Fréttablaðið - 29.12.2012, Blaðsíða 36
KYNNING − AUGLÝSINGLíkamsrækt & næring LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 20124
Það er ekki gefið, ætli fólk sér að
eignast barn, að það heppnist í
fyrstu tilraun. Sumir þurfa að leita
sér læknisaðstoðar og enn aðrir
gætu þurft að íhuga ættleiðingu.
Þeir sem ekki þurfa að leita á náðir
lækna eða ættleiðinga ættu þó að
hafa ýmislegt í huga.
Það vill oft gleymast að orsök
getnaðarvandamála skiptist
nokkuð jafnt á milli kynjanna þótt oftast sé lögð áhersla á konur í þeim
efnum. Tiltölulega einfalt er að láta mæla gæði og magn sæðis hjá karl-
inum ef getnaður gengur illa. Ýmislegt getur haft áhrif á sæðið og gæði
þess. Til dæmis geta reykingar dregið úr frjósemi og mikil drykkja getur
einnig haft áhrif. Framleiðsla sæðis fer fram rétt undir eðlilegum líkams-
hita svo allt það sem heldur miklum hita á pungsvæðinu getur valdið því
að sáðfrumur verða slappari. Heit böð, sturtur, gufuböð og þröngar buxur
skal því forðast. Þá getur streita haft áhrif á hormónaframleiðslu og þar
með sæðisframleiðslu.
Hollt mataræði, regluleg hreyfing og nægur svefn stuðla að betri líðan og
draga úr stressi. Fólínsýra og sink hafa góð áhrif á sæðisframleiðsluna og
mælt með að þau séu tekin fyrir og á meðan getnaðartilraunum stendur.
Þroskaferill sáðfruma er um þrír mánuðir svo það sem gert er til að auka
og bæta sæðisframleiðslu mun að öllum líkindum ekki skila sér fyrr en að
nokkrum mánuðum liðnum.
BETRA SÆÐI MEÐ HEILBRIGÐUM LÍFSSTÍL
Frískandi gúrku- og perusjeik
1 gúrka
2 perur
2 bollar spínat
½ bolli vatn eða klaki
Allt í blandara og maukað vel.
Agúrka er rík af C-vítamíni.
Hún inniheldur einnig A-vít-
amín, fólínsýru og magnesín.
Þá er hún trefjarík og þykir hafa
góð áhrif á húðina.
Spínat inniheldur A-, C-, E- og
K-vítamín, magnesín, mangan,
fólat, járn, B2- og B6-vítamín og
kalk.
Uppskriftin er fengin af www.
incrediblesmoothies.com.
Silkimjúkur sjeik úr lárperu
1 lárpera
1 banana
½ bolli létt grísk jógúrt
1½ bolli nýkreistur appelsínusafi
¼ bolli hunang
2½ bolli klaki
Allt sett í blandara og maukað þar til
það verður silkimjúkt.
Lárpera inniheldur mikið af
einómettuðum fitusýrum, kal-
íni, járni og fosfór. Það er einnig
mjög trefjaríkt.
Bananar eru uppspretta A-, B- og
E-vítamína og innihalda mikið
af steinefnum eins og fosfór,
járni, kalki og sinki.
Uppskriftin er fengin af www.
marthastewart.com
Tveir grænir og góðir
Mér fannst allt gott, hafði enga stjórn á skammta-stærðum og borðaði yfir-
leitt þar til ég stóð á gati,“ út skýrir
Sólveig um holdafar sitt, sem var
komið að hættumörkum þegar hún
ákvað að snúa við blaðinu og endur-
heimta sjálfa sig úr viðjum offitu.
„Þá fór ég á námskeiðið Heilsu-
lausnir fyrir fólk með offitutengda
sjúkdóma. Ég var sem betur fer ekki
svo illa stödd en farin að óttast um
heilsu mína og langaði ekki að lifa
svo illa á mig komin lengur,“ segir
Sólveig sem vildi læra að borða rétt
og lifa í sátt við sjálfa sig.
