Fréttablaðið - 22.12.2012, Side 86

Fréttablaðið - 22.12.2012, Side 86
22. desember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 62 1. Tvö orð og bæði vitlaust stafsett. Og send í vitlaust númer. Það hlýtur að vera. Um stund stari ég á skjáinn. Hvað á þetta að þýða? Tækni er sannarlega undur. Hún auðgar líf okkar, eykur sam- skiptamöguleika og minnkar um- heiminn. Hún hlýðir skapara sínum, gerir það sem við segjum henni að gera. Mér finnst ég hafa lesið þetta einhvers staðar. Ég fletti til baka og skoða aftur númerið í símanum. Ég kannast ekkert við það. Sumt fólk skiptir reyndar annað slagið um númer og SIM-kort. Er Sigurbjörg að stríða mér? Nei, það væri á skjön við stöðuna. 2. DAUÐI EUFEMÍUBakgarðurinn minn í Live Oak – Bexarhéraði í Texas– er ekki nema svolítil spilda, rétt nægilega stór til að rúma sígrænu eikina, runnarjóður, sólbaðsbekkinn og dóttur mína sem leikur sér að garðúðanum. Hitinn er kæfandi og ég andvarpa reglulega þar sem ég ligg í skugga trésins. Stundum skvettist á mig vatns- buna og ég hasta á Jackie sem er í lillabláum sundbol og lætur eins og garðúðinn sé foss eða gosbrunnur eða öfug sturta. Hún sparkar upp viðkvæmum jarðveginum, spyrnir í hann og beinir úðanum of lengi í sömu átt þannig að myndast drullupollar. Fótleggirnir á henni eru langir og grannir en búkurinn stuttur og hún minnir mig stundum á engi- sprettu. 3. Hinn fyrsti dagurHinn fyrsti dagur dregur annað augað í pung og hvíta sæng yfir höfuð eins og svefnpurka sem vill kúra áfram. En það er kviknuð hreyfing, glænýir hjólbarðar fylla með fljótaskrift auða örk hlíðarinnar sem kennd er við öskju; svolítil hæð sem ísaldarjökullinn hefur farið um höndum fyrir tíu þúsund árum og skilið eftir grettistökin á víð og dreif um holtið. Löngu seinna þegar þorp reis á eyrinni við sjóinn varð Öskjuhlíðin sjálfskipað útivistar- svæði íbúanna og landsbyggðarfólk sló niður tjöldum á hæðarkollinum þegar það kom um langan veg til bæjarins. 4. 1777Barnsmorð í Kollafirði Á jólaföstu gisti vinnumaður af Kjalarnesi, að nafni Bjarni Jónsson, á Hóli í Kollafirði með son sinn fimm vetra. Hélt hann brott að morgni og bar barnið í poka. Litlu síðar kom maður frá Hóli að honum með barnið andvana í fjárhúsum, ekki langt frá bæ. Sannaðist síðar að hann hafði kyrkt drenginn í pokaopinu og var hann dæmdur fyrir morð, klipinn með glóandi töngum, öðrum brot- legum mönnum til ótta og ögunar, og að því loknu tekinn af lífi. Bjarni bar því við, í votta viðurvist, að drengurinn hefði verið haldinn illum anda eða af hinu illa. 5. – Hefurðu komið til Feneyja?– Aldrei. En þú? – Ekki ég heldur, en hefði ekki á móti því að fara þangað, stíga niður í gondól og bregða mér á leik um síkin. Ég er viss um að þau eru eins og völundarhús. – Hvað veist þú um síki? – Eitt og annað. Ég hef komið til Amsterdam. – Það er ekki það sama. – Auðvitað ekki. En þú spurðir. Eigum við að skreppa? – Til Feneyja? – Já. – Ég veit ekki … langar ekki. – Að heyra í þér! Láttu ekki svona … þú hefðir gott af að … hrista upp í þér. Feneyjar, það er rómantík! Ertu kannski ekkert fyrir rómantík? 6. SvartidauðiÞað var bankað á herbergis- hurðina. Ég leit upp. Mamma opnaði dyrnar. Hún var mæðuleg á svip – Komdu og talaðu við mig, Jón. Hún var ekki reið. Ég hafði ekki gert neitt af mér. Ég var meira að segja búinn að vera óvenju rólegur. Ég heyrði alltaf á tóninum í rödd hennar þegar hún vissi upp á mig ein- hverja sök, eins og þegar hún fann sígarettur í vösunum mínum. Þá var málrómur hennar þurr og hvass. En í þetta sinn var hún greinilega ekki reið. Hún var næstum því vinsamleg. Hún var augljóslega með einhverjar fréttir. 