Fréttablaðið - 28.12.2012, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 28.12.2012, Blaðsíða 22
 | 4 28. desember 2012 | miðvikudagur Framkvæmd útboðs á hlutabréf- um í Eimskip í aðdraganda skrán- ingar félagsins á markað eru verstu og/eða umdeildustu við- skipti ársins 2012 að mati dóm- nefndar Markaðarins. Niður- stöðurnar voru afgerandi. Það er ýmislegt í því ferli sem er gagnrýnt af dómnefndinni. Í fyrsta lagi ber þar að nefna til- urð þess kaupréttarkerfis sem Eimskip setti af stað fyrir fimm lykilstjórnendur sína, og átti að tryggja þeim 4,38 prósent af heildarhlutafé Eimskips. Í öðru lagi var gagnrýnt að svo virð ist sem sumir bjóðenda hafi haft upplýsingar um að fallið yrði frá kaupréttinum áður en útboðs- fresti lauk, en aðrir höfðu þær ekki. Í þriðja lagi var gagnrýnt að hluti bjóðenda hefði fengið að gera tilboð í félagið með fyrirvara án þess að slíkt hefði verið heim- ilað í útboðskynningu. Í fjórða lagi var síðan framganga starfs- manna umsjónaraðila útboðsins, Straums fjárfestingabanka og Ís- landsbanka, á meðan mestu lætin stóðu yfir gagnrýnd. Lífeyrissjóðir neita að taka þátt Tilkynnt var um það í október að stærstu eigendur Eimskips ætl- uðu að selja 25 prósenta hlut í fé- laginu í tveimur útboðum, einu lokuðu fyrir fagfjárfesta og hinu fyrir almenning, í aðdraganda skráningar félagsins á markað í nóvember. Félagið var það lang- stærsta sem nýskráð hafði verið á markað. Verðbilið í lokaða út- boðinu var 205 til 225 krónur og átti útboðsgengi þess síðara að ákvarðast af því. Vonir stóðu til að fjárfestingasveltir lífeyris- sjóðir og aðrir stórir fagfjár festar myndu slást um hlutina sem í boði voru. Raunin varð þó önnur. Degi áður en útboðinu lauk kom stjórnarmaður í Gildi fram í kvöldfréttum Útvarps og til- kynnti að lífeyrissjóðurinn ætl- aði ekki að taka þátt í útboðinu vegna kaupréttarsamninga lykil- starfsmanna Eimskip, sem þóttu óeðlilega rausnarlegir. Í kjöl farið tilkynnti Lífeyrissjóður starfs- manna ríkisins (LSR), stærsti lífeyrissjóður landsins, að hann myndi heldur ekki kaupa í Eim- skip vegna kaupréttarsamn- inganna. Þessi skýring vakti þó furðu þar sem fréttir um fyrir- komulag kaupréttarins höfðu verið sagðar mörgum mánuðum áður og það tilgreint í upp gjörum Eimskips. Vildu ýmsir meina að um fyrirslátt væri að ræða. Sjóðunum hefði einfaldlega þótt verðið á Eimskip of hátt. FME rannsakar Lokaða útboðinu átti að ljúka klukkan 14 daginn eftir, fimmtu- daginn 25. október. Fram að lokum þess stóðu umsjónaraðilar útboðsins, Straumur og Íslands- banki, í miklum samskiptum við væntanlega bjóðendur. Lífeyris- sjóðurinn Festa upplýsti opinber- lega um það að hann teldi starfs- menn umsjónar aðilanna hafa boðið sumum þátttakendum að gera tilboð í hlutabréf Eimskips með fyrir vara um að kaupréttar- samningarnir yrði felldir niður. Með því hefðu valdir fjárfest- ar fengið meiri upplýsingar en komu fram í útboðslýsingu og stóðu öðrum fjárfestum til boða. Auk þess voru uppi grunsemdir um