Fréttablaðið - 29.12.2012, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 29.12.2012, Blaðsíða 10
29. desember 2012 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR ÍÞRÓTTAVENDIPUNKTAR | 10 Sigurður Elvar Þórólfsson er íþróttafréttastjóri 365 miðla. Hann hefur starfað sem íþrótta- fréttamaður í áratug og er formaður Samtaka íþróttafréttamanna. Fréttablaðið gerir upp árið með greinum um innlenda vendipunkta eftir valda höfunda. Vendipunktarnir snúast um markverðar fréttir og atburði sem áttu sér stað á árinu og gætu haft áhrif til frambúðar á Íslandi. Það er staðreynd að handknattleiks-maðurinn Ólafur Stefánsson hefur leikið sinn síðasta landsleik fyrir Ísland. Ólafur hefur verið lykil-maður í landsliðinu allt frá því hann lék á sínu fyrsta stórmóti, heimsmeistara- mótinu sem fram fór á Íslandi árið 1995. Ólafur var fyrirliði landsliðsins sem lék til úrslita á Ólympíuleikunum í Peking og hann var einnig fyrirliði þegar liðið náði bronsverðlaunum á Evrópumeistara mótinu í Austur ríki árið 2010. Skarðið sem Ólafur skilur eftir verður erfitt að fylla enda er Ólafur af mörgum talinn vera einn besti handboltamaður allra tíma. Það voru fleiri stórir vendipunktar hjá íslenska handboltalandsliðinu á árinu 2012. Guðmundur Þórður Guðmundsson, þjálfari liðsins, hætti störfum að loknum Ólympíu- leikunum í London sl. sumar þar sem liðið var hársbreidd frá því að komast í undan- úrslit. Silfurverðlaunin á ÓL í Peking árið 2008 og brons verðlaunin á Evrópumeistara- mótinu í Austurríki árið 2010 standa upp úr á farsælum þjálfara ferli Guðmundar með íslenska karlalandsliðið. Undir hans stjórn setti liðið ný viðmið og braut niður hindranir sem höfðu áður staðið í vegi. Aron Kristjánsson tók við af Guðmundi og þar kemur til sögunnar ungur þjálfari sem sækir reynslu sína og hugmynda- fræði frá Danmörku. Aron lék um árabil með danska liðinu Skjern þar sem Anders Dahl-Nielsen var þjálfari. Nýtt upphaf bíður því íslenska handboltalandsliðsins á næsta stórmóti þegar heimsmeistara mótið hefst á Spáni 11. janúar á næsta ári. Nýr þjálfari og Ólafur Stefánsson ekki til staðar. Kvennalandsliðið í handknattleik komst „bakdyramegin“ inn í úrslitakeppni Evrópu- meistaramótsins sem fram fór í Serbíu í des- ember á þessu ári. Ísland náði ekki að landa sigri á EM, líkt og á Evrópumeistaramótinu í Danmörku árið 2010. Kjarni liðsins er ungur og liðið á framtíðina fyrir sér og er líklegt til þess að halda uppi merkjum Íslands á stór- mótum í framtíðinni. Ótrúleg sigurganga hjá Kiel Handknattleiksþjálfarinn Alfreð Gíslason náði ótrúlegum árangri með þýska liðið Kiel á árinu 2012. Undir hans stjórn vann Kiel alla 34 leiki sína í deildarkeppninni sem er einsdæmi í sögu þýsku deildar keppninnar. Kiel varð einnig bikarmeistari og fór þar ósigrað í gegnum tímabilið. Loks hampaði liðið Evrópumeistaratitlinum í lok maí með 26-21 sigri gegn spænska liðinu Atleticó Madríd. Þetta var í þriðja sinn sem Alfreð nær þessum titli sem þjálfari, í annað sinn hjá Kiel en Magdeburg varð Evrópu meistari undir hans stjórn árið 2002. Árangur Alfreðs með lið Kiel á leiktíðinni 2011-2012 verður seint leikinn eftir og í þessu liði lék lands- liðsmaðurinn Aron Pálmars- son stórt hlutverk. Íslenskir handbolta- þjálfarar hafa sett mark sitt á þýska handbolt- ann á undanförnum misserum og þar fara Alfreð, Guðmundur Þ. Guðmundsson og Dagur Sigurðar son fremstir í flokki. Það er tekið eftir árangri þeirra og ekki síst í ljósi þeirrar staðreynd- ar að þeir koma allir frá „litla“ Íslandi. Íslensk- ir þjálfarar eru vel að sér í fag- inu og