Fréttablaðið - 29.12.2012, Blaðsíða 8
29. desember 2012 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
SAMGÖNGUR Sjötíu og fimm ára
gömul kona á leið með strætó
frá Akureyri til Reykjavíkur á
fimmtudagskvöld var skilin eftir
í Staðarskála.
„Bíllinn átti að fara aftur af stað
fimm mínútur yfir hálf átta,“ segir
konan, sem heitir Sigrún Karls-
dóttir. Hún fór út og gekk í kring-
um húsið til að fullvissa sig um að
bíllinn væri farinn. „Og þegar ég
kom inn sá ég á klukkunni á veggn-
um að hún var fimm mínútur yfir
hálf.“
Inni bar Sigrún sig upp við
starfsfólk og aðra ferðalanga. Hún
hringdi líka í þjónustuborð Strætó
og fékk að vita að bíllinn væri kom-
inn upp á heiði og gæti ekki snúið
við. „Bílstjórinn bar því hins vegar
við að hann hefði flautað og beðið
svo smástund,“ hefur Sigrún eftir
starfsfólki þjónustuborðsins. „Í
Staðarskála sagði starfsfólkið mér
hins vegar að ég gæti ekki heyrt
inn þó að hann væri að flauta úti,“
bætir hún við og segir að ólíkt
betra vinnulag væri að skjótast inn
og kalla upp til
farþega að bíll-
inn væri að fara.
E f t i r u m
klukkutíma í
Staðarskála
fékk Sigrún far
til Reykjavíkur
með flutninga-
bíl en hafði um
miðjan dag í
gær ekki enn fengið farangurinn
sem var í strætisvagninum. Hún
hafði þá þegar um morguninn farið
eina ferð til Hópbíla í Hafnarfirði
sem annast aksturinn á leiðinni.
„En þá kom í ljós að þetta hafði
ekki náðst úr bílnum,“ sagði hún
og beið enn eftir símtali frá fyr-
irtækinu um hvenær hún mætti
reyna aftur. „Þarna eru til dæmis
lyf sem ég þarf að taka.“ Auk þess
væru í farangrinum skartgripir
og annað sem henni sé sárt um, en
hafi eðlilega haft með sér í jóla-
heimsókninni norður.
„Mér finnst ósvífið að ganga
ekki úr skugga um að ég væri
þarna í bílnum og gera einhverjar
ráðstafanir með það,“ segir Sig-
rún og kveðst sakna þess að hafa
ekki fengið eina einustu afsökunar-
beiðni frá Strætó. „Það er nú það
minnsta sem hægt væri að gera.
En ég mætti mikilli samúð í
Staðar skála, bæði hjá fólki á ferð-
inni og líka starfsfólki. Fólk var
mjög reitt yfir því að þetta skyldi
geta átt sér stað.“
Reynir Jónsson, framkvæmda-
stjóri Strætó, sagðist ekki hafa
heyrt af atvikinu, en kannað yrði
hvað þarna hefði farið úrskeiðis.
Hann segist aldrei áður hafa heyrt
af sambærilegu atviki. „Við förum
yfir tímasetningar í þessu. Vagn-
arnir þurfa að halda stífa áætlun
og samræmd klukka í þeim öllum.
Við getum séð nákvæmlega hve-
nær bíllinn fór af stað frá Staðar-
skála,“ segir hann og áréttar að alls
ekki sé ásetningur fyrirtækisins að
stilla kerfið þannig af að fólk verði
eftir. „Hafi okkur orðið á í mess-
unni leiðréttum við það eftir megni
og bætum úr.“ olikr@frettabladid.is
REYNIR JÓNSSON
Telur strætó hafa lagt
of snemma af stað
Eldri kona missti af strætó í Staðarskála. Gert var stopp á leiðinni frá Akureyri til
Reykjavíkur. Fékk á endanum far með flutningabíl en farangurinn fór með strætó
til Reykjavíkur. Bætum úr hafi okkur orðið á, segir framkvæmdastjóri Strætó.
