Fréttablaðið - 28.12.2012, Blaðsíða 1
FRÉTTIR
ÁSGEIR TRAUSTI Á AKUREYRI
Hinn vinsæli tónlistarmaður Ásgeir Trausti heldur tvenna
tónleika á Græna hattinum á Akureyri í kvöld ásamt hljóm-
sveitinni Moses Hightower. Ásgeir Trausti á fjölmarga aðdá-
endur og hefur fengið mikið lof gagnrýnenda fyrir plötu sína.
Tónlistin er blanda af þjóðlagapoppi og raftónlist.
M atreiðslumaðurinn Úlfar Finnbjörnsson sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar eldar hann ljúffenga rétti úr Holta-kjúklingi fyrir áhorfendur. Hér færir Úlfar okkur aprí-kósu- og balsamgljáðan hátíðarfugl með púrtvíns-sósu, sætri kartöflumús og fyllingu með sveppum,
lauk og sólþurrkuðum tómötum. Rétturinn er fyrir
sex manns. Hægt er að fylgjast með Úlfari elda
þessa girnilegu hátíðarmáltíð í kvöld klukkan
21.30 á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Þættirnir verða svo
endur sýndir yfir helgina. Einnig er hægt að h f
þá á heimasíðu ÍNN i
ELDAÐ MEÐ HOLTAHOLTA KYNNIR Úlfar Finnbjörnsson er einn færasti kokkur landsins. Hann
sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar fáum við að fylgjast með
honum elda ljúffenga kjúklingarétti úr Holta-kjúklingi.
HÁTÍÐARFUGL
Óskum
landsmönnum
Gleðilegra Jóla og
farsæls komandi árs.
Þökkum viðskiptin á
á
FLUGELDARFÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2012
www.visir.is
Sími: 512 5000 |
Föstudagur 28. dese
mber 2012 | 22. tölu
blað | 8. árgangur
VIÐSKIPTAMAÐUR ÁR
SINS
BESTU VIÐSKIPTI
ÁRSINS
Göngum
hreint til verks!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Föstudagur
16
4 SÉRBLÖÐ
Markaðurinn | Lífið | Flugeldar
Fólk
Sími: 512 5000
28. desember 2012
304. tölublað 12. árgangur
Snjóflóðahætta á Ísafirði
Mikið fannfergi er á Vestfjörðum eftir
samfellda úrkomu í sólarhring. Mörg
snjóflóð hafa fallið og björgunar-
sveitir hafa haft í nógu að snúast.
Mjög illa spáir í kvöld og laugardag. 4
Rauðkál í baunadós Sigurgeir
Finnsson varð hvumsa þegar hann
fann rauðkál í baunadósinni á
aðfangadag. 2
100 milljónir í mengunarskatt
Stóriðjan þarf að kaupa losunar-
heimildir um áramót samkvæmt kerfi
ESB. 10
Kreppur og rembingur ríkja Í
kreppum samtímans árar illa fyrir
alþjóðlega samvinnu, skrifar Jón
Ormur Halldórsson. 12
MENNING Íslenskur veruleiki átti
upp á pallborðið hjá leikhúsgestum
árið 2012. 22
SPORT Ólafur Stefánsson verður ekki
með íslenska handboltalandsliðinu á
HM á Spáni í janúar. 30
FLUGELDASALA AÐ HEFJAST Félagar í Hjálparsveit skáta í Kópavogi voru í óðaönn að undirbúa flugeldasöluna þegar ljós-
myndara Fréttablaðsins bar að garði. Flugeldasalan hefst í dag og eru sölustaðir björgunarsveitanna opnir frá 10 til 22 til 30.
desember. Á gamlársdag eru þeir opnir frá 10.00 til 16.00. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VIÐSKIPTI Fjölskipuð dómnefnd
Markaðarins hefur valið Björgólf
Jóhannsson, forstjóra Icelandair
Group, mann ársins í íslensku við-
skiptalífi.
Þá valdi dómnefndin söluna
á Íslenskri erfðagreiningu til
bandaríska líftækni- og lyfjafyrir-
tækisins Amgen viðskipti ársins
og hlutabréfaútboð Eimskips
umdeildustu viðskipti ársins.
Í kjöri dómnefndar á viðskiptamanni ársins fékk
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagrein-
ingar, næstflest atkvæði. Í þriðja sæti í kjörinu var
Janne Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaráls.
Í 2. - 3. sæti yfir viðskipti ársins voru kaup
Icelandair á nýjum þotum og kaup Watson
Pharmaceuticals á Actavis Group.
Icelandair Group undirritaði viljayfirlýsingu
um að bæta tólf flugvélum frá Boeing við flugflota
sinn.
Framkvæmd útboðs á hlutabréfum í Eimskip
í aðdraganda skráningar félagsins á markað eru
verstu og/eða umdeildustu viðskipti ársins 2012 að
mati dómnefndarinnar.
