Fréttablaðið - 29.12.2012, Blaðsíða 20
29. desember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 20
Guðmundur Jörundsson fata-hönnuður og Svala Björgvins-dóttir söngkona voru kosin best klædda fólk landsins árið 2012. Guðmundur hefur gert það gott undanfarið með herrafatalínum
sínum, en hann hannar bæði fyrir Kormák
& Skjöld og eigin línu, G Jör. Svala er búsett
í Los Angeles, þar sem hún sinnir tónlistinni
af fullum móð ásamt hljómsveitinni Steed
Lord.
Er góður stíll meðfæddur eða lærður?
Svala: Ég held að hann sé bæði meðfæddur
og lærður. Annaðhvort hefur maður áhuga
eða ekki. Ég hef haft áhuga á tísku alveg frá
því ég var lítil og svo eftir því sem maður
verður eldri áttar maður sig betur á því hvað
fer manni vel og það hefur áhrif líka.
Guðmundur: Ég mundi kalla þetta áunninn
sjúkdóm. Ég pældi ekki mikið í tísku fyrr
en ég var komin á menntaskólaaldur. Þetta
byrjaði líklega sem áhugi á hinu sjónræna
og þróaðist út í þetta.
Ef þið ættuð að nefna þann sem ykkur þykir
best klæddur, hver væri það?
Svala: Catherine Baba! Hún er ástralskur
stílisti, búsett í París. Hún er guðdómleg,
finnst mér.
Guðmundur: Ég segi Hrafnhildur Hólm-
geirsdóttir.
Svala: Hún er mjög flott.
Guðmundur: Hún verður rosalega glöð með
þetta.
Hvaða flík heillar ykkur mest? Hvað endið
þið oftast á að kaupa?
Svala: Peysur. Ég er rosalega hrifin af öllu
úr garni og enda alltaf á því að kaupa mér
peysur. Núna bý ég samt í Los Angeles þar
sem er alltaf gott veður og get því aldrei
verið í þeim. En já, ég elska peysur og því
litríkari sem þær eru, því betra.
Guðmundur: Ætli ég kaupi ekki mest af
skyrtum, jökkum og svo hálstaui.
Sara
McMahon
sara@frettabladid.is
TÍSKUÁHUGINN
ER ÁUNNINN
SJÚKDÓMUR
Guðmundur Jörundsson og Svala Björgvinsdóttir
eru best klædda fólk ársins sem er að líða. Svala er búsett í
Los Angeles þar sem litagleðin er við völd en
Guðmundur hannar herrafatnað úr hnausþykku tvídefni.
Þau ræddu tískuáhuga sinn við Fréttablaðið.
Guðmundur Jörundsson
er fáránlega flottur. Stíllinn hans
er herramannslegur og tímalaus.
Ása Ottesen
Guðmundur Jörundsson
er alltaf eins og ný klipptur úr Mad
Men þætti, nema nútímalegri.
Mér finnst það flott lúkk.
Hrefna Rósa Sætran
Annaðhvort á leiðinni í veiði
eða á leiðinni í flottan gala dinner
sirka 1950– það er Gummi.
Mikið séntilmenni og smart.
Elísabet Gunnarsdóttir
ÞEIR ÞÓTTU EINNIG VEL KLÆDDIR
Förðun Hafsteinn Þór Guðjónsson Hár Ásgeir Hjartarson frá Hairbrush
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Stefán
Svan
verslunarstjóri
Björn Hlynur
Haraldsson
leikari
Gísli Marteinn
Baldursson
borgarfulltrúi
Jón
Gnarr
borgarstjóri
Jóel
Pálsson
tónlistarmaður
Þorbjörn
Þórðarson
fréttamaður
Egill
Ólafsson
tónlistarmaður
Baltasar
Kormákur
leikstjóri
Sævar
Markús
fatahönnuður