Fréttablaðið - 30.01.2013, Blaðsíða 25
KYNNING − AUGLÝSING Útfarir30. JANÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR 5
Eftir að fólk hefur verið borið til grafar er legsteinn oftast lagður yfir leiðið til að marka
gröfina og sem minnisvarði um
hinn látna. Vandaður frágangur
og fallegur legsteinn er því mikil-
vægur enda á hann eftir að standa
þar um ókomna tíð. „Afar mikil-
vægt er fyrir viðskiptavini að fá að
ræða við einhvern með reynslu og
þekkingu af legsteinasmíð þegar
velja á stein. Gríðarmargt spilar
þar inn í; hönnun, smíði, frágang-
ur á legsteini og fleira. Hjá okkur
starfa bæði steinsmiðir, hönnuðir
og annað fagfólk með mikla þekk-
ingu og margra ára reynslu,“ segir
Unnar Þór Lárusson hjá Sólstein-
um – S. Helgasyni.
Menntaðir steinsmiðir
Lykilatriði að fagmennsku er að
vera með fagmenntað fólk og hjá
Sólsteinum – S. Helgason starfa þó
nokkrir lærðir steinsmiðir. „Það
var einmitt einn steinsmíðanemi
hjá okkur að útskrifast nú um ára-
mótin og hlaut hann silfurverð-
laun forseta Íslands fyrir sveins-
stykkið sitt. Þá er annar stein-
smiður hjá okkur nýkominn af
endurmenntunarnámskeiði í
Bretlandi. Við leggjum mikið upp
úr því að halda faglegri þekkingu
innan fyrirtækisins og endur-
speglast það í vörunum og þjón-
ustunni sem við veitum.“
Fjöldi steintegunda
Hjá Sólsteinum – S. Helgasyni er
hægt að velja milli mismunandi
steintegunda. „Innfluttu steinteg-
undirnar eru granít og marmari
en íslensku efnin eru gabbró, líp-
arít og stuðlaberg.
Í glæsilegum sýningasal okkar
á Skemmuvegi 48, Kópavogi, er
úrval tilbúinna legsteina sem
hægt er að skoða. Þegar fólk hefur
valið sér stein eru þeir teiknaðir
og settir upp frá A til Ö í tölvu svo
hægt er að sjá nákvæma mynd af
steininum áður en smíðin hefst.“
Sérsmíðum legsteina
„Þá getur fólk komið með óskir
eða hugmyndir að útliti eða formi
legsteina. Fagfólk okkar hjálp-
ar svo til við útfæra hugmyndina
svo hún geti orðið að veruleika.“
Skreytingar á leiði og legsteina
Ýmsar gerðir skreytinga prýða
legsteina og bjóða Sólsteinar –
S. Helgason vandaða vöru sem
endist.
„Við erum með marmarastytt-
ur og ýmist skraut úr kopar, svo
sem engla, fugla, krossa og blóm.
Auk þess útbúum við postulíns-
mynd af hinum látna á legstein-
inn án endurgjalds. Myndin
gerir steininn persónulegri og
það eykst ár frá ári að fólk velji
að hafa mynd. Um þessar mund-
ir erum við svo með lukt og vasa
á legstein á tilboði saman á
29.900.“
Uppsetning og frágangur
Fagfólk frá Sólsteinum – S.
Helgasyni sér um uppsetningu
og frágang legsteina allt að 200
kílómetra út fyrir höfuðborgar-
svæðið. Sú þjónusta er innifalin
í verðinu ásamt sendingarkostn-
aði hvert á land sem er.
„Legsteinar eru oftast sett-
ir upp f ljótlega eftir jarðarför.
Þá setjum við frostfrían jarðveg
undir steininn og þjöppum.
Eftir það á steinninn ekki að
halla en við berum hins vegar
ábyrgð á þeim endalaust og lag-
færum ef eitthvað er að, við-
skiptavinum að kostnaðarlausu.
Við biðjum fólk að láta okkur vita
ef eitthvað kemur upp á eða ef
það er ekki ánægt og þá lögum
við það. Þetta er hluti af þeirri
góðu þjónustu sem við veitum.“
Afmælissteinn á tilboði
„Í tilefni afmælisins höfum við
framleitt sérstakan stuðlabergs-
legstein sem verður á tilboði út
árið.
Afmælislegsteinninn er með
undirsteini, áletrun, lukt, vasa
og postulínsmynd og kost-
ar 169.000 með uppsetningu í
kirkjugarði.“
Unnið í legsteinum í sextíu ár
Sólsteinar – S. Helgason fagnar 60 ára afmæli á þessu ári. Þar vinnur sérmenntað fagfólk á öllum sviðum tilbúið til þjónustu. Hægt er
að láta sérsmíða legsteina úr bæði íslenskum og erlendum grjóttegundum. Í tilefni afmælisins verður sérstakur afmælislegsteinn úr
íslensku stuðlabergi á tilboði út árið.
Legsteinar úr íslensku stuðlabergi eru einstaklega fallegir og hafa notið vinsælda í gegnum
árin.
Ljósker og vasar eru á sérstöku tilboði um þessar mundir á 29.900.
Legsteinar úr graníti og marmara, gabbró, líparíti og stuðlabergi eru til sýnis í glæsilegum sýningarsal að Skemmuvegi 48, Kópavogi. Þar er hægt að skoða ýmsar gerðir legsteina. MYND/STEFÁN