Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.12.2012, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 28.12.2012, Qupperneq 12
28. desember 2012 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR ERLENDIR VENDIPUNKTAR | 12 samsömun manna og hópa við trúarbrögð. Íslam er ekki ein trú frekar en kristni eða hindúismi og fylkingar eru fleiri en tölu verður á komið. Þær mynda grunn að sjálfsmynd manna og samfélaga. Tvo meginmeiði má greina og á árinu magnaðist spenna bæði innan samfélaga og á milli þeirra í kringum þessa skiptingu. Í Sýr- landi telja alavítar, minnihluta- hópurinn sem ræður ríki og her, sig vera sjía-múslíma sem er raunar umdeild skilgreining en uppreisnarmenn eru flestir súnn- ítar. Átök sem klædd eru í svip- aða trúarlega búninga geisa líka í Írak og urðu enn alvarlegri á árinu. Undir þessi átök og fleiri kynda öflug ríki hvort af sínum trúarlega meiðnum, Sádi-Arabía sem notar olíugróða til að fjár- magna trúboð og Íran sem hagn- aðist pólitískt á innrás Bandaríkj- anna í Írak. Sú velgengni snerist hins vegar við á árinu og það kom á óheppilegum tíma fyrir ráð- andi öfl í Íran þar sem vaxandi óánægju gætir með stjórn trú- manna. Á árinu heyrðist minna í þeim risastóra meirihluta mús- líma sem er andvígur ofbeldi og notkun trúarinnar í þágu póli- tískra afla. Víða þrengir nú að þessum meirihluta þótt þaðan komi flestir vormenn araba. Orrustur við Íslam Mubarak í Egyptalandi og Assad- feðgunum í Sýrlandi tókst að eyða möguleikum fólks til að bind- ast böndum í borgaralegu sam- félagi. Þessar stjórnir, og margar fleiri, lifðu á því að þykjast eini valkosturinn við íslamska öfga- menn. Þessu var víða trúað og Bandaríkin og fleiri studdu því margar ríkisstjórnir sem eyddu kerfisbundið allri lýðræðislegri samtakamyndun svo nú er erfitt að byggja upp lýðræði. Baráttan í Egyptalandi stendur á milli barna arabíska vorsins sem vilja lýðræðislegt og opið samfélag og íslamska bræðralagsins sem vill hvorugt. Bræðralagið er vel skipulagt og hefur helst áhyggjur af róttækari fylkingum trúmanna. Draumar þess um trúarlegt sam- félag á grunni fornra ritninga í stað ósóma samtímans urðu opin- berir á árinu. Tæpt er um varnir, miðjuna vantar. Sama er að gerast í Sýrlandi. Þar eru hinir trúuðu að ná yfirhöndinni í krafti sannfær- ingar sinnar og peninga frá Persa- flóa. Óljósari draumar almennings um lýðræði og mannréttindi hafa ekki sama styrk þótt fleiri deili þeim. Nú berjast alavítar eins og um líf þeirra sé að tefla. Sem það gæti verið. Þeir trúuðu og skipu- lögðu ráða mestu hinum megin. Lömun lýðræðis Í langstærsta lýðræðisríki heims, Indlandi, náði pólitíkin enn einu sinni að lama vöxt í atvinnulífinu. Það sama mátti segja um Japan, þriðja stærsta hagkerfi heims- ins, og að sínu leyti um Banda- ríkin þar sem átök á milli þings og framkvæmdavalds þjóna lítið lýðræði og stefna í öngstræti. Afleiðingarnar á Indlandi eru sýnu alvarlegastar því þar deyja þúsundir barna á hverjum degi úr fátækt, jafnmörg og í allri Afríku. Atvinnulífið hafði tekið vel við sér á síðustu árum en upp- lausn og lömun einkenna pólitík. Landið er tvöfalt fjölmennara en Evrópa og heimkynni ólíkra þjóða sem síðan eru klofnar með hinum margvíslegasta hætti. Stjórnmál hafa orðið sífellt flóknari á lands- vísu og skipting eftir tungu málum, trúarbrögðum, kynstofnum, þjóð- erni og menningarbundinni stéttastöðu hefur fengið vaxandi þýðingu. Í Japan