Fréttablaðið - 27.03.2013, Page 56
27. mars 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 32
Ég tók þátt í samsýningu á síðasta
ári og þessi sýning er eiginlega
framhald af henni,“ segir Gunn-
hildur Þórðardóttir myndlistar-
maður sem á laugardaginn opnar
sýninguna Minningar í kössum/
Boxed memories í Flóru á Akur-
eyri. „Ég er að vinna litlar inn-
setningar inn í kassa. Ég nota
afganga og alls konar dót í verkin,
þannig að efniviðurinn er fundið
efni. Mér finnst rosalega gaman
að vinna með þessi box og gera
eitthvað myndrænt í þau.“
Á sýningunni eru ný verk,
textaverk, innsetning og skúlp-
túrar sem fjalla um minningar.
„Við geymum minningar oft í
eins konar hólfum í heilanum sem
við getum lokað og opnað. Minn-
ingar sem slíkar eru ekki endi-
lega áreiðanlegar heimildir en
þær hafa eitthvað með for tíðina
að gera og mynda heild í huga
manns. Minningar fólks eru eins
konar vitneskja um liðna atburði
oft sveipaðar fortíðarþrá,“
útskýrir Gunnhildur.
Í tilefni af alþjóðlegum degi
ljóðsins, þann 21. mars, gaf Gunn-
hildur út ljóðabókina Blóðsteina/
Bloodstones sem verður fáanleg á
sýningunni. „Ég vinn mikið með
texta og hef gengið með þessa
bók í maganum mjög lengi. Mér
er eðlilegt að vinna með texta
og finnst mjög skemmtilegt að
blanda þessu saman. Ljóðin hafa
skírskotun í þema sýningarinnar,
minningar. Ég get auðvitað bara
skrifað út frá eigin reynslu en
það er ákveðin fortíðarþrá í
ljóðunum. Maður hefur tendensa
til að hugsa til baka og ákveðnar
minningar sitja í manni.“
Ljóðin eru bæði á ensku og
íslensku og Gunnhildur segist
hafa þýtt þau sjálf en fengið
manninn sinn, sem er enskur, til
að prófarkalesa og fara yfir enska
textann. Hún segist hlakka til
að fara norður og dvelja þar um
páskana með fjölskyldunni. „Mér
finnst alltaf ofsalega gaman að
fara norður og sýna þar, það er
svo mikil gróska í myndlistinni á
Akureyri.“
Sýningin er öllum opin á opn-
unartíma Flóru mánudaga til
föstudaga kl. 11-13 og 16-18 og
laugardaga kl. 13-16 og stendur
til laugardagsins 4. maí.
fridrikab@frettabladid.is
Vitneskja um
liðna atburði
Minningar í kössum nefnist sýning Gunnhildar
Þórðardóttur sem opnuð verður í Flóru á laugar-
daginn. Gunnhildur sendi nýlega frá sér ljóðabókina
Blóðsteina með ljóðum bæði á íslensku og ensku.
MINNING Eitt verkanna á sýningunni.
MINNINGAR Í KÖSSUM Gunnhildur segir minningar einatt einkennast af
fortíðarþrá.
Gunnhildur lauk BA-prófi í listasögu og fagurlistum frá Listaháskólanum
í Cambridge árið 2003 og MA-prófi í liststjórnun frá sama skóla árið
2006. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar, meðal annars Fráhvörf í
SÍM- salnum og sýninguna Losun í sal Íslenskrar grafíkur í fyrra, auk þess
að taka þátt í samsýningum í 002 galleríi og í myndbandsgjörningi í Tate
Britain á síðasta ári. Þetta er hennar tólfta einkasýning en hún hefur tekið
þátt í fjölda samsýninga, bæði hér heima og erlendis.
Ferill Gunnhildar
Skráning í síma 618 7559 og
heidur.bjornsdottir@gmail.com
Verð kr. 6.900,-
Á námskeiðinu lærir þú:
• Hvernig á að byrja
• Sáning og forræktun
• Hvernig plantað er út
• Hvaða áhöld þarf
• Hvernig útbúa á matjurtagarð
• Hvernig plönturnar fá næringu
• Hvernig fá má uppskeru allt sumarið
• Ræktun í pottum og ílátum
• Hvaða jurtir eru fjölærar o.m.fl.
HEIÐUR BJÖRNSDÓTTIR kennir hversu auðvelt það er að rækta grænmeti og kryddjurtir og
gefur góð ráð sem nýtast byrjendum jafnt sem lengra komnum. Fjallað er um grundvallaratriði
ræktunar svo nemendur öðlist þá þekkingu og sjálfstraust sem þarf til
að rækta allt það sem hugurinn girnist.
Innifalin eru námskeiðsgögn sem hægt
er að nota sem handbók ár eftir ár!
Námskeiðið er haldið í Lágmúla 5
Eingöngu selt á hársnyrtistofum
A Ð A L F U N D U R C C P h f .
Aðalfundur CCP hf., kt. 450697-3469, verður haldinn 11. apríl 2013 á skrifstofu
félagsins að Grandagarði 8, Reykjavík og hefst kl. 10.00.
D A G S K R Á :
Venjuleg aðalfundarstörf skv. gr. 4.07 samþykkta félagsins
Undir dagskrárliðnum “breytingar á samþykktum” verður tekin fyrir eftirfarandi
tillaga:
Stjórn félagsins er heimilt að ákveða hækkun hlutafjár um allt að kr. 2.000.000 að
nafnvirði með útgáfu nýrra hluta, í einu lagi eða í áföngum. Heimildin gildir til 11.
apríl 2018 og fellur niður þann dag að því leyti sem hún hefur ekki þegar verið nýtt.
Heimild þessa má einungis nota í tengslum við efndir kaupréttarsamninga við
starfsmenn félagsins, dótturfyrirtækja eða fyrirtækja innan sömu fyrirtækjasam-
stæðu. Hluthafar hafa ekki forgangsrétt til áskriftar að hlutum sem gefnir eru út
samkvæmt heimild þessari. Hinir nýju hlutir skulu veita réttindi í félaginu frá þeim
degi sem þeir eru afhentir starfsmanni skv. skilmálum kaupréttarsamnings. Allar
aðrar og núverandi heimildir stjórnar til þess að hækka hlutafé félagsins, og taldar
eru upp í gr. 2.02- 2.05 í samþykktum félagsins, eru afturkallaðar og ógildar.
Undir dagskrárliðnum “ Önnur mál, sem löglega eru upp borin“ verður tekin fyrir
eftirfarandi tillaga:
Uppfærð kaupréttaráætlun fyrir félagið verður kynnt og lögð fyrir fundinn til
samþykktar. Uppfærða áætlunin var áður samþykkt af stjórn félagsins og er ætlað
að koma í staðinn fyrir útrunnin og úrelt ákvæði sem varða kaupréttarsamninga
félagsins.
Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn CCP hf.
skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins eigi síðar en 5 sólarhringum fyrir
upphaf aðalfundar. Þeir einir eru kjörgengir sem þannig hafa gefið kost á sér.
Dagskrá, endanlegar tillögur, ársreikningur félagsins, nýja kaupréttaráætlunin og
samantekt um efni hennar munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til
sýnis frá og með 4. apríl 2013, 7 dögum fyrir aðalfundinn.
Aðalfundarstörf munu fara fram á ensku.
Reykjavík 27. mars 2013
Stjórn CCP hf.
MENNING