„Þrek mitt var ekkert orðið og
mig langaði ekki að taka þátt í neinu
svona útlítandi. Þegar ég fór að ná
árangri, léttast og líða betur hugs-
aði ég tíðum hví í ósköpunum ég
hefði ekki tekið í taumana fyrr. Ég
hafði ekki gert mér grein fyrir að ég
væri að missa af lífinu og get ég ekki
ímyndað mér hvernig lífið væri nú
hefði ég ekki farið í Heilsuborg.“
Sólveig segir helstu kosti Heilsu-
borgar vera framúrskarandi og
velviljað fagfólk og að þar æfi fólk
sem sé í sömu sporum. „Ég byrj-
aði á skyldumætingu þrisvar í viku
en eftir mánuð vildi ég koma oftar
og æfi nú sex daga vikunnar. Ég
fór meira að segja á aðfangadag og
hefði skellt upp úr fyrir ári hefði mér
verið sagt að ég ætti eftir að vera í
leikfimi á sjálfum jólunum.“
Fyrir áratug greindist Sólveig
með MS-sjúkdóminn og hefur
stundum þurft að vera í hjólastól.
„Í dag lifi ég í sátt og samlyndi við
sjúkdóminn og lít á hann sem vin
sem ég get stjórnað í stað óvinar
sem réðst reglulega á mig. Vegna
betra líkamsforms og mataræðis
er MS-þreytan nánast farin og mér
hefur aldrei liðið betur,“ segir Sól-
veig, sem einnig heldur niðri rós-
roða eftir að hún breytti um lífsstíl.
„Að breyta um mataræði er mikil
vinna í fyrstu og ég hef reynt að boð
og bönn virka ekki. Nú elda ég allan
mat frá grunni úr fersku hráefni og
hef loks lært að nýta garðinn undir
grænmetis- og kryddjurtarækt. Ég
hætti að vera svöng þegar ég lærði
að borða reglulega og langar sjaldn-
ast í nammi því mér líður svo vel að
borða rétt,“ segir Sólveig.
„Sjálfstraust mitt hefur aukist og
ég finn mun á framkomu annarra
eftir að ég léttist. Mig langar að
missa átján kíló til viðbótar og veit
að mér mun takast það í Heilsuborg.
Þar eru englar að verki.“
Englar í Heilsuborg
Sólveig Sigurðardóttir skráði sig á námskeið í Heilsuborg í mars síðastliðnum.
Síðan hefur hún misst 32 kíló og náð undraverðum tökum á MS-sjúkdómnum.
Sólveig hefur fjórum sinnum þurft að minnka giftingarhring sinn eftir að kílóin fóru að
hrynja á árinu og einnig þurft að kaupa sér nýja skó og fatnað í mun smærri stærðum.
MYND/VALLI
Ætlar þú að breyta um
lífsstíl?
Heilsulausnir henta ein
sem glíma við offitu, h
og/eða sykursýki.
Hefst 21. janúar.
Kynningarfundur
fimmtud. 10. janúar kl.
Allir velkomnir
• Mán., mið. og fös. kl. 6:20, 10
14:00 eða 19:30
• Verð kr. 16.900 pr. mán í 12 m
• Fræðsla, einstaklingsviðtöl, að
og stuðningur.
• Skráning í síma 560 1010 eð
mottaka@heilsuborg.is
Að námskeiðinu standa m.a.
hjúkrunarfræðingur, íþróttafræðingar,
læknir, næringarfræðingur,
sálfræðingar og sjúkraþjálfari.
„Ég var búin að taka eftir auglýsingum frá
Heilsuborg í þó nokkurn tíma og var búin að vera
að hugsa lengi um að fara að gera eitthvað í
mínum málum. Ég hef náð góðum árangri, náð að
losna við mörg kíló og er bara svo miklu hressari
og með miklu meiri orku. Maður verður að vilja
gera þetta fyrir sig sjálfan. Þetta snýst ekki um það
að megra sig þetta snýst um að lifa heilbrigðara lífi
og koma sér í gott líkamlegt og andlegt form.“
Helga
Einarsdóttir
staklingum
jartasjúkdóma
17:30
:00,
án.
hald
a á