að ein hverjir þeirra sem tóku þátt í útboðinu hefðu haft upplýs- ingar um að til stæði að fella kaup- réttinn niður á meðan á útboðinu stóð. Fréttablaðið greindi enda frá því þann 2. nóvember að Gylfi Sig- fússon, forstjóri Eimskips, hefði greint Stefáni Einari Stefánssyni, formanni VR, frá því að fella ætti niður kaupréttina áður en hluta- fjárútboðinu lauk. Fjármálaeftirlitið (FME) tók þessar ásakanir til rannsóknar. Niðurstaða þess varð sú að engin dæmi hefðu fundist um viðskipti sem hefðu farið fram á grundvelli innherjaupplýsinga. Útboðsgengi hluta í Eimskip, sem ákvarðað var í lokaða út- boðinu, var að lokum 208 krónur á hlut, eða mjög nálægt lægri mörkum þess verðbils sem tilboð máttu vera á. Umframeftirspurn varð eftir bréfum en fjarri því jafn mikil og búist hafði verið við. Hún jókst þó í almenna út boðinu, sem lauk snemma í nóvember, og var þá fimmföld. Útboð Eimskips umdeildast Álitsgjafar Markaðarins telja framkvæmd á hlutabréfaútboði Eimskips í október verstu og/eða umdeildustu við- skipti ársins. Of hár kaupréttur, innherjaupplýsingar og meint mismunun bjóðenda köstuðu rýrð á útboðið. Á MARKAÐ Skráning Eimskips í Kauphöll Íslands átti að vera mikið gleðiefni fyrir alla sem komu að félaginu. Framkvæmd útboðs í aðdraganda hennar gerði það hins vegar að verkum að súrt bragð sat eftir í munni þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR KAUP HUANGS NUBO Á GRÍMSSTÖÐUM Á FJÖLLUM „Sértæk afskipti ríkisins af einstökum málum virðast stefna í að verða regla frekar en undantekning varðandi erlenda fjárfestingu á Íslandi. Skil ekki hvernig stjórn- völd fyllast vantrú á því að þeim takist sjálfum að láta gildandi lög og reglur ná yfir viðskipti og umsvif manna þó þeir komi frá útlöndum með háar fjárhæðir. Á sama tíma má efast um ágæti viðskiptaáætlunar sem gengur upp á 10 milljarða króna uppbyggingu í ferðaþjónustu á þessum stað, en það er ekki stjórnvalda að hafa vit fyrir mönnum við slíkar aðstæður.“ ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR, BRÉFIN HANS OG EIGINFJÁRSTAÐA KAUP RÍKISINS Á FJÁRHAGS- OG MANNAUÐSKERFI „Þó að málið eigi sér lengri sögu er ekki hægt að segja annað en að kaup ríkisins á fjárhags- og mannauðskerfi nái yfir 1., 2. og 3. sæti sem umdeildustu og mest gagn- rýndu viðskipti ársins.“ ÓVISSA Í KRINGUM FISKVEIÐISTJÓRNUNARKERFIÐ „Hamlar ákvörðunartöku og fjárfestingu til að byggja upp greinina. Raunverulegt tjón.“ KAUP ÚTRÁSARVÍKINGA OG ANNARRA FORRÉTT- INDAHÓPA Á KRÓNUM Á AFSLÆTTI Í GJALDEYRISÚT- BOÐUM SEÐLABANKANS „Útboðin sjálf gagnast lítið við afléttingu gjaldeyrishafta.“ KAUP ÞORSTEINS MÁS Á ÚTGERÐARFYRIRTÆKINU BERGI-HUGIN STOFNUN ICELAND-VERSLANANNA „Eftir það sem á undan er gengið hefði mátt ætla að neytendur myndu ekki endilega greiða Bónusfeðgum atkvæði sitt með buddunni. Raunin virðist ætla að verða önnur.“ FYRIRTÆKJASALA BANKANNA VIÐSKIPTI SLITASTJÓRNA VIÐ RÍKIÐ/BANKANA KAUP ERLENDRA AÐILA Á SKULDABRÉFUM FÖLLNU BANKANNA „Margir sjá ofsjónum yfir hagnaði þeirra og vilja gera gróðann upptækan. Próf á réttarríkið Ísland.