Fréttablaðið - 29.12.2012, Blaðsíða 64
29. desember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 48
LEIKHÚS ★★★★ ★
Macbeth
Höfundur: William Shakespeare. Þýð-
andi: Þórarinn Eldjárn. Helstu hlutverk:
Björn Thors, Margrét Vilhjálmsdóttir,
Arnar Jónsson, Atli Rafn Sigurðarson,
Friðrik Friðriksson, Guðrún Snæfríður
Gísladóttir, Hilmir Jensson, Hilmir Snær
Guðnason, Jóhannes Haukur Jóhanns-
son, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pálmi
Gestsson, Saga Garðarsdóttir, Snorri
Engilbertsson, Vigdís Hrefna Pálsdóttir,
Þórunn Arna Kristjánsdóttir.
Leikstjóri: Benedict Andrews.
STÓRA SVIÐIÐ, ÞJÓÐLEIKHÚSINU
Frumsýning á einu merkasta verki
leikhúsbókmenntanna í Þjóðleik-
húsinu. Prúðbúið fólk fyllti sal-
inn og voru margir fullir kvíða
fyrir því sem koma skyldi. Ótt-
inn hvarf nú líklega fljótlega
því hinn heimsfrægi harmleik-
ur um Macbeth-hjónin fangaði
strax áhuga áhorfenda. Dunkan
konungur verðlaunar Macbeth
fyrir framgöngu hans á vígvell-
inum. Macbeth fréttir af þessari
nafnbót þegar hann hittir heldur
skringilegar kvenpersónur sem
segja honum frá þessu þá er hann
kemur úr stríði í fylgd vinar síns
Bankó.
Nornirnar á heiðinni voru hér
einhvers konar ruslasöfnunar-
kerlingar og ein þeirra líklega
strætishóra. Þær segja vinunum
frá því að nafnbætur Macbeths
verði fleiri og að hann verði einn-
ig konungur. Söguna þarf nú vart
að rekja hér enda svo oft sögð.
Þegar Lafðin fær bréfið um upp-
hefðina, les það og tjáir metnað
sinn fyrir hönd bóndans, máske
ein frægasta sena kvenpersónu
leikbókmenntanna, kynnumst við
fyrst þessari valdasjúku konu.
Margrét Vilhjálmsdóttir fer með
þetta fræga hlutverk á einstaklega
næman máta. Hún er ekki eins
og svo oft áður, uppskrúfuð eða
yfirdramatiseruð heldur mjög trú-
verðug ung kona sem lætur stjórn-
ast af metnaði og græðgi. Þegar
þau hjónin myrða næturgestinn,
konung Skotlands, til þess að sölsa
undir sig hásætið og neyðast svo
til þess að kála einnig vitnunum er
eins og þau fari saman upp í rússí-
bana með endastöð í glötun.
Leikurinn fór fram í leikmynd
er líktist helst kassa, tákn tómleik-
ans. Lýsingin einkenndist af ofur-
birtu eins og til að sýna að engir
skuggar eða skúmaskot gætu leynt
glæp þeirra. Björn Thors fer með
hlutverk Macbeths og skilaði því
vel hvernig brjálsemin stigmagn-
ast eftir því sem samviskan fram-
kallar sýnir og rænir hann svefni
og ró. Hér er brugðið á það ráð að
sýna myndbandsupptökur af skjá,
myndbandið tekið á staðnum og
verður þetta til þess að hægt er
að sýna andlit og nærmyndir eins
og í kvikmyndum. Þetta var smart
og áhrifaríkt en kannski aðeins of
mikið notað.
Pálmi Gestsson í fráhnepptri
fjallaúlpu með skakka skran-
kórónu á hausnum ljáði kjánaleg-
um einræðisherranum trúverðugt
líf. Hilmir Snær Guðnason var frá-
bær lifandi og dauður og bar fram-
sögn hans af. Það var reyndar svo-
lítið eins og bergmál í kassanum
þannig að nokkur af gull kornunum
heyrðust kannski ekki nógu vel.
Eitt eftirminnilegasta atriðið er
þegar veislan er haldin og Lafðin
kveikir kerti í fjarska og veislu-
borðinu er svo rennt inn á sviðið
og þar voru einnig búningarnir
mjög flottir. Í þessu atriði reynir
hún allt hvað hún getur til þess að
leyna og hylma yfir þá brjálsemi
sem heltekið hefur bónda hennar.
Hér er mikið úrvalslið leik-
ara og leikstjórnin mjög leikara-
miðuð. Það var hasar, það var blóð
sem rann, það voru hugdettur um
sjálfsfróun dyravarða, gjörnýting
inn- og útgöngumöguleika, börn
sem gáfu frá sér ýlfur og afhöggn-
ir hausar í plastpokum. Eitt atriði
var þó sérlega fallegt og unnið af
næmni og það var þegar hin unga
frú Macdöff, sem Vigdís Hrefna
Pálsdóttir lék, tyllir sér ásamt
ungum syni sínum á sviðsbrúnina
og þau spjalla um örlög föður
hans. Það sem einkenndi sýn-
inguna, fyrir utan hið nýtískulega
form með skírskotun í öll okkar
nútímastríð, var að þessar ungu
persónur, Macbeth-hjónin, voru
þannig upp máluð að auðvelt var
að finna til samkenndar með þeim.
Þýðing Þórarins Eldjárn var þjál
og fullkom lega skiljanleg. Það er
alveg sjálfsagt að hver kynslóð eða
uppsetning þýði sinn Shakespeare,
það verður bara að gæta þess að
snilldarverk Matthíasar Jochums-
sonar og Helga Hálfdánarsonar
hverfi ekki í gleymskunnar dá.
Elísabet Brekkan
NIÐURSTAÐA: Ágeng sýning og
skiljan leg sem áhugafólk um stríð,
frið og leikhús ættu ekki að láta
framhjá sér fara.
Blóðug valdafíkn
ÚTSAL
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND
HEFST í da
g í öllum
verslunum
Á
R
N
A
S
Y
N
IR