LANDSBYGGÐARSTRÆTÓ Á HLEMMI Strætó bs. heldur utan um skipulag, áætlanir og farmiðasölu í strætisvögnum um allt
land. Samtök sveitarfélaga semja svo við rútufyrirtæki sem annast aksturinn undir merkjum Strætó. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
Elliðabraut
Dregið hefur verið í happdrætti
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra.
Vinningar komu á eftirtalin númer:
Toyota Yaris Sol 1,3 VVT-i að verðmæti kr. 2.890.000
hver bifreið komu á miða númer :
1438 12407 23657 34731 35424 36576 49872
50272 79267 323644
Ferðavinningur frá Úrval-Útsýn að verðmæti kr 500,000
hver vinningur komu á miða nr.
13930 38673 44183 68548 76334 77403 82783
Ferðavinningur frá Úrval-Útsýn að verðmæti kr 250,000
hver vinningur komu á miða nr.
1939 3995 4628 9560 14182 17360 21893
25941 26059 38520 40269 45802 47729 52938
54630 58351 61262 62182 62903 64843 65225
67502 67857 68868 68946 71938 73012 77090
78201 81004 82493 85616 90188 90305
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra þakkar landsmönnum veittan
stuðning og óskar vinningshöfum til hamingju.
Handhafar vinningsmiða framvísi þeim á skrifstofu félagsins að
Háaleitisbraut 13, Reykjavík, sími 535-0900.
Byrjað verður að afhenda vinninga 7. janúar 2013.
STYRKTARFÉLAG LAMAÐRA OG FATLAÐRA
B
ir
t á
n
áb
yr
gð
ar
Hátíðarhljómar við áramót
Hátíðartónlist fyrir 3 trompeta, orgel
og pákur eftir Gabrieli, Zelenka,
Charpentier, Händel, Widor og Albinoni.
Trompetar: Ásgeir H. Steingrímsson,
Eiríkur Örn Pálsson og Einar St. Jónsson
Orgel: Björn Steinar Sólbergsson
Pákur: Frank Aarnink
JÓLATÓNLISTARHÁTÍÐ
HALLGRÍMSKIRKJU 2012
Miðasala í Hallgrímskirkju, s. 510 1000
opið alla daga kl. 9 - 17
listvinafelag.is - hallgrimskirkja.is
LISTVINAFÉLAG HALLGRÍMSKIRKJU 31. STARFSÁR
31. desember, gamlársdagur kl. 17
VIÐSKIPTI Feðgarnir Jóhann
Páll Valdimarsson og Egill Örn
Jóhannsson, sem reka Forlagið,
voru valdir menn ársins 2012
í viðskiptalífinu af tímaritinu
Frjálsri verslun.
Viðskiptablaðið veitti í gær
Björgólfi Jóhannssyni, forstjóra
Icelandair Group, viðskiptaverð-
laun sín fyrir árið 2012 og Jóni Á.
Þorsteinssyni, forstjóra Marorku,
frumkvöðlaverðlaun blaðsins. - oká
Viðskiptaverðlaun ársins:
Forlagsfeðgar
og Björgólfur
verðlaunaðir TÆKNI Algengasta leitarorðið á ensku útgáfunni af Wikipedia
á árinu sem nú er að líða var
Facebook. Notendur síðunnar leit-
uðu einnig oft að vinsælum kvik-
myndum og bókum.
Annað vinsælasta leitarorðið
var orðið „wiki“, en það þriðja
algengasta sem leitað var að voru
dauðsföll á árinu. Önnur leitarorð
sem komust á topp tíu listann voru
bókin Fimmtíu gráir skuggar og
kvikmyndirnar The Avengers og
The Dark Knight Rises. - bj
Vinsælasta efni Wikipedia:
Flestir leituðu
að Facebook