Fréttablaðið - 29.12.2012, Blaðsíða 22
29. desember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 22
ÞÆR ÞÓTTU EINNIG VEL KLÆDDAR
Ása Ottesen
eigandi Lakkalakk tískuverslunar
Pétur Marteinsson
eigandi Kex hostel
Inga Kristrún Gottskálksdóttir
innkaupastjóri hjá Sævari Karli
Hrefna Rósa Sætran
kokkur
Júlía Margrét Alexandersdóttir
blaðamaður hjá Morgunblaðinu
Þórunn Elísabet Bogadóttir
blaðamaður hjá Fréttablaðinu
Helgi Ómarsson
ljósmyndari og bloggari á Trendnet
Elísabet Gunnarsdóttir
tískubloggari á Trendnet
Sindri Sindrason
aðstoðarritstjóri á Ísland í dag/Stöð 2
Guðlaug Elísa Einarsdóttir
eigandi tískuvöruverslunarinnar Suzie Q
➜ Álitsgjafar
Svala Björgvins hressir með
reglulegu millibili upp á stíl sinn
svo að það er alltaf spennandi að sjá
henni bregða fyrir, bara til að verða
þess vísari hverju hún hefur tekið
upp á frá því síðast. Svala er aldrei
afkáraleg í sínum endurfæðingum
heldur en gerir samt alltaf smá
dyraat með múnderingunum sínum
þannig að maður verður
hreinlega að stoppa og horfa.
Júlía Margrét Alexandersdóttir
Svala er eitt stórt VÁ!
Svo óútreiknanleg og kemur
manni sífellt á óvart. Mjög djörf,
áberandi og mikill töffari, það er
erfitt að stara ekki á hana hvort
sem hún er að performa eða kaupa
sér mat einhvers staðar. Hef held
ég bara aldrei séð hana púkalega.
Guðlaug Elísa Einarsdóttir
Íslenskar konur eru meðvitaðar
um tískustrauma og fylgja
þeim gjarnan eftir. Svala er mikil
fashionista án þess að elta endilega
nýjustu línur hátískuhönnuðanna.
Með sérstakan, áberandi og 100%
sinn stíl sem að heillar augað.
Helgi Ómarsson
Guðmundur, eru karlmenn farnir að sýna
tísku meiri áhuga en áður?
Guðmundur: Já, það held ég.
Svala: Eru strákar ekki líka meira að pæla
í því að líta vel út? Ég meina, þá langar að
líta vel út?
Guðmundur: Það er ný kynslóð af körlum
að stíga fram núna. Maður hefur fengið
það á tilfinninguna að „flíspeysukörlunum“
þyki hallærislegt að pæla í tísku og vilji
bara pæla í bílum. Það er eitthvað að breyt-
ast núna.
Svala, er mikill munur á tískunni í Los
Angeles og hér á Íslandi?
Svala: Bara af því að veðrið er öðruvísi.
Fólk úti klæðir sig auðvitað í litríkari og
léttari föt en Íslendingar því það er sól
þar allan ársins hring. En mér finnst fólk
á Íslandi miklu smartara. Auðvitað er til
smart fólk úti, og þá meina ég fólk sem
mér persónulega þykir smart, en meiri-
hlutinn klæðist of stuttum kjólum og er
með of stór brjóst. Mér finnst ég sjá meira
af „unique“ fólki hér, fólk sem tjáir sig með
fötum.
Hvað að ykkar mati er algjört „fashion
faux pas“?
Svala: Ég verð að segja kameltá. Kona með
kameltá er eitthvað svo hlægilegt og slæmt
á sama tíma.
En þú, Guðmundur?
Guðmundur: Þetta rokkar svo mikið.
Svala: Nákvæmlega. Þetta er erfið spurn-
ing.
Guðmundur: Maður gæti nefnt Crocs-skó,
en svo gæti vel verið að ég verði kominn í
þá eftir nokkur ár og þótt þeir frábærir.
Svala: Crocs-skór eru reyndar rosalega
slæmir. En svo gæti vel verið að Crocs-
skór verði orðnir „vintage“ eftir fimmtán
ár og þyki þá mjög kúl.
Guðmundur: Hvað ætli það sé langt síðan
einhver svaraði þessu og nefndi útvíðar
buxur?
Svala: Nákvæmlega. Nú er ég komin í
útvíðar „tie dye“ buxur sem ég hefði ekki
gert fyrir tíu árum síðan.
Hvaða stórstjarna þykir ykkur með ein-
dæmum ósmekkleg?
Svala: Mariah Carey. Hún er alltaf í kjól-
um sem eru fjórum númerum of litlir. Það
er hræðilegt.
Guðmundur: Þetta er erfitt. Mig langar að
nefna karlmann en dettur ekkert í hug.
Hverjum úr tískuheiminum, lífs eða liðn-
um, mynduð þið vilja setjast niður með og
ræða málin við? Um hvað mynduð þið tala?
Guðmundur: Ég mundi setjast niður með
Alexander McQueen og ræða um herra-
fatnað við hann. Hann er uppáhaldshönn-
uðurinn minn.
Svala: Ég mundi segja Halston, hann er
einn af mínum uppáhaldshönnuðum, en er
löngu látinn. Hann tók efni og gerði ein-
staka kjóla með bara einum saum og ég
væri til í að tala við hann um „tricks of the
trade“ og heyra allar sögurnar frá Studio
54 og diskótímabilinu.
Hvernig sjáið þið ykkur fyrir ykkur sem
gamalt fólk? Ætlið þið að halda í sama stíl-
inn?
Svala: Ég ætla alveg að vera með síða, ljósa
hárið og í hælum áfram. Ég ætla að halda
áfram að vera frumleg í klæðaburði alveg
þar til ég dey. Ég á ömmu sem er svoleiðis
og hún er svakalega flott. Ég tek hana mér
til fyrirmyndar. Ég er alltaf að gefa henni
föt úr Spútnik og hún er alveg ótrúlega kúl.
Guðmundur: Ég ætla bara að vera í ein-
hverjum massífum Karl Lagerfeld-fíling
með tagl, Diet Coke-þjón og sólgleraugu.
Og bara tala frönsku.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hugrún
Árnadóttir
KronKron
Dorrit
Moussaieff
forsetafrú
Elísabet Alma
Svendsen
stílisti
Tinna
Bergs
fyrirsæta
Ragnhildur
Gísladóttir
söngkona
Elísabet
Gunnarsdóttir
tískubloggari
Kolbrún
Björgólfsdóttir
hönnuður
Kolfinna
Kristófersdóttir
fyrirsæta
Elínrós
Líndal
eigandi Ellu