Fréttablaðið - 22.12.2012, Qupperneq 96
22. desember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 72
KROSSGÁTA
LÁRÉTT
1. Ó og á! Þetta eru seinkanir Odds (11)
6. Gyðjanna æðsti prestur
er skrautlegur fugl (8)
10. Forréttindapakk vill sjá alsælupillu (5)
11. Dálkur fellir horaða (10)
13. Stýri dragi menn (4)
14. Um bætningar og annað er
til framfara horfir (11)
15. Arabískur gæðingur í Danaveldi (10)
16. Taugar tilstands liggja til æðanna (7)
17. Hvar sem þessi kona kom
flæddi vín um allt (8)
19. Hér stendur hinn staki staur (5)
20. Ef ég nú eignaðist nafnlausan aflann (7)
23. Um strimil og stafkarl (9)
25. Ræktun og skógur, hér er
aukaafurð þess (9)
27. Veröld víkjum og teljum til (9)
28. Sá í móðurkviði fléttaði og geystist (6)
31. Strákarnir hafa starfað í hálfa öld (12)
32. Sleðaferð, og þau renna í stofu (8)
33. Teiknaði línurit í kirkjugarðinn (11)
37. En tónaleiga er vissulega rugl (11)
38. Gangs gripkló gefur skiptipinna (8)
39. Gotar fíla ruglaða tilveru
á togveiðum (9)
40. Góna alltaf á það órólegra (6)
41. Heilablóðfallstal kostar átök (8)
LÓÐRÉTT
1. Huslaði hryssu við þessa götu (9)
2. Til fitu fædd og smurð (9)
3. Húsbóndi Tobba í kvenmannsdressinu (9)
4. Sjá ekki eftir aðhaldi í fjórðu víddinni (12)
5. Benduskógur á Barðaströnd býður
veglúnum ból og beina (11)
6. Leita að litlaskatti gegn sólarhringsgjaldi (8)
7. Skýtur og skýst með (7)
8. Kjánatímabil og bjargbúahlaup
um götu í Hafnarfirði (9)
9. Spyrji til stíu sem hann lokar af (9)
12. Dópa tilneyddur, hvað sem það kostar (9)
18. Fíflunarflautakoll er auðvelt að blekkja (13)
19. Hagræddi sannleikanum og fékk þig til að trúa (9)
21. Bíð þess endalaust að sól festist í hádegisstað (12)
22. Finn rist sjóræningja meðal
Suðurnesjamanna (12)
24. Svifsjór stundar stigamennsku í háloftunum? (7)
26. Úfin brún og úldin hús matar (6)
27. Sverja sjóðandi (5)
29. Varpa þyrli til svelgja (8)
30. Hinir sneyptu liðsmenn
Safamýrarliðsins töpuðu (8)
34. Argar, ringlaðar og hálfhræddar (5)
35. Þessi keisari kláraði Kólóseum (5)
36. Nö, sæki gullin krydd (5)
38. Gýs einfaldlega hálftóni ofar en G (3)
VEGLEG VERÐLAUN
LAUSNARORÐ
Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtist nokkuð sem eflaust
er mikið notað þessa dagana. Sendið lausnarorðið í síðasta lagi 26. desember
næstkomandi á krossgata@frettabladid.is merkt „22. desember“.
Vikulega er dregið er úr inn-
sendum lausnarorðum og fær
vinningshafi eintak af bókinni
Íslenskir kóngar frá Forlaginu.
Vinningshafi síðustu viku var
Anna Hermannsdóttir,
Akureyri.
