Fréttablaðið - 30.01.2013, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 30. janúar 2013 | SKOÐUN | 15
Um mitt ár 2007 birtist ný mask-
araauglýsing frá snyrtivörufram-
leiðandanum L‘Oréal á breskum
sjónvarpsskjáum. Í auglýsingunni
blakaði leikkonan Penelope Cruz
svo umfangsmiklum augnhárum
að undrum sætti að hún tókst
ekki hreinlega á loft. Áhrif mask-
arans sem kenndur var við „sjón-
auka“ sagði hún „stjarnfræði-
leg“ en hann lengdi augnhárin
um 60%. Bresk auglýsingayfir-
völd voru hins vegar ekki lengi að
snúa háfleygum loforðum L‘Oréal
aftur til jarðar. Í ljós kom að í
auglýsingunni skartaði leikkonan
fölskum augnhárum. L‘Oréal var
gert að breyta auglýsingunni og
taka fram í henni að augnhárin
væru ekki afrakstur maskarans
heldur búnt af gervihárum ella
hætta sýningu hennar.
Hámark ósvífninnar
Í upphafi árs bárust þær stór-
fréttir úr heimi fræga fólksins
á Íslandi að vinslit hefðu orðið
með viðskiptafélögunum og lík-
amsræktarfrömuðunum Arnari
Grant og Ívari Guðmundssyni.
Séð og heyrt var fyrst til að fjalla
um málið. „Þeir bara hættu að
heilsast,“ var haft eftir „sam-
eiginlegum vini“ félaganna. „Það
slitnaði varla slefið á milli þeirra
fyrir áramót, en núna er allt
frosið og enginn veit neitt.“
Slúðuriðnaðurinn iðaði af get-
gátum. Hvað gerðist? Hverjum
var um að kenna? Áhugamenn
um fræga fólkið gátu hins vegar
varpað öndinni léttar tveimur
vikum síðar. Í ljós kom að vin-
slitin, rétt eins og gerviaugnhár
Penelope Cruz, voru aðeins aug-
lýsingabrella sem ætlað var að
vekja athygli á próteindrykknum
Hámarki sem þeir félagar brugga
í samstarfi við Vífilfell.
Viðbrögðin við auglýsinga-
herferðinni komu einfeldningi
eins og mér á óvart. Þegar fyrir-
tæki lýgur að viðskiptavinum
sínum, hefur þá að fíflum með
því að láta þá velta sér upp úr til-
búnum slúðurfregnum til að selja
þeim fleiri fernur af mjólkur-
og mysupróteinum, hefði maður
haldið að þessir sömu viðskipta-
vinir yrðu reiðir. Fyndist upp-
átæki Hámarks-manna hámark
ósvífninnar. Jafnvel hefði mátt
búast við að slík auglýsingaher-
ferð myndi snúast í höndum aug-
lýsandans og salan á drykknum
hreinlega minnka. En nei.
Sú staðreynd að ekki nokkur
sála kippir sér upp við það að
fyrirtæki noti lygar og bull í aug-
lýsingaskyni ber þess vitni að við
Íslendingar erum orðin allt of
vön slíkum málflutningi; allt of
gjörn á að láta hann yfir okkur
ganga þegjandi og hljóðalaust.
Tilgangurinn helgar bullið
Bullið tröllríður hverjum krók
og kima íslenskrar umræðu.
Ögmundur Jónasson hefur
síðustu daga farið mikinn í til-
raunum sínum til að selja frum-
varp sem hann vinnur nú að og
á að banna erlendum ríkisborg-
urum að kaupa jarðir á Íslandi.
Hann segist vera að bregðast við
þróun sem sé að eiga sér stað hér
á landi. „Það sem er að gerast
er að erlendir auðmenn eru að
safna hér jörðum – kaupa jarðir
– og leggja byggðarlögin í rúst.“
Sannleikurinn er hins vegar sá
að útlendingar eiga aðeins hluti í
101 jörð á Íslandi af þeim ríflega
7.600 sem skráðar eru í fast-
eignaskrá. Sveitarstjórar sem
fréttamenn Sjónvarpsins ræddu
við í kvöldfréttum í fyrrakvöld
könnuðust jafnframt ekki við
lýsingar innanríkisráðherra um
afleiðingar jarðakaupa þessara
fáu útlendinga.
En sumir virðast telja að til-
gangurinn helgi bullið.
Viðbrögð við niðurstöðu EFTA-
dómstólsins í Icesave-málinu
báru merki um bull-hefð stjórn-
málanna. Mörgum dögum áður
en niðurstaðan lá fyrir reið for-
setinn á vaðið. Um miðja síðustu
viku virtist Ólafur Ragnar
Grímsson farinn að óttast að
málið væri tapað. Hann brá því
á það ráð að spinna sér bull-vef,
öryggisnet sem myndi mýkja
fall hans af stalli sjálfskipaðs
lausnara þjóðarinnar, ef svo illa
vildi til að málið færi honum í
óhag. Í viðtali við sjónvarpsstöð-
ina Sky fullyrti hann að niður-
staða dómstólsins væri aðeins
„ráðgefandi“. Lögfróðari menn
voru ekki lengi að hrekja þá stað-
hæfingu – en gaman væri að vita
hvort forsetanum þyki niður-
staðan jafnráðgefandi í þessari
viku og honum fannst hún í
þeirri síðustu.
