Fréttablaðið - 29.12.2012, Blaðsíða 38
FÓLK|
siður að koma brúðgumanum á óvart
uppi við altarið.
„Bónorðið kom upp sameiginlega
þegar við Óli ræddum um hjónabandið
og við fórum saman til að velja okkur
hringa, sem við settum upp í ágúst í
fyrrasumar. Brúðkaupsdagurinn var
ákveðinn eftir að við fórum í brúðkaup
vina okkar þennan sama dag í fyrra. Þá
þótti okkur jólahátíðin svo fallegur tími
fyrir brúðkaup og ákváðum að herma
eftir vinum okkar. Við erum enda bæði
jólabörn í hjörtum okkar og hæfir okkur
einkar vel að giftast um jól.“
Brúðkaupsveisla Jennýjar og Óla
verður haldin í Glersalnum og veislu-
gestir verða 130 talsins, enda stórar
fjölskyldur sem standa að þeim báðum.
„Það er góð og spennandi tilfinn-
ing að giftast. Ég finn fyrir fiðrildum í
maganum og held að ég verði skælbros-
andi allan tímann þótt stundinni fylgi
mikil geðshræring líka. Ég hlakka mjög
mikið til og á morgun ætlum við hjónin
í sumarbústað. Brúðkaupsferð til út-
landa bíður til vorsins.“
Þórsteinn Ragnarsson, prestur og
forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkur-
prófastsdæma, er föðurbróðir Jennýjar
og gefur þau Óla saman. Hann skírði
einnig börn þeirra tvö.
„Lárus Óli okkar er feiminn svo við
látum ráðast hvort hann verði í stuði til
að tölta upp að altarinu með hringana.
Annars verða þeir í vörslu prestsins
uns við setjum þá upp,“ segir Jenný.
Eins og Jenný segist Óli Hilmar aldrei
hafa verið í vafa um að þau Jenný væru
sköpuð fyrir hvort annað.
„Það var aldrei spurning í mínum
huga að Jenný væri sú rétta fyrir mig.
Hún er gullfalleg, einstök manneskja
og góður vinur. Við eigum vel saman
og vinnum mjög vel saman úr öllum
hlutum; erum samstíga og einhuga. Svo
hefur hún fætt mér tvö yndisleg börn
og frá fyrsta degi hef ég ekki velkst í
vafa um að Jenný Halla sé konan mín.“
■ thordis@365.is
■ FRAMHALD AF FORSÍÐU ÁSTARAUGNARÁÐ
Þórsteinn Ragnarsson,
prestur og forstjóri
Kirkjugarða Reykjavíkur-
prófastsdæma, er föður-
bróðir Jennýjar Höllu og
gefur þau Óla Hilmar
saman í dag. Hér eru
þau á æfingu í Dómkirkj-
unni í gær. Við hlið Þór-
steins stendur Lárus Óli,
fimm ára sonur Jennýjar
og Óla.
MYND/VILHELM
HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna
vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum
auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir Sverrisson,
sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427
■ EGGJAPÚNS FYRIR 4 - 6
4 eggjarauður
1/2 bolli sykur
2 bollar mjólk
2 negulnaglar
hnífsoddur kanill
1 bolli rjómi
1 tsk. múskat
1 tsk. vanillu extrakt
2 msk. romm eða bourbon-viskí
Þeytið eggjarauðurnar þar til þær
verða ljósar. Bætið sykri rólega út
í og hrærið á meðan þar til allt er
orðið ljóst og létt.
Blandið saman mjólk, negul-
nöglum, múskati og kanil í þykk-
botna pott og hitið hægt en látið
ekki sjóða. Blandið helmingnum
af heitri mjólkurblöndunni mjög
hægt út í eggjahræruna og þeytið
stöðugt á meðan. Hellið svo aftur
í pottinn. Hitið við miðlungshita
og hrærið stöðugt í með sleif
þar til blandan fer að þykkna en
látið ekki sjóða. Takið af hellunni
og blandið rjómanum út í. Sigtið
blönduna í könnu og látið kólna í
klukkutíma. Hrærið svo vanillu-
extraktið og rommið út í.
GÓÐUR DRYKKUR
Kampavín er ljúfur hátíðardrykkur
en hann hentar einnig ágætlega
í alls kyns blöndur sem gaman er
að bjóða gestum. Hægt er að nota
hina ýmsu líkjöra til að bragðbæta
kampavínið eða til að fá skraut-
legan lit á drykkinn. Hér eru
nokkrar hugmyndir.
MÍMÓSA
Jöfn hlutföll kampavíns og nýkreists
appelsínusafa.
KIR ROYALE
Kampavín og smávegis af kirsu-
berjalíkjör.
BELLINI
Tveir hlutar af kampavíni á móti
einum hluta af ferskjumauki (peach
puree). Ein steinlaus ferskja er
skorin í bita og soðin í örlitlu vatni í
nokkrar mínútur. Látið standa í vatn-
inu í 30 mínútur en maukið síðan í
matvinnsluvél. Hentar líka í Marga-
ritu, Daiquiri og Martini.
BLACK VELVET
Jöfn hlutföll kampavíns og bjórs
(stout).
BUBBLES ´N´BLUE
Jöfn hlutföll kampavíns og Hpnotiq
líkjörs (blár líkjör). Einnig hægt að
nota grænan líkjör ef drykkurinn á
að vera grænn.
PERFECT PEAR
Setjið ísmola í hristara og bætið
einum hluta vodka og einum hluta
perulíkjörs saman við. Hristið. Setjið
í glas og fyllið upp með kampavíni.
FRENCH 75
Setjið ísmola í hristara og bætið við
60 ml af gini, 1 msk. af sykri og 15 ml
af ferskum sítrónusafa. Hristið vel.
Hellið glasið hálft og bætið kampa-
víni við. Skreytið með sítrónusneið.
ÁRAMÓTAKOKKTEILAR
Það styttist í árið 2013 en margir fagna nýju ári
með góðum kampavínskokkteil.