hefur ríkt stjórn- málakreppa af öðru tagi í áratugi en undir lok ársins dró til tíðinda. Stóra málið í Japan er næsta fram- andlegt fyrir Íslendinga, nefnilega það að búa til verðbólgu sem ný ríkisstjórn heimtar að seðlabank- inn geri. Í Bandaríkjunum virðist stjórnmála kerfið virka sífellt verr og fátt vera í boði til bóta enda hefur stjórnarskráin þar svipaða stöðu og ritningin. Mikilvægasta þróun ársins var líka utan stjórn- málanna. Nú er að verða ljóst að Bandaríkin geta fljótlega orðið sjálfum sér næg í orkuöflun. Það getur haft margvíslega þýðingu. Atvinnulíf þar vestra getur nú fengið orku á lægra verði en iðn- aður í Kína. Bein áhrif eru líka á Miðaustur lönd þar sem orku- hagsmunir Bandaríkjanna hafa oft ráðið ferðinni. Svo eru það umhverfismálin. Öngstræti einræðis Það áraði þó verr fyrir einræði en lýðræði á árinu. Pólitískur vandi Kína sést ekki í hagtölum en fámennisstjórnin, sem raunar telur tugi þúsunda valdamanna, er ekki sjálfbært kerfi. Ekki einu sinni efnahagslega, hvað þá póli- tískt. Þetta sást kannski ekki vel á árinu 2012 og mun líklega enn síður sjást á komandi ári þegar nýir leið togar fara að lofa um- bótum en verður skýrt innan tíðar. Í Rússlandi gengur plat- lýðræði Pútíns ekki heldur upp, hvorki pólitískt né efnahagslega. Það grillti í þau sannindi á árinu 2012 en þau verða ljósari á næstu misserum. Eitt áhyggjuefni minnti óþægilega á sig á árinu. Þjóðernis- hyggja er síðasta vígi skálksins, var eitt sinn sagt. Mikil hætta er á því að kínversk stjórnmál, og kannski rússnesk líka, rati inn í öngstræti þjóðernishyggju þegar meiri órói fer að skapast. Deilur Kínverja um landamæri við sex nágrannaríki síðustu mánuði minna á þetta. Þjóðernishyggja Í kreppum samtímans árar illa fyrir alþjóðlega samvinnu. Margt minnti á þetta á árinu, ekki síst tilraunir til einangrunar í viðskiptum sem gera oftast illt verra. Remb ingur ríkja í pólitík hamlaði líka lausn stórra vandamála í öllum álfum heimsins flestum til ógagns og viljaleysi til samvinnu í umhverfismálum ógnar nú bein línis mannkyninu. Mál dagsins hvöttu ekki til samvinnu á líðandi ári þótt þar sé flestar lausnir að finna. Það minnsta og stærsta Á endanum hlýtur að skipta mestu hvernig menn skilja veruleikann. Mikil gjá er orðin á milli skilnings vísindanna og almennings á tilver- unni sjálfri. Umræður um Higgs- öreindina, eða sviðið, sem líklega mældist á árinu sýndu merki um aukinn áhuga á raunveru legum sannindum um eðli heimsins. Flestum sem nenna að lesa er orðið ljóst að sjálfur veruleikinn er ger- samlega annar en sá sem blasir við augum og viðteknar hugmyndir ná til. Það mun líklega smám saman fá þýðingu. Það ríkti óvíða sú stemm-ing árið 2012 að nú væru menn á réttri leið. Vafi fylgir vegferð hverri en það var óvanalega víða sem nagandi efi um almenna stefnu setti beinlínis mark sitt á þjóðlíf. Um leið var sú sannfær- ing almenn að mikið væri í húfi og margt myndi ráðast af fram- vindu mála. Ekki að ástæðulausu. Það var eins og þjóðir um víða veröld rækjust samtímis á póli- tíska veggi. Fjórar sögur Sums staðar birtust þeir sem efnahagslegir múrar eins og í skuldakreppu Evrópu og fjár- lagahalla Bandaríkjanna. Atvik og orðræða ársins sýndu þó vel að báðar eru kreppurnar póli- tískar. Annars staðar var stjórn- málalegt eðli erfiðustu viðfangs- efna þjóða enn ljósara eins og í pólitískri lömun Indlands og Japan eða í upplausn og átökum víða um