Fréttablaðið - 29.12.2012, Side 64

Fréttablaðið - 29.12.2012, Side 64
29. desember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 48 LEIKHÚS ★★★★ ★ Macbeth Höfundur: William Shakespeare. Þýð- andi: Þórarinn Eldjárn. Helstu hlutverk: Björn Thors, Margrét Vilhjálmsdóttir, Arnar Jónsson, Atli Rafn Sigurðarson, Friðrik Friðriksson, Guðrún Snæfríður Gísladóttir, Hilmir Jensson, Hilmir Snær Guðnason, Jóhannes Haukur Jóhanns- son, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pálmi Gestsson, Saga Garðarsdóttir, Snorri Engilbertsson, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir. Leikstjóri: Benedict Andrews. STÓRA SVIÐIÐ, ÞJÓÐLEIKHÚSINU Frumsýning á einu merkasta verki leikhúsbókmenntanna í Þjóðleik- húsinu. Prúðbúið fólk fyllti sal- inn og voru margir fullir kvíða fyrir því sem koma skyldi. Ótt- inn hvarf nú líklega fljótlega því hinn heimsfrægi harmleik- ur um Macbeth-hjónin fangaði strax áhuga áhorfenda. Dunkan konungur verðlaunar Macbeth fyrir framgöngu hans á vígvell- inum. Macbeth fréttir af þessari nafnbót þegar hann hittir heldur skringilegar kvenpersónur sem segja honum frá þessu þá er hann kemur úr stríði í fylgd vinar síns Bankó. Nornirnar á heiðinni voru hér einhvers konar ruslasöfnunar- kerlingar og ein þeirra líklega strætishóra. Þær segja vinunum frá því að nafnbætur Macbeths verði fleiri og að hann verði einn- ig konungur. Söguna þarf nú vart að rekja hér enda svo oft sögð. Þegar Lafðin fær bréfið um upp- hefðina, les það og tjáir metnað sinn fyrir hönd bóndans, máske ein frægasta sena kvenpersónu leikbókmenntanna, kynnumst við fyrst þessari valdasjúku konu. Margrét Vilhjálmsdóttir fer með þetta fræga hlutverk á einstaklega næman máta. Hún er ekki eins og svo oft áður, uppskrúfuð eða yfirdramatiseruð heldur mjög trú- verðug ung kona sem lætur stjórn- ast af metnaði og græðgi. Þegar þau hjónin myrða næturgestinn, konung Skotlands, til þess að sölsa undir sig hásætið og neyðast svo til þess að kála einnig vitnunum er eins og þau fari saman upp í rússí- bana með endastöð í glötun. Leikurinn fór fram í leikmynd er líktist helst kassa, tákn tómleik- ans. Lýsingin einkenndist af ofur- birtu eins og til að sýna að engir skuggar eða skúmaskot gætu leynt glæp þeirra. Björn Thors fer með hlutverk Macbeths og skilaði því vel hvernig brjálsemin stigmagn- ast eftir því sem samviskan fram- kallar sýnir og rænir hann svefni og ró. Hér er brugðið á það ráð að sýna myndbandsupptökur af skjá, myndbandið tekið á staðnum og verður þetta til þess að hægt er að sýna andlit og nærmyndir eins og í kvikmyndum. Þetta var smart og áhrifaríkt en kannski aðeins of mikið notað. Pálmi Gestsson í fráhnepptri fjallaúlpu með skakka skran- kórónu á hausnum ljáði kjánaleg- um einræðisherranum trúverðugt líf. Hilmir Snær Guðnason var frá- bær lifandi og dauður og bar fram- sögn hans af. Það var reyndar svo- lítið eins og bergmál í kassanum þannig að nokkur af gull kornunum heyrðust kannski ekki nógu vel. Eitt eftirminnilegasta atriðið er þegar veislan er haldin og Lafðin kveikir kerti í fjarska og veislu- borðinu er svo rennt inn á sviðið og þar voru einnig búningarnir mjög flottir. Í þessu atriði reynir hún allt hvað hún getur til þess að leyna og hylma yfir þá brjálsemi sem heltekið hefur bónda hennar. Hér er mikið úrvalslið leik- ara og leikstjórnin mjög leikara- miðuð. Það var hasar, það var blóð sem rann, það voru hugdettur um sjálfsfróun dyravarða, gjörnýting inn- og útgöngumöguleika, börn sem gáfu frá sér ýlfur og afhöggn- ir hausar í plastpokum. Eitt atriði var þó sérlega fallegt og unnið af næmni og það var þegar hin unga frú Macdöff, sem Vigdís Hrefna Pálsdóttir lék, tyllir sér ásamt ungum syni sínum á sviðsbrúnina og þau spjalla um örlög föður hans. Það sem einkenndi sýn- inguna, fyrir utan hið nýtískulega form með skírskotun í öll okkar nútímastríð, var að þessar ungu persónur, Macbeth-hjónin, voru þannig upp máluð að auðvelt var að finna til samkenndar með þeim. Þýðing Þórarins Eldjárn var þjál og fullkom lega skiljanleg. Það er alveg sjálfsagt að hver kynslóð eða uppsetning þýði sinn Shakespeare, það verður bara að gæta þess að snilldarverk Matthíasar Jochums- sonar og Helga Hálfdánarsonar hverfi ekki í gleymskunnar dá. Elísabet Brekkan NIÐURSTAÐA: Ágeng sýning og skiljan leg sem áhugafólk um stríð, frið og leikhús ættu ekki að láta framhjá sér fara. Blóðug valdafíkn ÚTSAL HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND HEFST í da g í öllum verslunum Á R N A S Y N IR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.