“ TAP RÍKISINS Á FJÁRFRAMLAGI TIL SJÓVÁR FRAMKVÆMD VAÐLAHEIÐARGANGA „Mjög stór og umdeilanleg fjárfesting á kostnað skattgreiðenda á erfiðum tíma, en utan ríkisreiknings. Æi!“. ANNAÐ SEM VAR NEFNT: Salan á Íslenskri erfðagreiningu til Amgen Sjá ítarlega umfjöllun um viðskiptin á síðu 8-9 þar sem fjallað er um þau sem bestu viðskipti ársins. „Sala á lífsýnum í vörslu Íslenskrar erfðagreiningar til Amgen.“ Kaup Wow Air á Iceland Express Tilkynnt var um það í lok október að lágfargjaldaflugfélagið Wow Air, sem er að mestu í eigu Skúla Mogensen, hefði keypt aðal- keppinaut sinn, Iceland Express, af Pálma Haraldssyni. Kaupverðið var ekki gefið upp en Skúli sagði í samtali við Fréttablaðið að hann myndi leggja enn meira fé inn í Wow Air til að geta lokið kaup- unum. Með þessu tryggði Wow Air stöðu sína sem eina íslenska lágfargjaldaflugfélagið. Kaupin vöktu þó líka nokkra furðu, sérstaklega vegna þess að Iceland Express átti engar vélar og hafði tapað 2,7 milljörðum króna á árinu 2011. Viðbúið var að tapið yrði mikið á þessu ári líka. Því vaknaði sú spurning hvað Wow Air væri eiginlega að kaupa. Fjármálaóreiða Hjúkrunarheimilisins Eirar Stöð 2 greindi frá alvarlegum fjárhagsvanda Hjúkrunarheimilisins Eirar í byrjun nóvember. Þá var upplýst að félagið skuldaði um átta milljarða króna en að allt laust fé væri nánast uppurið. Vandinn var fyrst og fremst tilkominn vegna húsrekstrarsjóðs Eirar, sem byggir fasteignir og selur íbúðarrétt í svokölluðum öryggisíbúðum. Rekstur fasteignafélagsins hafði gengið afleitlega og skuldbindingar voru að sliga það. Auk þess höfðu stjórnendur Eirar tekið hundruð milljóna króna að láni hjá hjúkrunarheimilis- hluta rekstursins, sem er á fjárlögum, og notað í rekstur fasteigna- félagsins en allt var rekið á sömu kennitölunni. Á meðal þeirra sem Eir skuldar fé eru íbúar í öryggisíbúðunum, allt aldrað fólk. Samtals nemur skuld Eirar við það um tveimur milljörðum króna. Stjórnarformaður félagsins, fyrrum borgarstjórinn Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, sagði af sér skömmu eftir að málið kom upp og stjórnin öll var sett af nokkrum vikum síðar. Starfshópur vinnur nú að því að komast að lausn á fjárhagsstöðu Eirar. VERSTU/UMDEILDUSTU VIÐSKIPTI ÁRSINS KÁRI STEFÁNSSON VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON SKÚLI MOGENSEN 2. sæti 2.-3. sæti 3.-4. sæti Eitt umdeild- asta málið, hvernig staðið hefur verið að rekstri þessa félags og framkoma við fólkið sem þar býr og nýtur þjónustu Eirar. Það er erfitt að átta sig á því hvað var verið að kaupa. Hand- ónýt ferðaskrifstofa með laskað mannorð? Kára [Stefánssyni, forstjóra ÍE] er tíðrætt um að það skilji enginn annar en hann hvert virði fyrirtækisins er. Það megi alls ekki rýna bara í tölur, sem sýna alltaf tap og upprennslu á rekstrarfé. Það er rétt hjá honum að það skilur þetta „blackbox“ líklega enginn annar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.