Fréttablaðið - 29.12.2012, Blaðsíða 45
KYNNING − AUGLÝSING Líkamsrækt & næring29. DESEMBER 2012 LAUGARDAGUR 5
Boot Camp-líkamsræktarstöðin stend-ur mitt í einni fegurstu náttúruperlu Reykjavíkur og býður því upp á ein-
stakar aðstæður til hreyfingar í heilnæmu
útilofti og náttúru.
„Elliðaárdalurinn er útivistarparadís
og við hjá Boot Camp og CrossFit-stöðinni
höfum kortlagt hann í þaula til að nýta sem
best undir fjölbreyttar æfingar,“ segir Arn-
aldur Birgir.
„Við bjóðum námskeið við allra hæfi í
Boot Camp og CrossFit. Má þar nefna Boot
Camp-Grænjaxla, sem er tilvalið námskeið
fyrir þá sem hafa litla reynslu af líkamsrækt
eða vilja fara rólega af stað. Námskeiðið er
góður grunnur til að koma sér af stað eftir
langa fjarveru frá æfingum. Yfirferð er öll
hægari en í almennum Boot Camp-tímum
en stemningin er engu að síður mikil og
góð,“ útskýrir Arnaldur um Grænjaxla-
námskeiðin.
Arnaldur nefnir einnig námskeiðið Boot
Camp-Skæruliðar sem er sérsniðið fyrir
börn og unglinga.
„Skæruliðar taka þátt í skemmtilegum
leikjum og æfingum sem auka styrk og þol.
Námskeiðið er aldursskipt og allir geta verið
með, óháð líkamlegu formi. Lögð er áhersla
á að allir læri að gera æfingarnar rétt og vel
og komi sér upp grunni að góðu alhliða
formi. Fyrir þá sem hafa ekki tök á að heim-
sækja okkur í dalinn bjóðum við einnig upp
á Boot Camp-fjarþjálfun svo nú duga engar
afsakanir fyrir því að vera ekki með,“ segir
Arnaldur brosandi.
Aukið aðhald og markmiðasetning
Að sögn Arnaldar þjóna Boot Camp- og
CrossFit-líkamsræktarkerfin einstakling-
um með ólík markmið, óháð aldri, kyni og
líkamsformi.
„Margir koma til að léttast og hafa haft
árangur sem erfiði en einnig vilja marg-
ir þyngja sig og styrkja,“ upplýsir Arnaldur.
„Hjá okkur er enginn tími eins og við
tryggjum að heimsókn í líkamsræktina sé
skemmtileg. Við höfum trú á að árangur
haldist í hendur við nýja ögrun og áskor-
anir því annars er auðvelt að festast í sama
farinu og þá verður stutt í leiðann.“
Í byrjun vetrar tók Boot Camp í notkun
nýtt mælingartæki sem gefur nákvæmar
upplýsingar um líkamsform.
„Tækið mælir ytri og innri fitu, vöðva-
massa og beinmassa auk þess að veita nán-
ari upplýsingar sem viðskiptavinir geta nýtt
sér til markmiðasetningar í líkamsrækt þar
sem við tengjum saman hreyfingu og heil-
brigt mataræði.“
Skynsemi að leiðarljósi
Arnaldur tekur fram að bættur lífsstíll náist
ekki með offorsi.
„Lykill að árangri felst í heilbrigðri skyn-
semi og raunhæfum markmiðum. Leiðin
til betra lífs er langhlaup og árangur skyldi
ávallt hugsa til langs tíma. Hann kemur þó
vissulega fram um leið og fólk sýnir aðhald
og fer eftir fyrirmælum þjálfara en úthald
dvín fljótt ef farið er of geyst af stað og oft
er gott að hafa gæði umfram magn í huga.“
Arnaldur segir rétt mataræði stóran hluta
af góðum árangri.
„Þar gilda þó engar öfgar. Flestir eru upp-
lýstir um hollt mataræði og vita hvað má og
má ekki til að öðlast hraustan og heilbrigð-
an líkama. Allt felst það í jafnvægi reglu-
bundinnar hreyfingar og hollu fæðuvali í
réttu magni, meira af grænmeti og ávöxt-
um og því að forðast það sem óhollt er.“
Alltaf gaman í ræktinni
Við flutning Boot Camp í Elliðaárdal síðast-
liðið sumar stækkaði stöðin úr 700 í 1.200
fermetra.
„Þar með batnaði aðstaðan til muna og
námskeiðum fjölgaði. Má þar nefna hlaupa-
námskeið, þríþrautarnámskeið og með-
gönguleikfimi auk stærri og betri tækja-
sals. Þá opnuðum við einnig barnagæsl-
una Skaraskóg sem hefur vakið mikla
lukku jafnt hjá börnum sem fullorðnum.
Afgreiðslan okkar er ein sú allra flottasta á
landinu og þar er hægt að gæða sér á hollum
og bragðgóðum veitingum,“ segir Arnaldur.
„Elliðaárdalur hefur mikið aðdráttar-
afl og í sumar þegar fámenni var á flest-
um líkamsræktar stöðvum var allt á haus
hér því töfrar dalsins drógu fólkið að sér.
Þar er dýrðlegt að stunda hreyfingu af öllu
tagi, jafnt vetur, sumar, vor og haust. Sú
staðreynd gerir stöðina einstaka í sinni röð
og ómetanlegt að geta valið um að hreyfa
sig inni við fyrsta flokks aðstæður eða úti
í náttúrunni. Hingað er líka stutt að hjóla
og skemmtilegar hjólaleiðir liggja að stöð-
inni alls staðar að,“ segir Arnaldur og hvet-
ur sem flesta til að heimsækja Boot Camp í
Elliðaárdalinn.
„Ný námskeið hefjast í stöðinni 7. janúar
og er skráning hafin. Öllum kortum fylgir
frítt jóga, hlaupatímar og ráðgjöf ásamt
líkams mælingu.“
Allar nánari upplýsingar í síma 517-6070, á
www.bootcamp.is og www.crossfitstodin.is.
Fjölbreyttar æfingar
í frábæru umhverfi
Nýju ári fylgja ný tækifæri til að aðhyllast heilbrigðan lífsstíl. Arnaldur Birgir Konráðsson, þjálfari og
framkvæmdastjóri Boot Camp í Elliðaárdal, segir mikilvægt að fara rólega af stað og nálgast markmið
sín af skynsemi. Boot Camp leggur áherslu á nýjar áskoranir og fjölbreytni á námskeiðum sínum.
Arnaldur Birgir Konráðsson er þjálfari og fram-
kvæmdastjóri Boot Camp í Elliðaárdal. MYNDIR/ANTON