Lausnarorð síðustu viku var
V E L F E R Ð A R R Í K I
1 2 3 4 5 6 7 8 9
10 11 12
13
14
15
16
17 18 19
20 21 22
23 24
25
26 27
28 29 30
31
32
33 34 35 36
37
38
39
40 41
H U N D S L A P P A D R Í F A F E I L
E E T F Y U V F I E
L A G K Ö K U L L I L L F Y G L I
S R N R I S Í B Ú Ð A N R
T J A L D I Ð U Ú G A B
E K U A S P I L A M E N N S K A
F L O T G A L L A N K T K Ð
N S A Á L Ö N G U H A U S A R
A F S P R E N G I R M T U
Y R I N F L R T M
Ö R V E R A S N Y R T I F R Æ Ð I N G
I S S O L Ð N E
Ó R É T T M Æ T A S K J Ó L U N N A R
F A T F T A S Ð
H Ó L S F J A L L A H A N G I K J Ö T
L T B M Ö Á O L Á
K E E R K I P R E S T U R K K
E I N F Æ R A K K T T R Æ Ð A
N N F U G L S U N G U M R F
S U M A R I Ð A R Ð Á S A K I
Kaffipúðarnir passa í venjulegar skeiðar Senseo vélanna
E
M
M
E
N
N
E
E
N
N
E
/
S
ÍA
/
N
M
5
5
7
9
2
NÝTT
MEIRI FYLLING
& MEIRImunaður
UPPGÖTVAÐU NÝJAN BRAGÐHEIM SENSEO
„Kaffipúðarnir
passa í allar
tvöfaldar skeiðar
sem fylgja með
Senseo vélum“
Um nær alla Afríku, á Arabíuskaganum og allt austur til Indlands þrífst
hugdjarfasti slagsmálahundur heims. Hann er reyndar ekki hundur, heldur
svonefndur hunangsgreifingi– sem er ekki heldur mjög lýsandi nafn, því að
hunangsgreifinginn á öllu meira sameiginlegt með hreysiköttum en öðrum
greifingjum.
Þetta er ekki stórt dýr, á bilinu 55 til 75 sentímetrar auk rófu og jafnan ekki
meira en 10 til 15 kíló, sem gerir háttalag þess þeim mun magnaðra. Hunangs-
greifinginn er nefnilega þekktur sem einhver óbangnasti íbúi dýraríkisins.
Hann er þekktur fyrir að ráðast á nánast hvaða dýr eygi hann enga undan-
komuleið og stekkur jafnvel risavöxnum rándýrum á borð við ljón á flótta.
Hunangsgreifingjar eru sólgnir í hunang eins og nafnið ber með sér en éta
þó nánast allt sem að kjafti kemur; skordýr, froska, skjaldbökur, lítil nagdýr,
eðlur, egg, fugla og ávexti. Þeir hafast við í holum sem þeir grafa sjálfir með
stórum og sterkum klóm. Þeir geta grafið tvo metra niður í þéttan jarðveg á
aðeins tíu mínútum. Ef hross, nautgripur eða vísundur álpast of nálægt holu
hunangsgreifingja bregst hann undantekningarlítið ókvæða við og ræðst á
stórgripinn.
Margir mundu eflaust kalla þetta fífldirfsku af ekki voldugra dýri, en raunin
er sú að það er erfitt fyrir bæði dýr og menn að ráða niðurlögum hunangs-
greifingja vegna þess hversu ógnarþykkt skinnið á þeim er. Það er auk þess
óvenjulega laust utan á þeim, sem gerir þeim kleift að berjast um og snúa sig
út úr flestum klípum.
Sums staðar eru hunangsgreifingjar hálfgerð plága, enda finnst þeim gott
að éta alifugla. Það er hins vegar erfitt að fækka þeim að nokkru ráði því að
eggvopn bíta varla á þá, það þarf mörg sveðjuhögg til að komast í gegnum
skinnið, og hundar hafa ekki roð við þeim. Eina leiðin til að drepa þá fljótt og
örugglega er að berja þá af alefli beint í hnakkann eða skjóta þá hreinlega í
hausinn.
Þrátt fyrir allt þetta eru hunangsgreifingjarnir bráðgáfaðar skepnur og
meðal sárafárra dýrategunda sem vitað er að noti „verkfæri“ til að liðka um
fyrir sér. Þannig hafa menn orðið vitni að því þegar þeir rúlla trjádrumbum frá
einum stað til annars og tylla sér svo á þá til að teygja sig í mat.
Óttalaus og bráðgáfaður
slagsmálahundur
DÝR VIKUNNAR
HUNANGSGREIFINGI
ÞJÓÐSAGNAKENNT KVIKINDI Á öldum áður gengu sögur um að hunangs-
greifingjar ætu mannfólk og græfu jafnvel lík upp úr kirkjugörðum.