Miðausturlönd. Á árinu kom líka betur í ljós hvað Kína stendur frammi fyrir erfiðum og flóknum pólitískum spurningum. Ekki ósvipaða sögu má segja um Rússland þótt aðstæður séu ólíkar. Kannski má tengja þessa hluti saman með því að segja að árið hafi fyrst og fremst lit- ast af fjórum pólitískum sögum um stjórnar form, gjaldmiðla og trúarbrögð. Eldskírn evrunnar Margir sem þekkja fjármála- markaði í þaula spáðu því fram á haust að evran myndi ekki lifa árið í óbreyttri mynd. Þeir sem þekkja vel til stjórnmála í Þýska- landi og skilja pólitískar aðstæður í Evrópusambandinu spáðu hins vegar yfirleitt hinu gagnstæða. Þeir reyndust hafa rétt fyrir sér. Fæðing evrunnar var pólitísk og líf hennar er það enn. Framhalds- saga ársins var um tíða og jafnan árangurslausa neyðarfundi ESB ríkja þar sem menn sýnd- ust glíma við ofurefli markaða, reiði kjósenda og eigið getuleysi. Fréttir af fundunum voru um lömun og upplausn. Þetta sýndi vel hversu erfitt er að samhæfa stefnu margra ólíkra ríkja í við- kvæmustu málum. En fundirnir sýndu hins vegar líka hversu náið samstarf ESB ríkja er orðið og hve þýðingar mikið það er fyrir þær þjóðir sem í hlut eiga. Hugi menn að því sem raunverulega var rætt á árinu sjá þeir strax að svona tilraunir samstarfs væru algerlega óhugsandi í nokkrum öðrum heimshluta. ESB fékk líka á árinu viðurkenningu á sögulegri þýðingu sinni í heiminum með friðar verðlaunum Nóbels. Við árslok eru stór vandamál óleyst en aukinnar bjartsýni er þó farið að gæta um framtíð evrunnar. Spurningar snúast ekki lengur um pólitískan vilja einstakra ríkja til að viðhalda samstarfinu eins þær gerðu mestan part ársins. Þær snúast núorðið um hvort stjórnir skuldsettra ríkja Suður-Evrópu muni finna pólitískan styrk til að bæta samkeppnisstöðu landa sinna. Ríkin lögðu öll grunn að umbótum á árinu. Fórnirnar sem menn eru að færa í skuldugum ríkjum Evrópu til þess að leysa sín mál og verða samstarfshæfir í peningamálum sýna vel mikil- vægi evrunnar fyrir þjóðirnar sem nota hana. Orrustur um íslam Hin stóra sagan á árinu var um öllu verri erjur á milli samfélaga sem líkt og þjóðir Evrópu eiga saman mikla sögu og menningu. Skelfilegust voru átökin í Sýrlandi en þau eru með tvennum hætti hluti af stærri heild. Í þessum heimshluta geisa nú tvær ólíkar orrustur um íslamska trú. Ann- ars vegar eru átök sem snúast um ➜ Í kreppum samtímans árar illa fyrir alþjóðlega samvinnu. Margt minnti á þetta á árinu, ekki síst tilraunir til einangrunar í viðskiptum sem gera oftast illt verra. Rembingur ríkja í pólitík hamlaði líka lausn stórra vandamála í öllum álfum heimsins flestum til ógagns og viljaleysi til samvinnu í umhverfismálum ógnar nú beinlínis mannkyninu. Kreppur og rembingur ríkja Í kreppum samtímans árar illa fyrir alþjóðlega samvinnu og margt minnti á þetta á árinu, að mati Jóns Orms Halldórssonar. Hann segir að á endanum skipti mestu hvernig menn skilja veruleikann. Sjálfur veruleikinn sé gersamlega annar en sá sem blasir við augum. ERLENDIR VENDIPUNKTAR 2012 Jón Ormur Halldórsson er stjórnmálafræðingur og pistlahöfundur í Fréttablaðinu. Fréttablaðið gerir upp árið með grein um erlenda vendipunkta sem snúast um alþjóðlega samvinnu og erjur milli þjóða. Í SÝRLANDI Uppreisnarmenn fagna eftir að hafa skotið niður orrustuþotu sýrlenska hersins. Átökin í Sýrlandi hafa staðið yfir í á annað ár. NORDICPHOTOS/AFP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.