Fréttablaðið - 27.03.2013, Page 18

Fréttablaðið - 27.03.2013, Page 18
27. mars 2013 MIÐVIKUDAGUR| SKOÐUN | 18 Opið frá kl. 11–20 alla daga Engihjalla og Granda 4 þykkir 115 g, stórir hamborgarar með brauði aðeins 999 kr. 999kr. pk 4 x 115 g ham borgar ar og b rauð /Ú FÆ R[ M EIRA FYRIR PENI NGIN N Í ICEL AND Á EINSTÖKU VER[I BORGARAR NAGGAR HAKK Á m eð an b irg ði r e nd as t 1.389kr. kg Kjarnafæ ði nautgr ipahakk verð áður 1.578 100% nautgrip ahakk 998kr. pk Iceland kjúkling anaggar verð áðu r 1.149 Á landsfundi Sjálfstæðis- flokksins í febrúar sl. var samþykkt tillaga þess efnis að hætta beri viðræðum við Evrópusambandið og ekki taka aftur upp viðræður fyrr en að lokinni þjóðar- atkvæðagreiðslu. Á lands- fundi þar á undan hafði verið samþykkt að gera hlé á viðræðunum og að þær færu ekki aftur af stað fyrr en að lokinni þjóðar- atkvæðagreiðslu. Mikill munur er á því að hætta viðræðum og gera hlé á þeim. Það er undarleg stefna að slíta viðræðum við Evrópusambandið og ætla svo að kjósa einhvern tíma á fyrri hluta næsta kjörtímabils um það hvort óska eigi aftur eftir við- ræðum. Það veikir mjög samnings- stöðuna að óska eftir að hefja hugs- anlega viðræður að nýju að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Fyrrver- andi varaformaður flokksins hefur komið með þá hugmynd að kosið verði samhliða næstu alþingis- kosningum. Ólíkar skoðanir Tveir sjálfstæðismenn, þeir Björn Bjarnason, fv. ráðherra mennta- mála og dómsmála, og Þorsteinn Pálsson, fv. forsætisráðherra og sjávarútvegsráðherra, skrifa reglu- lega greinar og pistla sem ég les með athygli enda reynsla þeirra, þekking og yfirsýn mikil. Björn Bjarnason vill slíta viðræðum við Evrópusambandið og að þjóðin kjósi síðar um það hvort hefja eigi þær á nýjan leik. Þorsteinn Páls- son vill hins vegar ljúka yfirstand- andi viðræðum og ganga til þjóðar- atkvæðagreiðslu um niðurstöðuna. Síðastliðinn föstudag, 22. mars, skrifar Björn Bjarnason á vefsíðu sinni: „Það er með ólíkindum að hér berjist menn fyrir að Íslendingar komist að sameiginlegri niðurstöðu með stækkunardeild ESB um aðild að sambandinu til að hljóta sömu stöðu og Kýpur, jafnvel enn meira ósjálfstæði vegna samrunaþróunar innan ESB.“ Tilvitnun lýkur. Á Facebook-síðu sinni sl. sunnu- dag vitnar Björn í grein eins besta blaðamanns Breta: „Southern Europe lies prostrate before the German imperium.“ „Cyp- rus is only the first vic- tim of a one-size-must-fit- all policy that is made in Berlin.“ Vandi Kýpur Það er mjög óeðlilegt að líkja Kýpur og vanda- málum þeirra eitthvað við Ísland. Stærðin skiptir ekki öllu máli og vandi Kýpur er allt annar en Íslendinga. Vandi Kýpur snýst um áhrif fjármagnsflæðis frá Rúss- um og fleirum, peningaþvætti og skattaskjól. Kýpur hefur verið nokkurs konar fjármálamiðstöð með allt of stórt bankakerfi eins og Ísland var fyrir hrun. Í leiðurum Morgunblaðsins þann 25. og 26. mars er svo gert grín að öllu saman og eins og venjulega gert eins lítið og hægt er úr Evr- ópusambandinu og farið niður á Ragnar Reykás-plan. Mér finnst ekki við hæfi að fjalla um þessi mál í anda Spaugstofunnar eða Hraðfrétta. Nær væri að upplýsa lesendur um það sem raunverulega