Fréttablaðið - 27.03.2013, Qupperneq 1
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Miðvikudagur
16
BEINT TIL EDINBORGARBreska flugfélagið easyJet býður nú beint flug milli
Keflavíkur og Edinborgar en félagið hyggst fljúga
þangað tvisvar sinnum í viku – á mánudögum og
fimmtudögum. Edinborg er þriðji áfangastaður
félagsins frá Íslandi og er easyJet eina flugfélagið sem býður
flug héðan til borgarinnar um þessar mundir.
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · HljóðlátStórt op > auðvelt að hlaðaSparneytin amerísk tæki.<Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerískgæðavara
Amerískgæðavara
T ökum á kvikmyndum fylgir oft mikil fjarvera frá heimili og oftar en ekki á stöðum sem skrýddir eru stórbrotnu landslagi. „Í myndinni Noah vorum við til dæmis á Vigdísarvöllum í Krýsuvík sem er einstaklega fallegt svæði. Í svona verkefnum er oft dvalið lengur á stöðum sem maður alla jafna keyrir fram hjá eða stoppar stutt við. Þá stendur maður og horfir á eitthvað fjall í hálfan dag og fer að sjá landið á allt annan hátt,“ segir Eva um upplifun sína af því að dvelja á tökustað. Eva kom einnig að gerð myndarinnar „Á annan veg“ og sá þar um hár, förðun og búninga. „Í Á annan veg vorum við á Patreksfirði en svo var ég einnig í mynd-inni The secret life of Walter Mitty. Þar voru tökur meðal annars í Stykkishólmi og í Borgarnesi. Í Noah var líka farið til Mývatns svo það eru töluverð ferðalög sem fylgja þessu starfi.“ Eitt af fallegum svæðum sem Eva hefur heimsótt í vinnunni er Suðurland. „Ég hef oft verið þar við tökur en þá er gert út frá Vík í Mýrdal. Landslagið á þessu svæði er ótrúlega fallegt og í hvert skipti sem ég fer þangað sé ég eitthvað nýtt við það.“ Ókosturinn við starfið er hins vegar fjarveran frá heimilinu en kvikmyndagerð er mikil t
HEILLANDI LANDSLAG ÁVINNUSTAÐNUMÁ TÖKUSTAÐ Eva Vala Guðjónsdóttir starfar sem búningahönnuður og
aðstoðarmaður við búninga í kvikmyndum. Hún segir margt heillandi við
starfið, eins og að fá að vinna á mörgum af fegurstu stöðum Íslands.
BRÚÐKA PMIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013 KynningarblaðKjólar, kökur, brúðarvendir, smáréttir, húð og hár.
TILBRIGÐI VIÐ TERTU
Bollakökur í stað
brúðartertu 2
MADELEINE GIFTIST
Konung legt
sumarbrúðkaup
í Svíþjóð 8
RÓMANTÍSKT Á FRÓNI
Sífellt fleiri
útlendingar gifta
sig á Íslandi 16
2 SÉRBLÖÐ
Brúðkaup | Fólk
Sími: 512 5000
27. mars 2013
73. tölublað 13. árgangur
Formennirnir funda
Rætt er um að breyta breytingar-
ákvæði stjórnarskrár á þann veg að
40% kjósenda verði að samþykkja
umdeildar breytingar í þjóðar-
atkvæðagreiðslu. 4
Glutraði niður auðæfum Breska
lögreglan vill ekkert fullyrða um það
hvort rússneski auðkýfingurinn Boris
Beresovskí hafi framið sjálfsvíg. 6
Hekla bærir á sér Jarðskjálftar
undir Heklu voru tilefni viðvarana frá
Almannavörnum. Gos er þó ekki talið
yfirvofandi. 8
Hótuðu sjálfsvígi Helmingur sak-
borninga í Guðmundar- og Geirfinns-
málinu reyndi, hótaði eða hugsaði
um sjálfsvíg í gæsluvarðhaldi. 12
SPORT Birnu Valgarðsdóttur vantar
aðeins sextán stig til að rjúfa 5.000
stiga múrinn í efstu deild kvenna. 40
Ný bók eftir
Íslandsvinin
Heklað, prjónað
og saumað!
a Ar os!ne og Carl
YFIR 50 GERÐIR Á LAGER
FARTÖLVUR
15,6” FARTÖLVUR FRÁ
69.990
15,6“
afi
@
m
i.i
s
VIRKJANAMÁL Orkuveita Reykja-
víkur (OR) mun ekki reisa fleiri
virkjanir á Hengilssvæðinu fyrr en
fundist hefur lausn á brennisteins-
vetnismengun. Fyrirtækið hefur
óskað eftir frestun á gildistöku
reglugerðar um hert skilyrði vegna
útblásturs brennisteinsvetnis. Þau
eiga að taka gildi 1. júlí á næsta ári.
Samkvæmt núgildandi reglugerð
má styrkur brennisteinsvetnis í
andrúmslofti fara fimm sinnum á
ári yfir viðmiðunarmörk, en aldrei
þegar breytingin hefur tekið gildi.
OR getur ekki tryggt það nema með
mengunarvarnarbúnaði.
„Ef við getum leyst það vandamál
á Hellisheiðinni svo óyggjandi sé,
þá er okkur óhætt að byggja meira.
Það er aðeins ein virkjun í skoðun
hjá okkur eins og er, það er Hvera-
hlíðarvirkjun. Hún er áformuð 90
megavött og við byggjum hana ekki
fyrr en við erum komin með ein-
hverja lausn á þessu,“ segir Bjarni
Bjarnason, forstjóri OR.
