Fréttablaðið - 28.12.2012, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 28.12.2012, Blaðsíða 26
FÓLK|HELGIN ELDABUSKAN Nanna tilkynnti á Facebook-síðu sinni að hún vildi hvorki kalla sig ástríðukokk né matgæðing. Eldabuska fyndist henni hins vegar ágætisorð. Nanna Rögnvaldar gaf út vinsæla bók í fyrra sem nefnist Jólamatur Nönnu. Þessi bók hefur hjálpað mörgum við matseldina þegar undirbúa skal veislu. Nanna gaf fúslega leyfi til að birta uppskrift að villigæsarbringum úr bókinni, en slíkan veislumat gæti verið upplagt að elda um áramót. „Ég elda ekki sjálf á gamlárskvöld, hef í fjöldamörg ár alltaf verið annars staðar í mat, oftast hjá systur minni í kalkúna, og hef þá í mesta lagi hjálpað aðeins með sósuna eða eitthvað slíkt. Ég veit ekki enn hvar ég verð á nýárs- dag en ef ég verð heima hjá mér er trúlegt að ég geri eitthvað úr dúfna- bringum sem ég á í frysti. Veit ekki hvað það verður en rósmarín og þurrkaðar apríkósur og/eða gráfíkjur gætu komið eitthvað við sögu,“ svaraði Nanna þegar hún var spurð um eigin áramótaveislu. En hér kemur uppskriftin. VILLIGÆSARBRINGUR MEÐ BLÁBERJASÓSU ÁRAMÓT Líklega vefst fyrir mörgum hvað eigi að vera í matinn um áramót. Hér kemur góð hugmynd úr matarsmiðju Nönnu Rögnvaldardóttur sem von- andi kemur að góðum notum, enda girnilegur réttur. VILLIGÆSARBRINGUR FYRIR 4 4 villigæsarbringur Nýmalaður pipar Salt 1 msk. olía 1 msk. smjör Taktu bringurnar úr kæli a.m.k. einni klukkustund áður en á að matreiða þær svo að þær séu sem næst stofuhita þegar steikingin hefst. Hitaðu ofninn í 180°C. Snyrtu bringurnar og þerraðu þær lauslega með eldhús- pappír. Kryddaðu þær með pipar og salti. Hitaðu olíu og smjör á pönnu og brúnaðu bringurnar á báðum hliðum við góðan hita. Settu þær í eldfast fat og stingdu þeim í ofninn í 10–14 mínútur. Taktu þær svo út og láttu þær bíða í fáeinar mínútur áður en þær eru skornar. Berðu þær fram t.d. með kryddjurtakartöflum, steiktum plómum og bláberjasósu. BLÁBERJASÓSA Best er að nota íslensk bláber eða aðalbláber. Ef engin ber eru til má sleppa þeim en nota dálítið meira af sultu. 10 g þurrkaðir villisveppir 250 ml vatn, sjóðandi 1 laukur 150 ml rauðvín 2 tsk. villibráðarkraftur, eða eftir smekk Pipar, salt Lófafylli af frosnum eða þurrkuðum bláberjum 2 tsk. bláberjasulta eða önnur sulta 1 tsk. balsamedik Sósujafnari Settu sveppina í skál, helltu sjóðandi vatni yfir og láttu standa í a.m.k. hálf- tíma. Saxaðu laukinn smátt og láttu hann krauma í nokkrar mínútur í feitinni sem gæsabringurnar voru brúnaðar í. Helltu rauðvíninu á pönnuna og láttu sjóða niður um helming. Bættu þá sveppunum og vatninu sem þeir voru í á pönnuna, ásamt villibráðarkrafti, pipar og salti, settu berin út í og láttu sjóða í nokkrar mínútur. Bragðbættu sósuna með sultu og balsam ediki og þykktu hana ögn með sósujafnara (en hún á að vera þunn). STEIKTAR PLÓMUR Ég notaði tvær tegundir af plómum, aðra litla og rauða, hina stærri og fjólubláa. Það kom mjög vel út. Svo mætti líka nota nektarínur eða ferskjur. 800 g plómur 50 g smjör 2 msk. hlynsíróp Pipar, salt Skerðu plómurnar í tvennt og fjarlægðu steininn. Hitaðu smjör og hlynsíróp á stórri pönnu, settu plómurnar á pönnuna og steiktu þær við meðalhita þar til þær eru farnar að mýkjast dálítið. Kryddaðu með pipar og salti. Áramótakjólar 30-70% afsláttur af öllum kjólum föstudag og laugardag Við erum á Facebook FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.