er að gerast. Það sem er að gerast á Kýpur hefur verið að gerast á Íslandi und- anfarna áratugi, bara undir öðrum formerkjum og með öðrum aðferð- um. Verðmæti fjármuna fólks og fasteignir rýrna sífellt og á tímum óðaverðbólgu voru tugir prósenta teknir af innistæðueigendum í bönkum. Með lágum vöxtum á innistæður eða vegna verðbólgu minnka sífellt raunveruleg verð- mæti peninga og fasteigna. Við það bætist að verðtryggingin, sem er afleiðing verðbólgu og veikrar myntar, leiðir til sífelldrar eigna- upptöku hjá innistæðueigendum í bönkum og til lakari lífskjara. ESB er að breytast Það er ekki óeðlilegt að Evrópu- sambandið taki á þessum málum á Kýpur alveg eins og við Íslend- ingar tókum á okkar málum við bankahrunið. Í bankakreppunni á Kýpur eru farnar nýjar leiðir eins og Jeroen Dissjelbloem, fjár- málaráðherra Hollands, bendir á. Getur verið að ESB sé eitthvað að horfa til reynslunnar á Íslandi? Getur ekki verið að Íslendingar eigi einhver tækifæri í samninga- viðræðunum og að tekið verði tillit til smæðar Íslands og sérstöðu og einnig styrkleika og þekkingar á mörgum sviðum, svo sem í sjávar- útvegs- og orkumálum? Enn tími fyrir Sjálfstæðisflokkinn Ég vil hvetja forystumenn Sjálf- stæðisflokksins og alla sem styðja flokkinn að hætta áróðri á annan hvorn veginn um Evrópusam- bandið og berjast frekar saman fyrir öðrum mikilvægari málum. Auðvitað á ekkert okkar að fara úr flokknum þótt einhver mis- munandi sjónarmið séu í Evrópu- málum. En það má þá ekki læsa dyrum og hleypa ekki öðrum sjón- armiðum inn. Höldum á lofti þeirri stefnu sem skynsamlegust er, þ.e. að treysta næstu ríkisstjórn, sem Sjálfstæðisflokkurinn á vonandi aðild að, til að ljúka viðræðunum eftir það hlé sem nú er í gangi og ná fram þeim besta samningi sem kostur er. Það mun styrkja stöðu og valkosti Sjálfstæðisflokksins eftir kosningar. Kosningaloforðið á ekki að vera að slíta fyrirvaralaust við- ræðum við ESB. Það kemur ekki í veg fyrir að sjálfstæðismenn sem það vilja geti verið þeirrar skoðun- ar að Íslandi sé betur borgið utan Evrópusambandsins. Þjóðin á aftur á móti rétt á að fá fram niðurstöðu viðræðnanna og kjósa svo um þá niðurstöðu. Ísland er ekki Kýpur norðursins EVRÓPUMÁL Þorkell Sigurlaugsson viðskiptafræðingur Sæl Katrín. Mig langar að kynna þig fyrir íþróttaaðstöðunni á Stokkseyri. Íþróttahúsið, sem er gamalt iðnaðarhúsnæði, er 230 fermetrar að stærð, þar af er geymslu- pláss um 30 fermetrar. Sökum þess hversu lítið geymsluplássið er þarf að geyma ýmis áhöld á öðrum stöðum og má þar nefna borðtennisborð sem geymt er inni á kló- setti sem ætlað er einstaklingum í hjólastól, og fimleikahest, sem er geymdur í anddyri hússins og er hann staðsettur fyrir framan einu brunavarnir hússins. Borð í eigu Ungmennafélags Stokks- eyrar eru geymd úti í ryðg uðum gámi og eru þau öll með tölu orðin ónýt vegna myglu og kulda. Um 150 stólar eru geymdir á gangi hússins og eru þeir stað- settir beint fyrir framan bún- ingsklefana. Einnig eru miklar raka- skemmdir í húsinu sökum leka en í þau sex ár sem ég hef starf- að í húsinu hefur ekki mátt rigna án þess að þakið leki, og nú er lekinn farinn að berast úr veggj- unum. Í íþróttahúsinu eru kennd- ar skólaíþróttir fyrir 1.