Fréttablaðið - 30.01.2013, Síða 25

Fréttablaðið - 30.01.2013, Síða 25
KYNNING − AUGLÝSING Útfarir30. JANÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR 5 Eftir að fólk hefur verið borið til grafar er legsteinn oftast lagður yfir leiðið til að marka gröfina og sem minnisvarði um hinn látna. Vandaður frágangur og fallegur legsteinn er því mikil- vægur enda á hann eftir að standa þar um ókomna tíð. „Afar mikil- vægt er fyrir viðskiptavini að fá að ræða við einhvern með reynslu og þekkingu af legsteinasmíð þegar velja á stein. Gríðarmargt spilar þar inn í; hönnun, smíði, frágang- ur á legsteini og fleira. Hjá okkur starfa bæði steinsmiðir, hönnuðir og annað fagfólk með mikla þekk- ingu og margra ára reynslu,“ segir Unnar Þór Lárusson hjá Sólstein- um – S. Helgasyni. Menntaðir steinsmiðir Lykilatriði að fagmennsku er að vera með fagmenntað fólk og hjá Sólsteinum – S. Helgason starfa þó nokkrir lærðir steinsmiðir. „Það var einmitt einn steinsmíðanemi hjá okkur að útskrifast nú um ára- mótin og hlaut hann silfurverð- laun forseta Íslands fyrir sveins- stykkið sitt. Þá er annar stein- smiður hjá okkur nýkominn af endurmenntunarnámskeiði í Bretlandi. Við leggjum mikið upp úr því að halda faglegri þekkingu innan fyrirtækisins og endur- speglast það í vörunum og þjón- ustunni sem við veitum.“ Fjöldi steintegunda Hjá Sólsteinum – S. Helgasyni er hægt að velja milli mismunandi steintegunda. „Innfluttu steinteg- undirnar eru granít og marmari en íslensku efnin eru gabbró, líp- arít og stuðlaberg. Í glæsilegum sýningasal okkar á Skemmuvegi 48, Kópavogi, er úrval tilbúinna legsteina sem hægt er að skoða. Þegar fólk hefur valið sér stein eru þeir teiknaðir og settir upp frá A til Ö í tölvu svo hægt er að sjá nákvæma mynd af steininum áður en smíðin hefst.“ Sérsmíðum legsteina „Þá getur fólk komið með óskir eða hugmyndir að útliti eða formi legsteina. Fagfólk okkar hjálp- ar svo til við útfæra hugmyndina svo hún geti orðið að veruleika.“ Skreytingar á leiði og legsteina Ýmsar gerðir skreytinga prýða legsteina og bjóða Sólsteinar – S. Helgason vandaða vöru sem endist. „Við erum með marmarastytt- ur og ýmist skraut úr kopar, svo sem engla, fugla, krossa og blóm. Auk þess útbúum við postulíns- mynd af hinum látna á legstein- inn án endurgjalds. Myndin gerir steininn persónulegri og það eykst ár frá ári að fólk velji að hafa mynd. Um þessar mund- ir erum við svo með lukt og vasa á legstein á tilboði saman á 29.900.“ Uppsetning og frágangur Fagfólk frá Sólsteinum – S. Helgasyni sér um uppsetningu og frágang legsteina allt að 200 kílómetra út fyrir höfuðborgar- svæðið. Sú þjónusta er innifalin í verðinu ásamt sendingarkostn- aði hvert á land sem er. „Legsteinar eru oftast sett- ir upp f ljótlega eftir jarðarför. Þá setjum við frostfrían jarðveg undir steininn og þjöppum. Eftir það á steinninn ekki að halla en við berum hins vegar ábyrgð á þeim endalaust og lag- færum ef eitthvað er að, við- skiptavinum að kostnaðarlausu. Við biðjum fólk að láta okkur vita ef eitthvað kemur upp á eða ef það er ekki ánægt og þá lögum við það. Þetta er hluti af þeirri góðu þjónustu sem við veitum.“ Afmælissteinn á tilboði „Í tilefni afmælisins höfum við framleitt sérstakan stuðlabergs- legstein sem verður á tilboði út árið. Afmælislegsteinninn er með undirsteini, áletrun, lukt, vasa og postulínsmynd og kost- ar 169.000 með uppsetningu í kirkjugarði.“ Unnið í legsteinum í sextíu ár Sólsteinar – S. Helgason fagnar 60 ára afmæli á þessu ári. Þar vinnur sérmenntað fagfólk á öllum sviðum tilbúið til þjónustu. Hægt er að láta sérsmíða legsteina úr bæði íslenskum og erlendum grjóttegundum. Í tilefni afmælisins verður sérstakur afmælislegsteinn úr íslensku stuðlabergi á tilboði út árið. Legsteinar úr íslensku stuðlabergi eru einstaklega fallegir og hafa notið vinsælda í gegnum árin. Ljósker og vasar eru á sérstöku tilboði um þessar mundir á 29.900. Legsteinar úr graníti og marmara, gabbró, líparíti og stuðlabergi eru til sýnis í glæsilegum sýningarsal að Skemmuvegi 48, Kópavogi. Þar er hægt að skoða ýmsar gerðir legsteina. MYND/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.