Fréttablaðið - 30.01.2013, Blaðsíða 12
30. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR |
breytta afstöðu gagnvart sínum
flokksmönnum. Gagnrýni kom
fram innan þingflokksins og eng-
inn gekk jafn langt og Ögmundur
Jónasson, þá heilbrigðis- og trygg-
ingarmálaráðherra, sem gekk
hreinlega úr ríkisstjórn. Hann
sagði menn hafa tengt saman fram-
tíð ríkisstjórnarinnar og lausn Ice-
save-málsins.
„Þegar það fékkst síðan stað-
fest á útsíðum Fréttablaðsins í
dag [gær] að líf ríkisstjórnarinnar
væri undir því komið að við sem
sætum í ríkisstjórn töluðum einni
röddu í Icesave-málinu, ákvað ég
að víkja fremur en tefla þessu lífi
stjórnarinnar í tvísýnu,“ sagði
Ögmundur í viðtali við Fréttablað-
ið strax eftir afsögn.
Pólitík …
Það er hins vegar einmitt það sem
gerðist; Icesave varð tengt lífi
ríkis stjórnarinnar. Og hví ætti
stjórnarandstaðan að lengja líf
hennar? Málið varð því snemma
rammpólitískt og Steingrímur
J. Sigfússon, sem tók það að sér,
varð persónugervingur þess. Ekki
minnkaði pólitíska tengingin sem
sett var á málið þegar Svavar
Gestsson, fyrrum samherji Stein-
gríms úr Alþýðubandalaginu,
leiddi samninganefnd um málið.
Annar fyrrum samherji úr
Alþýðubandalaginu, Ólafur Ragn-
ar Grímsson, forseti Íslands,
blandaðist síðan rækilega inn í
málið þegar hann í tvígang neit-
aði að skrifa undir lög um Icesave-
samningana.
Það olli vægast sagt kergju í
ríkisstjórninni og samskiptin við
forsetann voru við frostmark.
Steingrímur sagðist undrandi á
ákvörðun forsetans árið 2011 og
Jóhanna sagði hana hafa komið
sér á óvart og að forsetinn væri að
taka verulega áhættu með þessu.
„Jóhanna hefur aldrei fyrirgefið
mér það, að ég tók þessa Icesave-
ákvörðun,“ sagði Ólafur Ragnar
síðan á Bylgjunni í kosningabar-
áttu fyrir forsetakosningarnar.
Eins og hönnuð atburðarás
Nú þegar Icesave er fyrir bí er
hverjum manni hollt að skoða sög-
una á yfirvegaðan hátt. Framsókn-
arflokkurinn hefur alla tíð staðið
gegn samningaleiðinni og Sigmund-
ur Davíð Gunnlaugsson formaður
flokksins var því að vonum ánægð-
ur með niðurstöðuna.
„Þegar réttlætið er annars vegar
má ekki víkja. Ísland hefur nú
unnið fullnaðarsigur með því að
standa á rétti sínum,“ sagði hann á
þingi á mánudag.
Hins vegar má velta því fyrir
sér hvort atburðarásin hafi ekki
verið Íslendingum eins hagstæð
og mögulegt var, úr því að til þessa
ólukkumáls þurfti að koma?
Stjórnvöld sömdu og losuðu þann-
ig um lánalínur, þjóðin hafnaði og
losaði sig þannig undan skuldbind-
ingunum sem stjórnin setti á hana.
Það hefði hins vegar enginn getað
séð fyrir.
Icesave var Pandóruaskja
íslenskra stjórnmála. Þegar upp er
staðið reyndist askjan hins vegar
ekki innihalda jafn mikla óáran og
í fyrstu var óttast.
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
Hugmyndir og tillögur:
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA
Ásdís Halla Bragadóttir, stjórnarformaður Sinnum
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar
Sigríður Heimisdóttir, iðnhönnuður
Kolbeinn Kolbeinsson, forstjóri Ístaks
Eva María Þórarinsdóttir Lange, eigandi og framkvæmdastjóri Pink Iceland
Halldór Árnason, hagfræðingur hjá SA
Innskot úr íslensku atvinnulífi – í tærum og ferskum litum.
Fundarstjóri: Vilmundur Jósefsson, formaður SA
Samantekt: Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA
Þátttakendur fá nýtt tímarit SA sem kemur út sama dag.
Boðið verður upp á kraftmikla morgunhressingu frá kl. 8.
FLEIRI STÖRF – BETRI STÖRF!
Opinn fundur SA í Hörpu - Silfurbergi - fimmtudaginn 31. janúar kl. 8.30-10.
SKRÁNING Á WWW.SA.IS
Vildu semja
Sjálfstæðisfl okkur
og Samfylkingin
vildu semja um
deiluna.
Vildu semja
Samfylkingin og
Vinstri græn vildu
semja um deiluna.
Vildu ekki semja
Framsóknarfl okkur
og Vinstri græn vildu
ekki semja.
Vildu ekki semja
Framsóknarfl okkur
og Sjálfstæðisfl okkur
vildu ekki semja.
