Fréttablaðið - 30.01.2013, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 30.01.2013, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 30. janúar 2013 | SKOÐUN | 15 Um mitt ár 2007 birtist ný mask- araauglýsing frá snyrtivörufram- leiðandanum L‘Oréal á breskum sjónvarpsskjáum. Í auglýsingunni blakaði leikkonan Penelope Cruz svo umfangsmiklum augnhárum að undrum sætti að hún tókst ekki hreinlega á loft. Áhrif mask- arans sem kenndur var við „sjón- auka“ sagði hún „stjarnfræði- leg“ en hann lengdi augnhárin um 60%. Bresk auglýsingayfir- völd voru hins vegar ekki lengi að snúa háfleygum loforðum L‘Oréal aftur til jarðar. Í ljós kom að í auglýsingunni skartaði leikkonan fölskum augnhárum. L‘Oréal var gert að breyta auglýsingunni og taka fram í henni að augnhárin væru ekki afrakstur maskarans heldur búnt af gervihárum ella hætta sýningu hennar. Hámark ósvífninnar Í upphafi árs bárust þær stór- fréttir úr heimi fræga fólksins á Íslandi að vinslit hefðu orðið með viðskiptafélögunum og lík- amsræktarfrömuðunum Arnari Grant og Ívari Guðmundssyni. Séð og heyrt var fyrst til að fjalla um málið. „Þeir bara hættu að heilsast,“ var haft eftir „sam- eiginlegum vini“ félaganna. „Það slitnaði varla slefið á milli þeirra fyrir áramót, en núna er allt frosið og enginn veit neitt.“ Slúðuriðnaðurinn iðaði af get- gátum. Hvað gerðist? Hverjum var um að kenna? Áhugamenn um fræga fólkið gátu hins vegar varpað öndinni léttar tveimur vikum síðar. Í ljós kom að vin- slitin, rétt eins og gerviaugnhár Penelope Cruz, voru aðeins aug- lýsingabrella sem ætlað var að vekja athygli á próteindrykknum Hámarki sem þeir félagar brugga í samstarfi við Vífilfell. Viðbrögðin við auglýsinga- herferðinni komu einfeldningi eins og mér á óvart. Þegar fyrir- tæki lýgur að viðskiptavinum sínum, hefur þá að fíflum með því að láta þá velta sér upp úr til- búnum slúðurfregnum til að selja þeim fleiri fernur af mjólkur- og mysupróteinum, hefði maður haldið að þessir sömu viðskipta- vinir yrðu reiðir. Fyndist upp- átæki Hámarks-manna hámark ósvífninnar. Jafnvel hefði mátt búast við að slík auglýsingaher- ferð myndi snúast í höndum aug- lýsandans og salan á drykknum hreinlega minnka. En nei. Sú staðreynd að ekki nokkur sála kippir sér upp við það að fyrirtæki noti lygar og bull í aug- lýsingaskyni ber þess vitni að við Íslendingar erum orðin allt of vön slíkum málflutningi; allt of gjörn á að láta hann yfir okkur ganga þegjandi og hljóðalaust. Tilgangurinn helgar bullið Bullið tröllríður hverjum krók og kima íslenskrar umræðu. Ögmundur Jónasson hefur síðustu daga farið mikinn í til- raunum sínum til að selja frum- varp sem hann vinnur nú að og á að banna erlendum ríkisborg- urum að kaupa jarðir á Íslandi. Hann segist vera að bregðast við þróun sem sé að eiga sér stað hér á landi. „Það sem er að gerast er að erlendir auðmenn eru að safna hér jörðum – kaupa jarðir – og leggja byggðarlögin í rúst.“ Sannleikurinn er hins vegar sá að útlendingar eiga aðeins hluti í 101 jörð á Íslandi af þeim ríflega 7.600 sem skráðar eru í fast- eignaskrá. Sveitarstjórar sem fréttamenn Sjónvarpsins ræddu við í kvöldfréttum í fyrrakvöld könnuðust jafnframt ekki við lýsingar innanríkisráðherra um afleiðingar jarðakaupa þessara fáu útlendinga. En sumir virðast telja að til- gangurinn helgi bullið. Viðbrögð við niðurstöðu EFTA- dómstólsins í Icesave-málinu báru merki um bull-hefð stjórn- málanna. Mörgum dögum áður en niðurstaðan lá fyrir reið for- setinn á vaðið. Um miðja síðustu viku virtist Ólafur Ragnar Grímsson farinn að óttast að málið væri tapað. Hann brá því á það ráð að spinna sér bull-vef, öryggisnet sem myndi mýkja fall hans af stalli sjálfskipaðs lausnara þjóðarinnar, ef svo illa vildi til að málið færi honum í óhag. Í viðtali við sjónvarpsstöð- ina Sky fullyrti hann að niður- staða dómstólsins væri aðeins „ráðgefandi“. Lögfróðari menn voru ekki lengi að hrekja þá stað- hæfingu – en gaman væri að vita hvort forsetanum þyki niður- staðan jafnráðgefandi í þessari viku og honum fannst hún í þeirri síðustu. Of mikill skáldskapur Á sama tíma og sannleikurinn er að engu hafður í opinberri umræðu