Fréttablaðið - 27.03.2013, Side 60

Fréttablaðið - 27.03.2013, Side 60
27. mars 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 36 Banabiti átta mánaða langs ástar- sambands tónlistarfólksins Katy Perry og Johns Mayer, sem lauk í síðustu viku, mun hafa verið símanúmer konu sem Perry fann í hanskahólfinu í bíl Mayers. Slúðurmiðlar ytra höfðu áður leitt að því líkur að miklum önnum beggja við tónlistar sköpun og hljómleikaferðir væri um að kenna. Ónefndur heimildar maður breska tímaritsins Grazia vill þó meina að parið hafi verið á leið- inni á hundaheimili í Los Angeles í Land Rover-bíl Mayers þegar það ákvað að taka bensín. Þá hafi Perry opnað hanskahólfið, fundið síma númer hjá annarri konu skrifað á servíettu og eitt hafi leitt af öðru. Síðan þá hafi þau ekki talast við. Símanúmer á servíettu varð banabitinn KATY PERRY Átti í ástarsambandi við John Mayer í átta mánuði. „Það sem er sérstakt er að hann var felldur með skammbyssu á 170 metra færi,“ segir Páll Reynisson hjá Veiðisafninu á Stokkseyri. Strútur sem hann veiddi í Suður- Afríku árið 2010 er loksins kominn til Íslands ásamt sex öðrum uppstoppuðum dýrum sem hann veiddi. Strúturinn, sem er tveggja metra hár, er í heilu lagi rétt eins og krókódíll sem hann veiddi. Óvenjulegt er að strútar séu til sýnis hér á landi. „Ég veit ekki um neinn annan uppstoppaðan strút í heilu lagi á Íslandi en ég veit að menn sem hafa veitt strúta hafa tekið fjaðrir.“ Vanalega tekur það Pál eitt og hálft ár að fá dýr til landsins eftir að hann hefur látið stoppa þau upp. „Svo skeður það að þeir skrifa eftirnafnið mitt vitlaust á einhverja pappíra á skrifstofu í Suður-Afríku og það tók fjóra mánuði að leiðrétta það. Þá byrjar vitleysan og það tekur tvö ár að fá þessa sendingu heim,“ segir hann. Í sýningarsali safnsins eru líka komnir fjórir frampartar af antilópum og einnig er upp settur frampartur af mjög stórum nas- hyrningi sem tekið var plastmót af. Nashyrninginn skaut Páll með sérsmíðuðum riffli sem skýtur deyfipílum og var um svokall- aða björgunarveiði að ræða. Nas- hyrningurinn er enn þá lifandi en tekin voru af honum hornin svo forða megi honum frá veiðiþjófum sem stunda ránsveiðar á nashyrn- ingum til að vinna duft úr hornum þeirra. Veiðisafnið verður opið alla páskana frá klukkan 11 til 18. - fb Skaut strútinn af 170 metra færi Tveggja metra uppstoppaður strútur er til sýnis í Veiðisafninu á Stokkseyri. MEÐ STRÚTINN Páll Reynisson með strútinn sem hann veiddi í Suður-Afríku. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013 Sýningar 18.00 Gestalistamenn SÍM opna sýn- inguna OB-skyr.is að Seljavegi 32. Upplestur 18.00 Ragnheiður E. Árnadóttir les 50. Passíusálminn í Grafarvogskirkju í til- efni föstunnar. Kvikmyndir 16.30 Konfúsíusarstofnunin Norðurljós sýnir kvikmyndina Villta Kína V, Heim- kynni pöndunnar í stofu 132 Öskju. Allir eru velkomnir. Uppákomur 20.00 Tískusýning annars árs nema LHÍ verður haldin á efstu hæð Höfðatorgs. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Dans 14.00 Síðdegisdans verður haldinn hjá Félagi eldri borgara í Reykjavík, Stangarhyl 4. Stjórnendur eru Matthildur og Jón Freyr. Tónlist 21.00 Kristjana Stefáns, Svavar Knútur og Robert the Roommate skemmta á Café Rosenberg. 22.00 Partíþokan heldur sitt síðasta partý á Faktory við Smiðjustíg. Á stokk stíga Jónas Sigurðsson, Prins Póló, Borko og Sin Fang. Miðaverð er kr. 2.000. 23.00 Óli Ofur, BennSol, Mr. Cuellar og Oculus slá upp dansfögnuði á Volta. Aðgangseyrir er kr. 1.000. 23.00 Hljómsveitin Úlfarnir leikur á Páskadansleik á Ob-La-Dí-Ob-La-Da Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1.000. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is E N N E M M / S ÍA / N M 5 6 8 9 5 VÍNBÚÐIRNAR UM PÁSKANA Kynntu þér páskaopnun allra Vínbúða á vinbudin.is eða á farsímavef okkar m.vinbudin.is. OPIÐ Í DAG 10-20 SKEIFAN | DALVEGUR SKÚTUVOGUR Miðvikudagur 27. mars OPIÐ 11-19 Skírdagur lOkAÐ Föstudagurinn langi lOkAÐ laugardagur 30. mars OPIÐ 11-18 Páskadagur lOkAÐ Annar í páskum lOkAÐ opnunartímar Á höFuÐbOrGArSvæÐInu OG AkureyrI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.