Of mikill skáldskapur
Á sama tíma og sannleikurinn
er að engu hafður í opinberri
umræðu er hins vegar sprottin
upp krafa um meiri sannleik
í sjálfu musteri uppspunans.
Nokkrir bloggarar risu upp á
afturfæturna á dögunum í kjöl-
far þess að Hallgrímur Helgason
var tilnefndur til Bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs fyrir
skáldsöguna Konan við 1000°.
Kveikjan að bók Hallgríms
var ævi Brynhildar Georgíu
Björnsson, sonardóttur Sveins
Björnssonar, fyrsta forseta
Íslands, og er sagan lauslega
byggð á lífshlaupi hennar.
Einn bloggaranna, Halldór
Halldórsson, formaður Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga,
kvartaði yfir að of mikill skáld-
skapur væri í skáldsögunni:
„Við sem þekktum Brynhildi
vitum að þetta er skáldsaga og
vitum hvað er raunverulegt og
hvað ekki. En hvað með fólk
sem þekkti hana ekki? Hvernig
eiga þeir lesendur að gera mun á
raunveruleika og skáldskap?“
Öllu hefur verið snúið á hvolf.
Fréttir af fræga fólkinu eru aug-
lýsingar í dulargervi. Krafan
um að stjórnmálamenn fari með
rétt mál hefur fyrir löngu verið
látin niður falla. En sannleikur-
inn á hins vegar að ríkja í skáld-
skapnum, hliðarveröldinni þar
sem frelsi til að skrumskæla,
spinna og bulla þótti framan af
óskorað.
Er ekki tími kominn til að
koma tilverunni aftur á réttan
kjöl? Tryggja uppspunanum
fyrrum sess sinn í heimi skáld-
skapar en krefjast þess að
vegur sannleikans sé aukinn í
raunheimum. Maskari lengir
ekki augnhár – hann lætur þau
aðeins virðast lengri. Ef fjöl-
miðill birtir fréttir af vinslitum
sem reynast auglýsing er fjöl-
miðillinn ekki lengur fjöl miðill
heldur auglýsingabæklingur.
Löggjöf á að nota til að bregðast
við raunverulegum vandamálum
sem samfélag stendur frammi
fyrir, hún á ekki að vera vett-
vangur fyrir ráðherra til að fá
útrás fyrir hugmyndafræðilegar
fantasíur sínar. Ef keisarinn er
ekki í neinum fötum þá er hann
einfaldlega nakinn.
Ef keisarinn er ekki í neinum fötum…
Í DAG
Sif
Sigmarsdóttir
rithöfundur
Krafan um að stjórn-
málamenn fari með
rétt mál hefur fyrir löngu
verið látin niður falla. En
sannleikurinn á hins vegar
að ríkja í skáldskapnum …
Skráning á:
opnihaskolinn.is
ÁKVARÐANATAKA
TIL ÁRANGURS
Vinnustofa 14. febrúar kl. 8:30–11:30
STRATEGIC DECISION MAKING
Vinnustofa í Opna háskólanum í HR með
Dr. Eric Weber, aðstoðarrektor IESE viðskipta-
háskólans, fyrir stjórnendur og aðra sem koma
að skipulagi og stjórnun fyrirtækja og stofnana.
opnihaskolinn@opnihaskolinn.is www.nyherji.is
AÐALFUNDUR
NÝHERJA HF.
Föstudaginn 22. febrúar 2013, kl. 16:00 í ráðstefnusal félagsins, Borgartúni 37
Á DAGSKRÁ FUNDARINS VERÐA:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 4.13. gr.
í samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild félagsins til kaupa á
eigin hlutum sbr. 55. gr. hlutafélagalaga.
Réttur hluthafa til að fá mál sett á
dagskrá hluthafafundar og kosning
Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál
tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann
gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til
félagsstjórnar með það löngum fyrirvara að
unnt sé að taka málið fyrir á dagskrá fundarins
sem lögð verður fram viku fyrir fundinn. Þannig
skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en
kl. 16:00 föstudaginn 15. febrúar 2013. Nánari
upplýsingar er að finna á heimasíðu félagsins
www.nyherji.is.
Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri
einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta
ekki atkvæðisréttar. Atkvæðaseðlar og fundar-
gögn verða afhent á fundarstað.
Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja
fundinn geta:
a) veitt öðrum skriflegt umboð.
b) greitt atkvæði skriflega.
Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan
hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á
heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig
að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu
og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til
félagsins.
Aðrar upplýsingar
Öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn,
þ.m.t. ársreikningur félagsins og tillögur
stjórnar eru hluthöfum tiltæk á heimasíðu
félagsins frá og með 31. janúar 2013.
Endanleg dagskrá verður birt á heimasíðu
félagsins viku fyrir fundinn, 15. febrúar 2013,
kl. 16:00.
Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. hluta-
félagalaga skal tilkynna skriflega, minnst
fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð
til stjórnar. Tilkynnt verður um framboð til
stjórnar á heimasíðu félagsins eigi síðar en
tveimur dögum fyrir aðalfundinn.
Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn er
að finna á vefsíðu félagsins, www.nyherji.is.
Reykjavík, 30. janúar 2013.
Stjórn Nýherja hf.