er hins vegar sprottin upp krafa um meiri sannleik í sjálfu musteri uppspunans. Nokkrir bloggarar risu upp á afturfæturna á dögunum í kjöl- far þess að Hallgrímur Helgason var tilnefndur til Bókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs fyrir skáldsöguna Konan við 1000°. Kveikjan að bók Hallgríms var ævi Brynhildar Georgíu Björnsson, sonardóttur Sveins Björnssonar, fyrsta forseta Íslands, og er sagan lauslega byggð á lífshlaupi hennar. Einn bloggaranna, Halldór Halldórsson, formaður Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, kvartaði yfir að of mikill skáld- skapur væri í skáldsögunni: „Við sem þekktum Brynhildi vitum að þetta er skáldsaga og vitum hvað er raunverulegt og hvað ekki. En hvað með fólk sem þekkti hana ekki? Hvernig eiga þeir lesendur að gera mun á raunveruleika og skáldskap?“ Öllu hefur verið snúið á hvolf. Fréttir af fræga fólkinu eru aug- lýsingar í dulargervi. Krafan um að stjórnmálamenn fari með rétt mál hefur fyrir löngu verið látin niður falla. En sannleikur- inn á hins vegar að ríkja í skáld- skapnum, hliðarveröldinni þar sem frelsi til að skrumskæla, spinna og bulla þótti framan af óskorað. Er ekki tími kominn til að koma tilverunni aftur á réttan kjöl? Tryggja uppspunanum fyrrum sess sinn í heimi skáld- skapar en krefjast þess að vegur sannleikans sé aukinn í raunheimum. Maskari lengir ekki augnhár – hann lætur þau aðeins virðast lengri. Ef fjöl- miðill birtir fréttir af vinslitum sem reynast auglýsing er fjöl- miðillinn ekki lengur fjöl miðill heldur auglýsingabæklingur. Löggjöf á að nota til að bregðast við raunverulegum vandamálum sem samfélag stendur frammi fyrir, hún á ekki að vera vett- vangur fyrir ráðherra til að fá útrás fyrir hugmyndafræðilegar fantasíur sínar. Ef keisarinn er ekki í neinum fötum þá er hann einfaldlega nakinn. Ef keisarinn er ekki í neinum fötum… Í DAG Sif Sigmarsdóttir rithöfundur Krafan um að stjórn- málamenn fari með rétt mál hefur fyrir löngu verið látin niður falla. En sannleikurinn á hins vegar að ríkja í skáldskapnum … Skráning á: opnihaskolinn.is ÁKVARÐANATAKA TIL ÁRANGURS Vinnustofa 14. febrúar kl. 8:30–11:30 STRATEGIC DECISION MAKING Vinnustofa í Opna háskólanum í HR með Dr. Eric Weber, aðstoðarrektor IESE viðskipta- háskólans, fyrir stjórnendur og aðra sem koma að skipulagi og stjórnun fyrirtækja og stofnana. opnihaskolinn@opnihaskolinn.is www.nyherji.is AÐALFUNDUR NÝHERJA HF. Föstudaginn 22. febrúar 2013, kl. 16:00 í ráðstefnusal félagsins, Borgartúni 37 Á DAGSKRÁ FUNDARINS VERÐA: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 4.13. gr. í samþykktum félagsins. 2. Tillaga um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum sbr. 55. gr. hlutafélagalaga. Réttur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og kosning Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar með það löngum fyrirvara að unnt sé að taka málið fyrir á dagskrá fundarins sem lögð verður fram viku fyrir fundinn. Þannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en kl. 16:00 föstudaginn 15. febrúar 2013. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu félagsins www.nyherji.is. Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Atkvæðaseðlar og fundar- gögn verða afhent á fundarstað. Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta: a) veitt öðrum skriflegt umboð. b) greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins. Aðrar upplýsingar Öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins og tillögur stjórnar eru hluthöfum tiltæk á heimasíðu félagsins frá og með 31. janúar 2013. Endanleg dagskrá verður birt á heimasíðu félagsins viku fyrir fundinn, 15. febrúar 2013, kl. 16:00. Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. hluta- félagalaga skal tilkynna skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar. Tilkynnt verður um framboð til stjórnar á heimasíðu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfundinn. Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn er að finna á vefsíðu félagsins, www.nyherji.is. Reykjavík, 30. janúar 2013. Stjórn Nýherja hf.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.