hafa náð tökum á viðfangs- efninu með mikilli þekkingu, reynslu, elju og vinnusemi. Ekki má gleyma árangri norska kvenna- landsliðsins í þessu samhengi undir stjórn Þóris Hergeirssonar. Liðið fékk silfur- verðlaun á Evrópumeistaramótinu sem lauk í desember eftir að hafa unnið Ólympíu- meistaratitilinn í London í sumar. Markamet og nýtt afl Lars Lagerbäck, þjálfari A-landsliðs Íslands í knattspyrnu, er með stórskemmtilegt lið í höndunum sem gæti á næstu árum skrifað nýja kafla í knattspyrnusögu Íslands. Það eru bundnar miklar vonir við Lagerbäck og að honum takist með reynslu sinni og þekk- ingu að koma liðinu á hærri stall. Kjarni íslenska A-landsliðsins er fyrsta kynslóð leikmanna sem hefur alist upp við betri æfingaaðstöðu en aðrar kynslóðir áttu kost á. Og fyrr eða síðar mun Ísland ná alla leið í úrslit á stórmóti. Til þess þarf Ísland að eiga sex til sjö leikmenn sem ná á sama tíma á þann stall sem Eiður Smári Guðjohnsen náði á sínum tíma sem leikmaður Chelsea og Barcelona. Einn af vendipunktum ársins 2012 er sú staðreynd að fjölmargir landsliðsmenn voru „sjóðheitir“ með liðum sínum víðs vegar um Evrópu. Alfreð Finnbogason hjá hollenska liðinu Heereven fór þar fremstur í flokki og skoraði 34 mörk í 48 leikjum, þar af 32 mörk í 42 leikjum fyrir félagslið. Þar með bætti hann 33 ára gamalt markamet Péturs Péturssonar sem skoraði 32 mörk í 45 leikjum árið 1979. Hér á Íslandi náði Tryggvi Guð- mundsson að skrifa nýjan kafla í knattspyrnusöguna. Tryggvi bætti markamet sem Ingi Björn Albertsson hafði átt frá árinu 1987 þegar hann skorað sitt 126. mark í efstu deild. Tryggvi bætti markametið í 3-1 sigri ÍBV á Hásteinsvelli með skoti beint úr auka- spyrnu og þar með hafði hann skorað sitt 127. mark í efstu deild á ferl- inum. Alls hefur Tryggvi skorað 129 mörk í efstu deild á Íslandi. Met Tryggva er merkilegt fyrir þær sakir að hann lék í sjö ár sem atvinnu maður í Skandinavíu á hápunkti ferilsins. Kvennalið Þórs/KA náði að breyta valda- jafnvæginu í íslenskum kvennafótbolta á síð- asta tímabili. Akureyrarliðið landaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í efstu deild í kvennaflokki. Stjarnan úr Garðabæ hafði árið áður rofið margra ára sigurgöngu Vals sem hafði fagnað þessum titli í sex skipti á sjö ára tímabili. Meistara titill Þórs/KA er að mínu mati einn af stóru vendi punktum íþrótta ársins 2012 og ljóst að bætt æfinga- aðstaða liða á lands byggðinni skilar árangri. Kvennalandsliðið í fótbolta náði þeim frábæra árangri að tryggja sér keppnis- rétt í úrslitakeppni Evrópumeistaramóts- ins sem fram fer í Svíþjóð næsta sumar. Þetta er í annað sinn sem Ísland er á meðal þeirra þjóða sem leika í lokakeppni EM en ísinn var brotinn árið 2009 þegar Ísland komst í fyrsta sinn á EM. Árangur Íslands hefur vakið athygli og liðið hefur skipað sér í fremstu röð í Evrópu þar sem liðið er í 15. sæti á FIFA-stigalistanum. Auðunn sterkur á HM Kraftlyftingamaðurinn Auðunn Jónsson náði frábærum árangri á heimsmeistara- mótinu sem fram fór í Suður-Ameríku í nóvember. Hann setti heimsmet í réttstöðu- lyftu þegar hann lyfti 361,5 kg. Auðunn, sem keppir fyrir Breiðablik, endaði í áttunda sæti í heildar keppninni. Haraldur Franklín Magnús, afrekskylf- ingur úr Golfklúbbi Reykjavíkur, náði eftir- tektarverðum árangri á árinu 2012. Har- aldur Franklín sigraði á Íslandsmótinu í holukeppni sem fram fór á Leirdals velli hjá GKG og hann bætti um betur þegar hann fagnaði sigri á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fór á Hellu. Þar með lauk 27 ára bið GR eftir Íslandsmeistara í höggleik