Fjallað er ítarlega um verðlaunahafa ársins og
aðra sem komu til greina í áramótaútgáfu Mark-
aðarins sem fylgir Fréttablaðinu í dag. Þá er þar
einnig að finna erlendan viðskiptaannál ársins og
viðtal við Leif B. Dagfinnsson, framleiðanda hjá
kvikmyndafyrirtækinu True North, þar sem kvik-
myndaárið mikla 2012 er gert upp. - mþl
Viðskiptaárið 2012 er gert upp í áramótablaði Markaðarins:
Björgólfur viðskiptamaður ársins
BJÖRGÓLFUR
JÓHANNSSON
28. DESEMBER 2012
Fax fa eni 8, Reykjavík • Amarohú is nu, Ak ure iyr
part by udin i. s
Allt fyrir
áramótin
Save the Children á Íslandi
Boltinn á Xinu 977
– alla virka daga kl. 11 - 12
VIÐSKIPTI Tólf vogunarsjóðir eða
aðrir fjárfestingasjóðir eiga þriðj-
ung allra krafna í þrotabú Kaup-
þings. Níu þeirra eru einnig á meðal
stærstu kröfuhafa Glitnis.
Tveir vogunarsjóðir, Burlington
Loan Management og York Global
Finance Offshore BDH, eiga sam-
þykktar kröfur á Kaupþing og
Glitni upp á samtals 511 milljarða
króna. Þetta kemur fram í yfirliti
yfir stærstu kröfuhafa Kaupþings
og Glitnis sem Fréttablaðið fékk
afhent í gær. Umfang krafna miðast
við nóvemberlok. Verði nauðasamn-
ingar bankanna tveggja samþykktir
munu kröfur þessara aðila breytast
í eignarhluti í nýjum eignastýr-
ingar félögum. Á meðal eigna þeirra
verða Arion banki og Íslandsbanki.
Í yfirlitinu yfir stærstu kröfu-
hafa Kaupþings kemur fram að 23
aðilar eigi 57 prósent allra sam-
þykktra krafna í bú Kaupþings,
en þær nema um 2.780 mill jörðum
króna. Vert er að taka fram að
Fréttablaðið hefur ekki undir hönd-
um upplýsingar um eigendur þeirra
krafna sem út af standa, en þeir eru
rúmlega þrettán þúsund talsins.
Sjóður í stýringu York Capital
Management, tuttugasta stærsta
vogunarsjóðs Bandaríkjanna, er
stærsti einstaki kröfuhafinn með
7,13 prósent allra samþykktra
krafna. York er líka á meðal
stærstu kröfuhafa Glitnis. Sjóður-
inn hefur keypt kröfur fyrir tugi
milljarða króna á undanförnum
tveimur árum.
Þar á eftir kemur þýski banka-
risinn Deutsche Bank í London með
5,5 prósent og Seðlabanki Íslands
með 4,94 prósent allra krafna.
Burlington er fimmti stærsti
kröfuhafi Kaupþings með 3,92
prósent allra krafna. Hann er
einnig langstærsti einstaki kröfu-
hafi Glitnis með 8,46 prósent allra
krafna.
Búist er við því að heimtur úr
þrotabúi Kaupþings verði um
25 prósent. Því geta kröfuhafar
Kaupþings búist við því að fá um
695 milljarða króna í sinn hlut. Í
nóvember 2008, áður en vogunar-
sjóðir hófu að kaupa upp kröfur á
föllnu íslensku bankana, var virði
þessara sömu krafna metið á 184
milljarða króna. Það hefur því tæp-
lega fjórfaldast á fjórum árum. Á
sama tíma hafa kröfur á Glitni
nífaldast í virði. – þsj / sjá síðu 8
Tólf vogunarsjóðir eiga um
þriðjung krafna á Kaupþing
Níu vogunarsjóðir sem eru á meðal stærstu kröfuhafa Kaupþings eiga líka stórar kröfur á Glitni. Tveir sjóðir,
Burlington og York, eiga um 500 milljarða króna kröfur á bankana tvo. Kröfurnar hafa margfaldast í virði.
Bolungarvík 0° NA 15
Akureyri -1° A 7
Egilsstaðir 1° SA 8
Kirkjubæjarkl. 4° SA 11
Reykjavík 3° SA 8
VERSNAR NV-TIL Austan 8-15 m/s í
dag og úrkoma með köflum en gengur í
norðaustan 18-25 m/s á Vestfjörðum með
ofankomu í kvöld. 4
LEIKLIST „Það er ofboðslega
gaman að fá svona tækifæri og
lítast svona vel á verkefnin sem
um ræðir eins
og raunin er
með þessi,“
segir leikarinn
Ólafur Darri
Ólafsson.
Honum hafa
verið boðin
hlutverk í
tveimur Holly-
wood-verk-
efnum. Annað
þeirra er kvikmyndin A Walk
Among the Tombstones, sem er
leikstýrt af Scott Frank og með
Liam Neeson í aðalhlutverki.
Hitt er í nýjum sjónvarps-
þáttum, True Detectives, með
þeim Woody Harrelson og Matt-
hew McConaughey í aðalhlut-
verkum. – trs / sjá síðu 34
Ólafur Darri í útrás:
Með tvö tilboð
frá Hollywood
ÓLAFUR DARRI
ÓLAFSSON
500
Tveir sjóðir eiga 500
millj arða kröfu í þrotabú
Íslandsbanka og Kaupþings.
SKOÐUN Vonandi ná flestir að
standa við áramótaheitin, skrifar
Teitur Guðmundsson læknir. 17