hörgársveitar, Þelamerkurskóla, frá 28. nóvember 2012 til 25.
janúar 2013. Einnig má sjá tillöguna, ásamt umhverfisskýrslu, á
heimasíðu sveitarfélagsins, www.horgarsveit.is. Athugasemdir
skulu hafa borist skriflega til skrifstofu Hörgársveitar eigi síðar
en kl. 15:00 föstudaginn 25. janúar 2013. Þeir sem ekki gera
athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.
26. nóvember 2012
Sveitarstjórinn í Hörgársveit
Tilkynningar
Fasteignir
Nú er Létt Bylgjan jólastöðin þín
Ljúf og þægileg jólatónlist
alla daga til jóla
LAUGARDAGUR 22. desember 2012 13