Fréttablaðið - 30.01.2013, Page 21

Fréttablaðið - 30.01.2013, Page 21
ÚTFARIR MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2013 Kynningarblað Útfararþjónusta, blómaskreytingar, legsteinar, útfararsiðir og stuðningur í sorg. Orðsporið skiptir útfarar-þjónustu miklu eins og Rúnar Geirmundsson veit en hann rekur Útfararþjónustuna ehf. „Ef maður sinnir sínu starfi vel er það f ljótt að spyrjast út,“ segir Rúnar sem hefur þrjátíu ára reynslu af útfararþjónustu. „Fyrst og fremst þarf að taka tillit til þess að fólk er í sárum eftir ástvina- missi. Við þurfum að gæta að því sem við gerum og segjum og eins að nálgast fólk með hlýju og auð- mýkt. Það getur verið mjög erfitt að bjóða fólki við þessar aðstæð- ur þjónustu sem kostar peninga en þetta hefur lærst í gegnum árin og við tökum mjög mikið tillit til þess hvernig aðstæður eru hverju sinni,“ segir hann. Virðingin í forgrunni Rúnar hefur unnið við útfarar- þjónustu frá því 1983, fyrst hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur og síðan í eigin fyrirtæki. Hann seg- ist hafa lært það á löngum ferli að það skipti ekki höfuðmáli hvaða trú fólk aðhyllist eða hvort það að- hyllist trú yfirleitt, virðingin fyrir hinum látna sé alltaf í forgrunni. „Og það þurfum við alltaf að hafa í huga, án þess að taka afstöðu til trúmála. Hlýja, auðmýkt og virð- ing er það leiðarljós sem við fylgj- um alltaf.“ Hvað skal gera þegar andlát ber að garði? Það er mikilvægt að hafa samband við útfararþjónustu sem fyrst eftir að andlát ber að,“ segir Rúnar. „Í fyrsta lagi þarf að flytja hinn látna af dánarstað og í líkhús og síðan að byrja að undirbúa kistulagn- inguna. Útfararstjórinn heim- sækir yfirleitt aðstandendur dag- inn eftir og þeir leggja þá fram óskir sínar varðandi framkvæmd kistulagningar og síðan jarðarfar- ar. Í því felst í flestum tilfellum að velja prest og hafa samband við hann og síðan að tímasetja allar athafnir og grafartöku í tölvufor- rit sem við notum og er beintengt við kirkjugarðana. Næsta skref er svo að ákveða hvað kemur í okkar hlut að sinna en við sjáum um allt er lýtur að undirbúningi og fram- kvæmd útfara. Til að mynda höld- um við utan um öll samskipti við tónlistarfólk, blómabúðir, kirkju- garða og alla þá sem koma að út- förinni.“ Íslenskar kistur úr íslenskum viði Val á kistum getur vafist fyrir að- standendum enda úrvalið nokkuð. „Við eigum umhverfisvænar og fallegar hefðbundnar hvítar kist- ur sem eru algengastar en einnig töluvert úrval af viðarlitum kist- um.“ Í fyrsta sinn á Íslandi hefur Útfararþjónustan nú látið hanna og smíða íslenskar kistur úr ís- lenskum viði í samstarfi við Þor- stein B. Jónmundsson. „Hann hefur hannað sérstaka kistu og einnig duftker út frá hugmynd- inni um íslenska kistu fyrir ís- lenskar aðstæður til brennslu og jarðsetningar,“ útskýrir Rúnar. Kisturnar eru úr viði sem er unn- inn og þurrkaður í Hallormsstaða- skógi. „Þessi kista er mjög falleg, úr grófum viði og ólökkuð eða máluð á náttúrulegan máta.“ Fjölskyldufyrirtæki í 23 ár Rúnar stofnaði Útfararþjónustuna á vormánuðum árið 1990 og hefur alla tíð veitt fyrirtækinu forstöðu sem framkvæmdastjóri þess og útfararstjóri. Útfararþjónustan er í eigu Rúnars og eiginkonu hans, Kristínar Sigurðardóttur, og starfa synir þeirra, Sigurður og Elís, þar ásamt föður sínum. Nánari upp- lýsingar er að finna á www.utfar- ir.is eða í síma 567 9110 allan sól- arhringinn, alla daga ársins. Fjölskyldufyrirtæki í 23 ár Rúnar Geirmundsson útfararstjóri rekur Útfararþjónustuna ehf. ásamt konu sinni og tveimur sonum. Hann hefur þrjátíu ára reynslu af útfararþjónustu og segir skipta höfuðmáli í sínu starfi að sýna hinum látna virðingu og nálgast aðstandendur með hlýju og auðmýkt. Útfararþjónustan hefur látið hanna og smíða íslenskar kistur úr íslenskum viði í samstarfi við Þorstein B. Jónmundsson. „Hlýja, auðmýkt og virðing er það leiðarljós sem við fylgjum alltaf,“ segir Rúnar Geirmundsson útfararstjóri sem hér sést ásamt syni sínum Elís við líkbílana þeirra tvo. MYND/STEFÁN Rúnar Geirmundsson Þorbergur Þórðarson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Fjarðarási 25 • 110 Reykjavík • Sími 567 9110 • 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Fjölskyldufyrirtæki í 23 ár Þær kistur sem við bjóðum, eru framleiddar í Danmörku og hafa staðist allar væntingar um fagleg vinnubrögð og góðan frágang. Markmið okkar hefur ávallt verið að veita bestu faglegu þjónustu varðandi undirbúning og framkvæmd útfarar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.