-6. bekk Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri. Þar eru einnig starf- andi fimleikadeild og taekwondo- deild, auk þess sem húsnæðið er notað undir íþróttaskóla fyrir börn á leikskólaaldri, körfubolta- iðkun, líkamsrækt fyrir full- orðna og ýmis veisluhöld endrum og eins. Samtals telur þetta um 600 heim- sóknir á viku. Langvarandi aðgerðaleysi Nú er á dagskrá hjá Sveit- arfélaginu Árborg að skipta um þak á húsnæð- inu auk þess sem þau hafa frá því um áramótin verið að reyna að finna lausn til þess að stækka geymslu- plássið. Inni á fimm til tíu ára plani bæjarstjórnar- innar er svo að byggja nýtt íþrótta- hús hér á Stokkseyri. Væri ekki nær lagi að hefjast strax handa við bygg- ingu á nýju íþróttahúsi í stað þess að vera að eyða fjármunum í ónýtt hús- næði? Sveitarfélaginu hefur tekist að byggja upp stórgóð íþróttamann- virki á Selfossi og stuðla þannig að frábæru íþróttastarfi þar í bæ. Það verk sem sveitarfélagið hefur unnið þar er til fyrirmyndar og á það heið- ur skilið fyrir þá uppbyggingu. Að sama skapi ætti sveitarfélagið að skammast sín fyrir aðstöðuna sem það býður okkur Stokkseyringum og nærsveitungum upp á og lang- varandi aðgerðarleysi þeirra í end- urbótum á því. Ég vil nota tækifærið og minna á það sem stendur í Stefnuskrá Árborgar um íþrótta- og tómstunda- mál. Þar stendur meðal annars: ■ Að markmið sveitarfélagsins með íþrótta- og tómstundastarfi sé að gæta jafnréttis í hvívetna og veita öllum tækifæri til að eflast og þroskast á eigin forsendum, óháð efnahag, búsetu, aldri eða stöðu að öðru leyti. ■ Að skapa sveitarfélaginu jákvæða ímynd og gera það enn eftirsóknar- verðara til búsetu. ■ Að börn og unglingar kynn- ist mörgum íþróttagreinum og fái þannig tækifæri til að velja þá grein sem þeim best hentar. ■ Að bæta aðstöðu fyrir hvers konar almenningsíþróttaiðkun og auka fjölbreytni. ■ Að tryggja eldri borgurum greið- an aðgang að íþróttamannvirkjum. Svo virðist sem Stokkseyri og Eyrarbakki flokkist ekki undir þessa annars ágætu stefnuskrá og veit ég fyrir víst að íbúar þorp- anna, bæði ungir sem aldnir, vilja sjá breytingar þar á. Mér er mjög annt um börnin er búa hér á svæðinu og stunda skóla- íþróttir og aðrar tómstundir utan skóla í íþróttahúsnæðinu okkar. Aðstaðan sem þeim er boðin upp á er til háborinnar skammar og hættuleg heilsu þeirra sem hlaupa þar um oft í viku. Getur þú, sem mennta- og menn- ingarmálaráðherra og yfirmað- ur íþróttamála á landinu, hjálpað okkur íbúum Stokkseyrar og Eyrar- bakka í baráttu okkar við sveitar- félagið Árborg um að fá mann- sæmandi íþróttaaðstöðu fyrir börn okkar? Með fyrirfram þökk. Opið bréf til mennta- og menningarmálaráðherra ➜ Ég vil hvetja forystumenn Sjálfstæðisfl okksins og alla sem styðja fl okkinn að hætta áróðri á annan hvorn veginn um Evrópusamband- ið og berjast frekar saman fyrir öðrum mikilvægari málum. ➜ Væri ekki nær lagi að hefjast strax handa við bygg- ingu á nýju íþróttahúsi í stað þess að vera að eyða fjár- munum í ónýtt húsnæði? ÍÞRÓTTIR Tinna Björg Kristinsdóttir íþróttafræðingur og tveggja barna móðir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.