Fréttablaðið - 30.01.2013, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 30.01.2013, Blaðsíða 10
30. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10 Láttu hjartað ráða „Pastasósan mín er unnin úr lífrænum tómötum sem fá að þroskast til fulls á plöntunni. Hún er enn fremur sykurlaus.“ EGYPTALAND, AP Yfirmaður egypska hersins segir að Egypta- land geti riðað til falls linni ekki hinum harkalegu pólitísku átökum sem tröllriðið hafa landinu síðustu daga og vikur. Herinn beið átekta í borgun- um Port Saíd og Súes og fylgdist með þúsundum manna mótmæla á götum úti í fyrrakvöld þrátt fyrir neyðarlög og útgöngubann eftir klukkan níu að kvöldi. Í þriðju borginni, Ísmalíu, hélt fólk einnig út á götur að mótmæla og storkaði þar með bæði hernum og stjórn Muhammeds Morsi forseta. Síðustu daga hafa átökin í þess- um þremur borgum kostað meira en sextíu manns lífið. Þessi átök hófust fyrir helgi eftir að dómstóll kvað upp dauðadóma yfir 21 manni sem áttu þátt í óeirðum í tengslum við fótboltaleik í Port Saíd snemma á síðasta ári. Þau átök kostuðu 44 menn lífið. Abdel-Fattah el-Sissi, sem er bæði varnarmálaráðherra Egypta- lands og æðsti yfirmaður her- aflans, segir átökin grafa undan stofnunum ríkisins: „Þetta er alvarlegt mál sem skaðar þjóðar- öryggi og framtíð landsins.“ Jafnt stjórnin sem herinn óttast að mótmælin breiðist út og snúist upp í almenna uppreisn í landinu, enda ríkir víða óánægja með for- setann og störf hans. Andstæðingar Morsis segja hann nota völd sín í þágu íslamista en hunsa kröfur frjálslyndra afla sem voru einn helsti drifkraftur- inn í uppreisn almennings gegn Hosni Mubarak, forvera Morsis, fyrir nærri tveimur árum. Samkvæmt nýju stjórnar- skránni, sem samþykkt var í þjóðaratkvæðagreiðslu í desemb- er þrátt fyrir gagnrýni stjórnar- andstæðinga, á undirbúningur að þingkosningum að hefjast seint í næsta mánuði. Navi Pillay, mann- réttindafulltrúi Sameinuðu þjóð- anna, vekur athygli á því hve mikið mannfall hefur orðið í átökunum síðustu daga. Hún hvetur stjórn- völd til að tryggja að her og lög- regla beiti aldrei framar óhóflega miklu ofbeldi gagnvart mótmæl- endum. Ekki aðeins brjóti slíkt gegn lögum heldur sé hætt við því að ofbeldi af hálfu lögreglu og hers geri ástandið enn illvið ráðanlegra. gudsteinn@frettabladid.is Þúsundir Egypta hunsa útgöngubann Yfirmanni egypska hersins líst ekki á blikuna og óttast mótmæli gegn stjórn Mohammeds Morsi. Átökin hafa kostað tugi manna lífið síðustu daga. Stefnt er á þingkosningar í Egyptalandi innan nokkurra vikna samkvæmt nýrri stjórnarskrá. MÓTMÆLI Í PORT SAÍD Mótmælendur létu ekki neyðarlög og útgöngubann stöðva sig. NORDICPHOTOS/AFP Trúarhátíð á Indlandi ÝMISLEGT Á SIG LAGT Kumbh Mela, trúarhátíð Hindúa, stendur yfir þessa dagana í borginni Allahabad á Indlandi. Á hátíðinni eru nýir Naga Sadhu trúarleiðtogar vígðir en fyrst þurfa þeir að framkvæma helgisið sem nefnist Diksha og þessi ungi maður lagði á sig í gær. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.