Fréttablaðið - 28.12.2012, Blaðsíða 24
| 6 28. desember 2012 | miðvikudagur
1. SÆTI Kaup Amgen á Decode
Kaup bandaríska líftækni- og lyfjafyrirtækisins Amgen á öllu hlutafé móður-
félags Íslenskrar erfðagreiningar fyrir 415 milljónir dala, um 52 milljarða
króna, sem tilkynnt var um fyrr í desembermánuði.
RÖKSTUÐNINGUR: „Kaup Amgen á Decode eru mikil viðurkenning á því
vísindastarfi sem unnið hefur verið hjá fyrirtækinu síðastliðin 15 ár. Þó ekk-
ert sé í hendi þá stórauka þau líka líkurnar á því að starfsemi Decode ekki
bara haldi áfram, heldur jafnvel eflist á Íslandi, en staða fyrirtækisins hefur
jú verið tvísýn í allmörg ár. Loks sýna þessi viðskipti hvernig þrautseigja
frumkvöðuls í gegnum súrt og sætt geta á endanum borið ríkulegan ávöxt,
en er sjaldnast sigling á lygnum sjó – svo ekki sé nú tekið dýpra í árinni!“
„Stór og mikill díll og rennir stoðum undir þá kenningu að fyrirtækið og
stofnandi þess hafi níu líf.“
„Virðist hafa skilað fyrri eigendum miklum hagnaði.“
2.-3. SÆTI Kaup Icelandair á nýjum þotum
Icelandair Group undirritaði viljayfirlýsingu snemma í desember um að
bæta tólf flugvélum frá Boeing við flugflota sinn. Listaverð vélanna er 1,2
milljarðar dala, um 150 milljarðar króna, en Icelandair fékk einhvern afslátt
af því. Kaupverðið hefur hins vegar ekki verið gefið upp. Samkvæmt sam-
komulaginu hefur Icelandair Group kauprétt á um tylft véla til viðbótar.
Fyrstu vélarnar verða afhentar á fyrri hluta ársins 2018.
2.-3. SÆTI Kaup Watson Pharmaceuticals á Actavis Group
Tilkynnt var um kaup bandaríska lyfjafyrirtækisins Watson á Actavis í apríl.
Kaupverðið var samtals 4,25 milljarðar evra, rúmlega 700 milljarðar króna.
Langstærsti upphæðarinnar fór í að endurgreiða lán. Deutsche Bank,
stærsti lánardrottinn Actavis, fékk bróðurhluta þeirrar endurgreiðslu en
þrotabú Landsbankans, þrotabú Glitnis og Straumur áttu einnig verulegra
hagsmuna að gæta. Tugir milljarða runnu til þessara íslensku aðila við
söluna. Í samningnum fólst einnig að Novator, fjárfestingafélag Björgólfs
Thors Björgólfssonar, eignaðist hlut í sameinuðu félagi við sameininguna.
Eftir hana varð sameinað félag þriðja stærsta samheitafyrirtæki í heimi.
BESTU VIÐSKIPTI ÁRSINSVIÐTAL/VIÐSKIPTI ÁRSINS
Þórður Snær Júlíusson | thordur@frettabladid.is
Þ
essi kaup sýna að það
sem við vorum að
byggja upp eru verð-
m æt i sem A mgen
keypti og borgaði hátt
verð fyrir,“ segir Kári Stef-
ánsson forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar. Bandaríska
líftækni- og lyfjafyrir tækið
Amgen keypti allt hlutafé í
móður félagi Íslenskrar erfða-
greiningar (ÍE) fyrir 415 millj-
ónir dala, um 52 milljarða
króna, í desembermánuði. Til
að setja þá upphæð í samhengi
þá er hún töluvert hærri en
markaðsvirði Eimskips (46,1
milljarðar króna) og Icelandair
Group (41,2 milljarðar króna).
Því er ÍE, sem stofnað var 1996,
loks búið að tryggja tilveru-
grundvöll sinn til langs tíma.
Að mati Kára staðfesta kaupin
að viðskiptamódel fyrir tæk-
isins gengur upp. „Það sýnir
að það er hægt að búa til verð-
mæti sem liggja eingöngu í hug-
verkum, þó það sé sjaldgæft hér
á landi. Það sem þeir voru að
kaupa í Íslenskri erfðagrein-
ingu er geta okkar til að gera
uppgötvanir.“
Var ekki planið
Decode, fyrrum móðurfélag ÍE,
var tekið til skiptameð ferðar
síðla árs 2009. Samhliða var ÍE
selt til Saga Investments, fjár-
festingafélags í eigu Polar-
is Venture Partners og Arch
Venture Partners. Auk þess átti
Kári sjálfur og á annan tug ann-
arra einstaklinga lítinn hlut í
félaginu. Hann segir það ekki
hafa verið stefnuna á þeim tíma
að selja ÍE aftur nokkrum árum
síðar. „Menn sáu það ekki endi-
lega fyrir. Það var miklu meira
horft á þann möguleika að búa til
greiningartæki og það var við-
skiptamódelið sem við vorum að
vinna eftir. En á síðustu tveim-
ur til þremur árum hefur lyfja-
iðnaðurinn sýnt meiri og meiri
áhuga á erfðafræði. Það virðist
vera að hann standi í þeirri trú
að þegar kemur að vali á lyfja-
mörkum þá bjóði erfðafræðin
upp á fleiri möguleika en aðrar
aðferðir. Við erum með atkvæða-
mestu starfsemi í mannerfða-
fræði í heiminum í dag. Það getur
enginn keppt við okkur og því
ekki óeðlilegt að það hafi skap-
ast áhugi á að kaupa fyrirtækið.
Það sem Amgen er að kaupa eru
raunveruleg verðmæti af þeim
gæðum að þau leiða heiminn.“
Áttu sér stuttan aðdraganda
Kári segir kaupin hafa átt
sér mjög stuttan aðdraganda.
„Þetta tók um mánuð. Venjulega
taka svona viðskipti níu til tólf
mánuði, en þetta var líka vinna
nótt og dag. Það var feikimikill
hamagangur.“
Á meðan verið var að ganga
frá viðskiptunum greindi Við-
skiptablaðið frá því að eigin-
fjárstaða ÍE væri neikvæð og
að fyrirtækið ætti rekstrarfé
fram á fyrsta ársfjórðung 2013.
Í umfjöllun blaðsins kom fram
að haft hefði verið samband
við Kára en hann ekki viljað
tjá sig á þeim tímapunkti. Kári
segir það aldrei hafa verið neina
spurningu um að rekstrarféð
yrði uppurið. „Ég benti þeim á
þegar þeir höfðu samband að ég
gæti talað við blaðið 10. des-
Stærsta fjárfestingin á Íslandi frá hruni
Kaup Amgen á Íslenskri erfðagreiningu á 52 milljarða króna eru viðskipti ársins að mati dómnefndar Markað-
arins. Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, segir Amgen vera að kaupa getu fyrirtækisins til að gera uppgötvanir.
LEIÐANDI Í HEIMINUM „Við erum með atkvæðamestu starfsemi í mannerfðafræði í heiminum í dag. Það getur enginn keppt við okkur og því ekki óeðlilegt að það hafi skapast áhugi á að kaupa fyrirtækið. Það sem Amgen er að
kaupa eru raunveruleg verðmæti af þeim gæðum að þau leiða heiminn,“ segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Við erum með
atkvæðamestu
starfsemi í mannerfða-
fræði í heiminum í dag.
Það getur enginn keppt við
okkur.