Fréttablaðið - 22.12.2012, Blaðsíða 132
22. desember 2012 LAUGARDAGUR| SPORT |
HANDBOLTI „Ég er ánægður með að fá að spila
og fá meira hlutverk. Það er mjög leiðinlegt
að Alex er meiddur og getur ekki verið með.
Þannig er bara boltinn og skiljanlegt á ári sem
þessu þegar það eru þrjú stórmót á þrettán
mánuðum að einhver detti út. Þá þurfa aðrir
að stíga upp og skila sínum hlutverkum,“ segir
Ásgeir Örn, sem er á leið á sitt tíunda stórmót
með landsliðinu. Mikil umræða hefur verið
um stöðu hægri skyttu í ljósi meiðsla Alex-
anders og óvissunnar í kringum Ólaf Stefáns-
son. Ásgeir Örn hefur töluvert gleymst í
umræðunni.
„Já, hugsanlega. Ég skil samt að fólk hugsi
virkilega um það þegar leikmaður af þessari
stærð eins og Lexi er, sem hefur verið einn
besti leikmaðurinn í þýsku deildinni í vetur
bæði í vörn og sókn, dettur út. Það yrði áfall
fyrir hvaða lið sem er. Ég skil viðbrögðin vel.
Ég vona bara að ég nái að koma á óvart. Ef fólk
veit ekki af því að ég geti eitthvað þá vona ég
bara að ég komi á óvart,“ segir Hafnfirðingur-
inn á léttu nótunum.
Ásgeir er á sínu fyrsta leiktímabili með
Paris Handball frá samnefndri borg í Frakk-
landi. Liðið hefur unnið alla leiki sína en hlut-
verk Ásgeir hefur verið minna en hjá hans síð-
asta liði, Hannover Burgdorf í Þýskalandi.
„Þetta hefur verið allt öðruvísi hlutverk. Í
fyrra spilaði ég meira eða minna í sextíu mín-
útur. Nú er ég kominn í miklu sterkara lið,
heimsklassa lið, sem ætlar sér virkilega stóra
hluti og mikil samkeppni er um stöðurnar,“
segir Ásgeir, sem hefur verið annar kostur
þjálfarans í skyttustöðunni hægra megin.
Hann hefur þó komið við sögu í flestum leikj-
um Parísarliðsins ýmist í stöðu skyttu eða
hornamanns.
„Maður er kannski í verra leikformi en aftur
á móti ferskari og mótíveraðri en áður. Það
vegur kannski hvort annað upp. Ég er samt í
toppformi líkamlega,“ segir Ásgeir sem hefur
fullkominn skilning á fjarveru Alexanders.
„Leikjaplanið í þessum handbolta er bara
brandari. Það er rugl hvað það eru margir
leikir. Þetta er þriðja stórmótið á þrettán mán-
uðum. Ef þú ert kannski eitthvað veikur í öxl-
inni fyrir, þá er þetta leiðin til að eyðileggja
hana algjörlega. Ég skil hann mjög vel.“
kolbeinntumi@365.is
Ólafur svaraði kalli Arons
Ólafur Stefánsson er í 23. manna hópnum
fyrir HM á Spáni sem landsliðsþjálfarinn
Aron Kristjánsson tilkynnti í gær.
„Hann verður fyrir aftan Ásgeir og tilbúinn
að leysa stöðuna hægra megin fyrir utan,“
segir Aron. Ólafur hafði lagt landsliðsskóna á
hilluna en í ljósi meiðsla Alexanders opnaði
Ólafur á möguleikann á að koma íslenska
landsliðinu til aðstoðar.
„Fyrst hann var búinn að ákveða að halda
áfram að spila í Katar fannst mér ekkert því
til fyrirstöðu að ræða við hann. Ég ræddi við
hann og heyrði að hann hefur haldið sér í
góðu formi. Hann er í mjög góðu líkamlegu
formi en vantar aðeins upp á að fá
öxlina í gang og fínpússa þessar hand-
boltahreyfingar. Ég hef trú á því að það
komi,“ segir Aron.
Karlalið Vals og Hauka æfðu sam-
eiginlega á fimmtudagskvöldið og
tók Ólafur fullan þátt í æfingunni.
„Ólafur var með og leit ágætlega
út,“ segir Aron. Landsliðið kemur
saman til æfinga 27. desember og
leikur æfingaleiki við Túnis dagana
tvo á eftir. Leikmenn fá fjögurra
daga frí yfir áramótin áður en æfingar
hefjast að nýju.
HANDBOLTI „Ég hef tekið þá ákvörð-
un að vera ekki með í þetta sinn því
ég tel að það sé mikilvægara fyrir
mig og landsliðið að ég nái mér
góðum og komi þá enn sterkari til
leiks í framtíðinni,“ segir Alexand-
er, sem glímt hefur við meiðsli á öxl
í langan tíma.
Meiðslin plöguðu Alexander
einnig í aðdraganda Evrópumóts-
ins í Serbíu í janúar en hann gaf
engu að síður kost á sér. Hann spil-
aði töluvert framan af móti en svo
sagði líkaminn stopp. Hann segir
það sennilega hafa verið mistök að
gefa kost á sér og hann hafi lært af
þeim mistökum.