Í ríkisstjórn Í ríkisstjórn
Stjórnar-
andstaða
Stjórnar-
andstaða
Óhætt er að segja að fá mál hafi
verið jafn áberandi í íslenskum
stjórnmálum síðustu árin, ef ekki
áratugina, og Icesave. Fyrir fram
benti fátt til þess að starfsemi
íslensks banka á erlendri grundu
ætti eftir að skekja flestalla stjórn-
málaflokka, valda afsögn ráðherra
og ógna lífi ríkisstjórnar. Sú varð
hins vegar raunin.
Þegar sagan er skoðuð koma
ansi skýrar línur í ljós. Þeir flokk-
ar sem eru í stjórnarandstöðu eru
á móti samningum vegna Icesave,
en stjórnarflokkar fylgjandi. Þann-
ig var Sjálfstæðisflokkurinn fylgj-
andi samningum á meðan hann var
í ríkisstjórn en andvígur, að mestu,
eftir stjórnarskipti. Vinstrihreyf-
ingin – grænt framboð var hins
vegar ötull gagnrýnandi samninga
þegar flokkurinn var í stjórnarand-
stöðu, en fylgjandi, að mestu, þegar
í ríkisstjórn kom.
Samfylkingin hefur setið í ríkis-
stjórn síðan málið kom upp og ætíð
stutt samningaleiðina og Fram-
sóknarflokkurinn, sem verið hefur
í stjórnarandstöðu allan tímann,
hefur verið á móti þeirri leið.
Nýtt hljóð í strokkinn
„Ég er með álit og greinargerð-
ir að minnsta kosti fjögurra eða
fimm lögfræðinga í höndunum sem
draga mjög í efa að ábyrgðir okkar
séu umfram þau lög og þann inn-
lánstryggingasjóð sem við höfum
stofnað á grundvelli tilskipana frá
Evrópusambandinu. Við erum að
afsala okkur réttinum á því að láta
reyna á þann grunn málsins eftir
því sem ég skil þessa yfirlýsingu.“
Þótt það komi kannski á óvart,
miðað við núverandi málflutning,
var það Steingrímur J. Sigfússon
sem mælti svo í desember 2008. Þá
samþykkti Alþingi Brussel-viðmið-
in svokölluðu, samningsgrundvöll
vegna Icesave. Þau gerðu ráð fyrir
að lágmarksinnstæður á reikning-
unum yrðu tryggðar, en þó yrði
tekið tillit til „erfiðra og fordæma-
lausra aðstæðna Íslands“.
Og hver mælti fyrir frumvarp-
inu? Jú, Bjarni Benediktsson,
þáverandi formaður utanríkismála-
nefndar og núverandi formaður
Sjálfstæðisflokksins. Hann sagði
óhagstæða niðurstöðu um skuld-
bindingu Íslands mundu hafa alvar-
legar afleiðingar fyrir ríkisstjórn.
„Hagur þess að lausn finnist
við samningaviðræður er því ótví-
ræður. Þess má geta að á meðan
ágreiningur aðila um þetta efni var
óleystur var sú hætta fyrir hendi
að Evrópusambandsríkin gripu
til aðgerða gagnvart Íslandi sem
settu EES-samninginn að hluta eða
í heild í hættu.“
Hljómar kunnuglega? Jú, þetta
eru rökin sem Samfylking og
Vinstri græn notuðu síðar fyrir
samningum.
Innanflokksvandræði
Icesave hefur verið Bjarna nokk-
uð erfitt. Hann sagði á Alþingi á
mánudag að niðurstaða EFTA-
dómstólsins væri „sigur þjóðar
á ofríki ríkisstjórnar“. Sjálfur
studdi Bjarni hins vegar síðasta
Icesave-samninginn sem þjóðin
síðan felldi.
Bjarni hefur legið undir ámæli
frá mörgum fyrir þann stuðning.
Fyrrum formenn hafa látið hann
heyra það í fjölmiðlum og ekki var
samstaða innan flokksins um þá
leið. Ekki er víst að hann sé búinn
að bíta úr nálinni með það.
Á sama hátt hefur Steingrímur
átt í erfiðleikum með að réttlæta
Pólitísk Pandóruaskja
Icesave-málið hefur skekið stjórnarsamstarfið, sett ný viðmið í samskiptum ríkis-
stjórnar og forseta, valdið stjórnmálaflokkum erfiðleikum og kallað á lengstu
umræðu í þingsögunni. Sinnaskipti í málinu tengjast því hvort flokkar eru í stjórn
eða stjórnarandstöðu. Stjórnin er fylgjandi samningum, stjórnarandstaða á móti.
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
BJARNI
BENEDIKTSSON
JÓHANNA SIG-
URÐARDÓTTIR
SIGMUNDUR
DAVÍÐ GUNN-
LAUGSSON
STJÓRN EÐA EKKI STJÓRN Sagan sýnir að flokkar sem sitja í stjórn hafa verið fylgj-
andi samningum um Icesave en stjórnarandstaða andvíg. Afstaða Sjálfstæðisflokks
og Vinstri grænna breyttist við stjórnarskipti.
SKÝR ÞJÓÐARVILJI Þjóðin var býsna skýr í afstöðu sinni varðandi samningana.
93,2% höfnuðu þeim í fyrri þjóðaratkvæðagreiðslunni og 58,9% í þeirri síðari.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
ASKÝRING | 12
ICESAVE OG STJÓRNMÁLAFLOKKARNIR