í karlaflokki en Sigurður Pétursson landaði þeim titli síð- ast fyrir GR árið 1985. Evrópumeistaratitill kvennalandsliðsins í hópfimleikum var einn af hápunktum íþróttaársins. Og það er ljóst að Ísland skip- ar sér í fremstu röð í ört vaxandi íþrótta- grein. Hópfimleikar eru að verða fjölmenn- asta íþróttagreinin sem stunduð er af konum hér á landi – og framtíðin er björt þar á bæ. Að lokum vil ég minnast á þá staðreynd að Körfuknattleiks samband Íslands sendi A- landslið í karla- og kvennaflokki til keppni á ný eftir tveggja ára hlé. Á sínum tíma tók KKÍ þá ákvörðun að senda ekki A-landsliðin til keppni vegna fjárskorts. Það er umhugs- unarefni að þátttaka landsliða sé undir því komið að forsvarsmenn sér sambands nái að landa stórum styrktarsamningum við einka- fyrirtæki. Fjárhagslegur stuðningur frá hinu opinbera við íslenskt afreksfólk í íþrótt- um hefur lítið breyst þrátt fyrir að skref hafi verið tekin í rétta átt. Á því sviði er enn verk að vinna og kannski verður árið 2013 lykilár í því samhengi. ➜ Ólafur Stefánsson hefur leikið sinn síðasta leik með íslenska lands liðinu í handknatt- leik. Stór- skyttan hefur verið ein styrkasta stoðin í landsliðinu allt frá því hann hóf að leika fyrir Íslands hönd á HM sem fram fór á Íslandi árið 1995. Nýtt upphaf án Ólafs Stefánssonar Handknattleiksmaðurinn Ólafur Stefánsson lék sinn síðasta leik fyrir Íslands hönd og skarð hans verður erfitt að fylla. Ótrúleg sigurganga hjá þýska liðinu Kiel undir stjórn Alfreðs Gíslasonar. Jón Margeir Sverrisson og Ásdís Hjálmsdóttir með snilldartakta á ÓL í London. Auðunn sterkur á HM. Ísland hefur skipað sér fremstu röð í hópfimleikum kvenna. ÍÞRÓTTAVENDIPUNKTAR 2012 ➜ Jón og Ásdís fóru á kostum Árangur íslenskra íþróttamanna á Ólympíuleikunum í London í sumar var með ágætum. Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni komst í úrslit í spjótkasti kvenna. Hún bætti þar sitt eigið Íslandsmet í undankeppninni þar sem Ásdís var í áttunda sæti inn í úrslitin með kasti uppi á 62,77 metra. Hún varð síðan í ellefta sæti í lokakeppninni. Kári Steinn Karlsson úr Breiðabliki varð fyrsti Íslendingurinn til þess að ljúka keppni í maraþonhlaupi á Ólympíuleikum, en hann varð í 42. sæti í hlaupinu í London, sem verður að teljast góður árangur í fyrstu tilraun Kára á þessu stóra sviði. Aldrei áður hefur íslenskur karl- maður keppt í maraþonhlaupi á ÓL en Martha Ernstdóttir keppti í kvennaflokki á ÓL í Sydney árið 2000. Badmintonkonan Ragna Ingólfsdóttir lék sinn síðasta leik á farsælum ferli á ÓL í London. Ragna tapaði naumlega í eftirminnilegum leik gegn Jie Yao frá Hollandi í riðlakeppninni og komst þar með ekki upp úr riðlinum. Einn af vendipunktum íþróttaársins 2012 var sá að Ragna vakti athygli á þeirri stöðu sem íslenskir afreksíþróttamenn glíma við þegar kemur að fjárhags- legum stuðningi frá íslenska ríkinu. Þar vakti Ragna m.a. athygli á því að hún væri ekki með nein réttindi eins og annað launafólk eftir að ferli hennar var lokið. Jón Margeir Sverrisson, sundmaður úr Fjölni, fór á kostum á Ólympíumóti fatlaðra sem fram fór í London að loknum Ólympíuleikunum. Jón Margeir sigraði í 200 metra skriðsundi þar sem hann setti heims- og Ólympíumótsmet í flokki S14 í keppni þroskahamlaðra. Alls setti Jón Margeir þrjú heimsmet á árinu 2012 og fjölda Íslandsmeta. Sundmaðurinn hefur sett sér ný markmið fyrir næstu fjögur árin. Hann ætlar sér að ná Ólympíulágmarkinu í 1.500 metra skriðsundi í keppni ófatlaðra fyrir leikana sem fram fara í Brasilíu árið 2016.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.