7. Í UPPHAFI SKAL ENDINN SKOÐA Viltu ekki fara frá þessum manni? Setningin skellur á hlustunum; hún heyrir hvað amma segir en hverju á hún að svara? Jú? Nei. Hún getur ekkert sagt. Bara horft í gaupnir sér eins og þegar hún var lítil og hafði gert eitthvað ógurlegt af sér. Ég skil bara ekki hvernig þér datt í hug að giftast honum. Ég skil ekki einu sinni hvernig þú getur kysst hann, hvað þá meir, segir amma og horfir sorgmædd á dótturdóttur sína sem situr andspænis henni. Álút með svartan hárflóka ofan í augun sem ljómuðu þegar hún var barn en eru ekki einu sinni brún lengur heldur sokkin ofan í doða, grá slikja liggur yfir þeim og húðin er líka gráleit, á vöngunum og undir hökunni grillir í bólur. 8. Fæðingin er blóðug og kvala-full. Svo mælti Júrovskí. Já, leyfið mér, félagar, að segja ykkur aðeins frá Jakob Júrovskí. Það getur ekki talist útúrdúr. Hann kom aftur hingað til Sverdlovsk haustið ’34, fyrir fimm árum, breyttur maður. Margmáll hafði hann aldrei verið en nú togaðist varla upp úr honum orð. Jafnvel meðal kunningjanna hélt hann sig til hlés. Og þagði. Og ekki horfði hann lengur á okkur með þessum stingandi svörtu augum sem áður fyrr skutu fólki oft illyrmislega skelk í bringu. Í margmenni hengdi hann haus eins og sakamaður − þannig hegða sér að vísu margir íbúar þessarar borgar, alltof margir, en þetta var sjálfur Júrovskí, fjandinn hafi það! Og með hátterni sínu eyði- lagði hann móralinn hjá mörgum. 9. 1. Blóð lagar1. apríl 2008, kl. 22.25 Ég gæti í sjálfu sér stokkið fram á við, frekar en lóðbeint niður. Þannig gæti ég slegið höfðinu utan í eitthvert af handriðunum á móti– gatan er það þröng. Höfuðmeiðsl væru áhugaverð, jafnvel nauðsynleg í þessu tilviki, en aðferðin er vafasöm. Hér er mjög auðvelt að misreikna sig. Ef kraftur- inn er of mikill gæti ég lent öfugum megin við ókunnugt handrið og varla grætt nema brotna mjöðm. Það væri alls ekki nóg. Auk þess þætti mér niðurlægjandi að brölta á fætur innan um rykuga sólstóla eða þurfa að fá einhvern til að tosa mig á fætur. Ég finn það mjög skýrt, ég þarf meira. 10. Svört húsin standa þétt, líkt og þau séu að hnappa sig saman gegn hafáttinni. Grasflatirnar í kring, sem voru þökulagðar í fyrra, eru gular. Sjórinn grár svo langt sem augað eygir. Niðri á sjávarbakkanum er kaffihúsið. Á sumrin eru þar stólar fyrir utan, en nú er allt lokað, og enn langt í ferðamannatímann. Ég bý í einu af svörtu húsunum. Stundum gengur illa að fá nægilegan hita á ofnana. Ég sit við gluggann með ritvélina (vil alls ekki nota tölvu við að skrifa) og hamra á hana, en lít öðru hverju út á sjóinn. Stundum sé ég bát, og þá merki ég með blýanti á blað sem liggur við hliðina á ritvélinni. Þekkir þú handbragðið? 1. Árni Þórarinsson: Ár kattarins ● 2. Kristín Eiríksdóttir: Hvítfeld. ● 3. Pétur Gunnarsson: Íslendingablokk. ● 4. Stefán Máni: Húsið ● 5. Álfrún Gunnlaugsdóttir: Siglingin um síkin. ● 6. Jón Gnarr: Sjóræninginn. ● 7. Auður Jónsdóttir: Ósjálfrátt. ● 8. Sigurjón Magnússon: Endimörk heimsins. ● 9. Sigurbjörg Þrastardóttir. Stekk. ● 10. Gyrðir Elíasson: Suðurglugginn. Svör Fjölmargar skáldsögur koma út þessi jólin. Fréttablaðið tók saman upphaf tíu þeirra svo lesendur gætu spreytt sig á fimi sinni við það að þekkja stílbragð íslenskra rithöfunda.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.