„Í þetta sinn er ég að hlusta á
líkama minn sem hefur ekki feng-
ið frí í eitt og hálft ár. Það er ekki
mannlegt að spila á þremur stór-
mótum á einu ári. Það mun verða
mjög erfitt að horfa á strákana
spila og ekki geta verið með,“ segir
Alexander. Það sé ósk hans að fólk
skilji og virði ákvörðun sína. Það
sé ólíkt að spila með félagsliði og
á stórmóti þar sem leikjaálagið er
gífurlegt og hver einasti leikur upp
á líf eða dauða.
Alexander hefur spilað með
íslenska landsliðinu á níu stórmót-
um. Hann spilaði í fyrsta skipti
með landsliðinu á heimsmeistara-
mótinu í Túnis árið 2004 og hefur
síðan þá verið mikilvægur leik-
maður liðsins. Alexander, sem
flutti til Íslands átján ára gamall
frá Lettlandi, hefur spilað með
íslenska landsliðinu. Ljóst er að
fjarvera Alexanders veikir liðið en
hann minnir á að góðir menn geti
fyllt skarð hans og Ólafs Stefáns-
sonar fari svo að Ólafur gefi ekki
kost á sér.
„Ég hef spilað nánast sextíu mín-
útur í hverjum einasta leik bæði
með félagsliði sem og landsliði
undanfarin ár og þarf núna örlitla
hvíld,“ segir Alexander. Útlit er
fyrir að mikil ábyrgð muni hvíla á
Ásgeiri Erni Hallgrímssyni í stöðu
hægri skyttu og Alexander segir
tíma kominn á Hafnfirðinginn.
„Ég hef fulla trúa á Ásgeiri Erni
sem er frábær leikmaður í bæði
vörn sem sókn og getur vel fyllt
skarð mitt og Óla. Nú er hans tími
kominn til að sanna sig,“ segir
Alexander sem óskar félögum
sínum í landsliðinu góðs gengis á
Spáni.
„Hingað til hef ég hugsað til
skemmri tíma og oft tekið þátt í
stórmótum og barist við meiðsli
á sama tíma. Þetta er mjög erfið
ákvörðun en ég tel að ég muni koma
sterkari til baka. Jafnvel vélmenni
þurfa að fara í viðgerð,“ segir Alex-
ander á léttu nótunum. -ktd
Vélmenni þurfa líka
að fara í viðgerð
Alexander Petersson verður ekki með íslenska lands-
liðinu í handbolta á heimsmeistaramótinu á Spáni.
SPILAÐ MEIDDUR Alexander hefur líkt og fleiri spilað meiddur fyrir hönd
þjóðarinnar. Nú þarf öxlin á hvíld að halda. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
TVENNU
TILBOÐ
Sæng+kodd
i
Vonandi kem ég fólki á óvart
Mikil ábyrgð mun hvíla á herðum Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar á HM á Spáni í fj arveru Alexanders Peterssonar.
Þrátt fyrir mikla reynslu með landsliðinu hefur Ásgeir Örn sjaldan verið í aðalhlutverki en nú er tíminn kominn.
FYRSTI KOSTUR Ásgeir Örn verður í aðalhlutverki
í stöðu hægri skyttu þó Ólafur Stefánsson verði til
trausts og halds. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
23 MANNA
HÓPURINN
Aron Rafn Eðvarðsson, Haukum
Björgvin Páll Gústavsson,
Magdeburg
Daníel Freyr Andrésson, FH
Hreiðar Levý Guðmundsson,
Nötteröy
Bjarki Már Elísson, HK
Guðjón Valur Sigurðsson, Kiel
Stefán Rafn Sigurmannsson,
Rhein-Neckar Löwen
Kári Kristján Kristjánsson,
Wetzlar
Róbert Gunnarsson, Paris Hand-
ball
Vignir Svavarsson, Minden
Aron Pálmarsson, THW Kiel
Fannar Þór Friðgeirsson, Wetzlar
Ólafur Andrés Guðmundsson,
Kristianstad
Ólafur Gústafsson, Flensburg
Snorri Steinn Guðjónsson, GOG
Ólafur Bjarki Ragnarsson, Ems-
detten
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Paris
Handball
Ernir Hrafn Arnarson, Emsdetten
Ólafur I. Stefánsson, Lakhwiya
Sports Club
Arnór Þór Gunnarsson,
Bergischer
Þórir Ólafsson, Kielce
Ingimundur Ingimundarson, ÍR
Sverre Jakobsson, TV Grosswall-
stadt
Þessir duttu út
Alexander Petersson, Rhein-
Neckar Löwen
Sveinbjörn Pétursson, Aue
Björgvin Hólmgeirsson, ÍR
Bjarni Fritzson, Akureyri
Árni Þór Sigtryggsson,
Friesenheim
Ég hef fulla trú á
Ásgeiri Erni sem er
frábær leikmaður í vörn
sem sókn.
Alexander Petersson
SPORT