Hverahlíðarvirkjun er ein þeirra
virkjana sem eiga að sjá álveri
Norðuráls í Helguvík fyrir orku.
Fyrirtækið hefur staðið fyrir til-
raunaverkefni sem gengur út á það
að dæla brennisteinsvetninu og kol-
tvísýringi aftur ofan í borholurnar
með affallsvatni. Það hefur gefið
góða raun og hafa Landsvirkjun og
HS Orka gerst aðilar að verkefninu.
Með vísan í tilraunina hafa fyrir-
tækin farið fram á frestun gildis-
töku reglugerðarinnar til 2020. Sú
beiðni er nú á borði umhverfisráð-
herra en Umhverfisstofnun hefur
gefið jákvæða umsögn gagnvart
henni.
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri
í Hveragerði, segir Hvergerðinga
hafa lagst gegn öllum undanþágum
frá þeirri reglugerð sem ráðuneytið
setti, en hún er frá árinu 2010. Hún
segir að undanþágubeiðnin nú sé til
ansi langs tíma. „Mér fyndist eðli-
legt að þetta væri fyrst kynnt fyrir
okkur áður en undanþága verður
gefin. Íbúar verða að hafa sitt að
segja.“ - kóp
Ekki nýjar virkjanir hjá OR
fyrr en mengunarmál leysast
OR hefur beðið um frest á hertum skilyrðum vegna útblásturs brennisteinsvetnis til ársins 2020. Ekki verður
ráðist í nýjar virkjanir á Hellisheiði fyrr en lausn finnst á menguninni. Orka ætluð í álver í Helguvík.
MENNING „Ég hef upplifað gífurlega hneyksl-
un innan sjávarútvegsins vegna þessa mynd-
bands. Þetta kollvarpar öllu því sem við
þekkjum,“ segir Aríel Pétursson stýri maður
um Eurovision-myndbandið Ég á líf með
Eyþóri Inga Gunnlaugssyni.
Aríel segir að í myndbandinu, sem gerist
úti á sjó, sjáist vel að Eyþór Ingi er ekki
alvöru sjómaður. „Hinn almenni Evr-
ópubúi tekur kannski ekki eftir því en
fyrir sjóperverta eins og mig er þetta
alveg hræðilegt,“ segir hann og bætir við að
stærsta synd Eyþórs í myndbandinu sé að
slægja karfa. „Slæging karfa er jafn mikil
fásinna og að skræla bláber eða flysja SS-
pylsu,“ segir Aríel.
Þá þykir Aríel fatnaður söngvarans til
sjós ekki hentugur. „Þessi designer-
frakki er auðvitað alveg út í
hött.“ - trs / sjá síðu 46
Að slægja karfa er jafnmikil fásinna og að flysja SS-pylsu, segir stýrimaður:
Sjómenn hneykslaðir á Eyþóri
➜ Í miklum styrk hefur það áhrif á heilsu. Augu, lungu
og öndunarvegur eru viðkvæm. Veik fylgni hefur
verið á milli útblásturs frá virkjunum og ávísunar
nýrra astmalyfja á höfuðborgarsvæðinu.
➜ Hefur áhrif á raftæki. Verja þarf rafbúnað sem
inniheldur kopar.
➜ Það fellur á málma, til dæmis silfur og kopar.
➜ Lyktarmengun á hægviðrisdögum.
ÁHRIF BRENNISTEINSVETNIS
MENNING Myndlistarkonan Ólöf
Dómhildur selur hárið til að fjár-
magna sýningu. 46
SKOÐUN Sif Sigmarsdóttir veltir fyrir
sér stofnun Latte-lista gegn ófor-
skömmuðu kjördæmapoti. 17
Bolungarvík -1° NA 6
Akureyri 2° N 2
Egilsstaðir 1° NA 3
Kirkjubæjarkl. 3° NA 5
Reykjavík 5° NA 7
Hlýjast syðst Í dag má búast við A- og
SA-átt, víða 2-6 m/s en hvassara við
SV-ströndina. Heldur skýjað, stöku skúrir
syðst en éljagangur NV-til. 4
EYÞÓR INGI GUNNLAUGSSON
SLYS Örvar Arnarson, annar mann-
anna sem lést í fallhlífarstökk-
slysi á Flórída
á laugar dag,
gerði allt sem
hann gat til að
bjarga Andra
Má Þórðarsyni,
sem einnig lést.
Þetta sýnir upp-
taka úr mynda-
vél á hjálmi
Örvars. „Hann
var hetja. Hann
dó hetja,“ segir William Lindsey,
fulltrúi lögreglustjórans í Paco-
sýslu í Flórída.
Á upptökunni sést að Andra
tókst ekki að opna fallhlíf sína, en
óljóst er hvort hann var með með-
vitund eða ekki. Þar sést hvernig
Örvar, sem var mjög reyndur fall-
hlífastökkvari, reyndi að bjarga
lífi Andra með því að toga í streng-
inn á fallhlíf hans, án árangurs. - bj
Reyndi að bjarga lífi Andra:
Örvar var hetja
segir lögreglan
ÖRVAR
ARNARSON
GOTT FÆRI Skíðafólk hefur notið góðviðrisins síðustu daga og fjölmennt í brekkurnar í Bláfjöllum. Útlit er fyrir að vel
viðri til skíðaiðkunar yfir páskana og verður opið frá 10 til 17 alla daga um páskahelgina ef veður leyfir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM