Fréttablaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 66
27. mars 2013 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 42 HANDBOLTI Stefán Rafn Sigurmannsson hefur skotist upp á stjörnuhimininn með frammistöðu sinni með þýska úrvals- deildar félaginu Rhein-Neckar Löwen. Stefán Rafn gekk til liðs við stórlið Löwen frá Haukum í desember en þá var þessi 22 ára hornamaður markahæsti leikmaður N1-deildar karla. Alvarleg meiðsli þýska landsliðsmannsins Uwe Gensheimer urðu til þess að Stefán fékk símtal frá Mann- heim og skömmu síðar var hann kominn í búning ljónanna og fór þar að auki beint inn í byrjunarliðið. „Þetta tók um tvær vikur en það var í raun aldrei spurning um að ég myndi fara út. Þetta er frábært lið með góða þjálfara og ég var handviss um að ég myndi bæta mig mikið hérna,“ segir Stefán við Fréttablaðið. Stefán segir það vissulega ansi stórt skref að fara úr N1-deildinni til toppliðs þýsku úrvalsdeildarinnar en hann hefur aldrei farið í felur með þá áætlun sína að gerast atvinnumaður í handbolta. „Ég er náttúrulega nettur egóisti og stefndi allt- af hátt. En ég gat aldrei ímyndað mér að fyrsta skrefið mitt væri að koma hingað í svona rosalega sterkan klúbb. Þetta er bara frábært í alla staði.“ Mætti með kassann útþaninn Það voru ekki minnstu skórnir í hand- boltaheiminum sem Stefán þurfti að fylla en þýski töframaðurinn Uwe Gens heimer spilaði í vinstra horninu hjá Löwen áður en slitin hásin batt enda á tímabilið hjá honum. „Hann er náttúrulega frábær leikmaður sem aðdáendur Löwen gjör- samlega dýrka en ég mætti bara tilbúinn í slaginn með kassann útþaninn – það þýðir ekkert annað. Það skiptir mig engu máli hvað hann er góður í handbolta á meðan ég er inni á vellinum. Ég veit að ég get alveg spilað handbolta og nú er bara að halda áfram að standa sig.“ Fyrsti leikur Stefáns með Rhein- Neckar Löwen var í bikarkeppninni gegn Magdeburg en kappinn fann lítið fyrir stressi í frumraun sinni á þýska hand- boltadúknum. „Mér leið mjög vel inni á vellinum, alveg frá fyrstu mínútu. Ég var búinn að undirbúa mig vel og þetta gekk bara eins og í sögu.“ Guðmundur Guðmundsson er löngu orðinn frægur fyrir sína ítarlegu mynd- bandsfundi og Stefán hefur setið þá nokkra síðan hann gekk til liðs við Löwen. „Gummi er auðvitað fagmaður og finnur lausnir við nánast öllu sem and- stæðingurinn getur teflt fram. Að sitja slíka fundi með Gumma Gumm eru for- réttindi,“ segir Stefán brosandi. Kominn með „staðgöngumóður“ Mikill Íslendingabragur hefur verið á liði Rhein-Neckar Löwen undanfarin ár en landsliðsmennirnir Guðjón Valur Sigurðs- son, Ólafur Stefánsson, Róbert Gunnars- son og Snorri Steinn Guðjónsson hafa allir leikið með liðinu. Núna er Alexander Petersson liðsfélagi Stefáns Rafns og svo þjálfar auðvitað Guðmundur Guðmunds- son liðið. Stefán segir Íslendingana auð- velda mikið aðlögun sína í Þýskalandi. „Ég hef grætt helling á því að geta leitað til þeirra og það er óneitanlega þægilegra að hafa einhverja sem tala íslensku, svona rétt á meðan maður er að koma sér inn í tungumálið og menn- inguna. Ég er ekki byrjaður í þýskunámi enn þá en það stendur til bóta.“ Þrátt fyrir að vera ekki kominn nógu vel inn í tungumálið, segir Stefán að það sé engu að síður frekar auðvelt að komast inn í það tungumál sem notað er á hand- boltaæfingum. „Þetta er í grunninn allt sama þvaðrið, bara með örlitlum áherslu- breytingum,“ segir Stefán léttur. Alexander Petersson og Eivor Pála Blöndal, eiginkona hans, búa örstutt frá Stefáni og hafa reynst hinum unga atvinnumanni vel. „Það er bara snilld að hafa þau á svæðinu og ég er mjög oft heima hjá þeim. Alex gefur mér góð ráð í handboltanum og Eivor er svo orðin „mamma mín“ – alltaf tilbúin með ráð varðandi þvottavélina og svona þessa helstu hluti sem ungur maður eins og ég hefur ekki hundsvit á,“ segir Stefán hlæjandi. Stefán gefur lítið fyrir þá mýtu að einstæðir atvinnumenn í íþróttum séu miklir kvennaljómar. „Það er frekar rólegt í þessum málum, eiginlega bara pollrólegt. Ég er mikið í tölvunni eins og flestir ungir menn – kíki í Playstation 3 og horfi á kvikmyndir. Allt hitt dæmið er bara í fyrsta gír eins og er enda nægur tími til þess að skoða það seinna meir.“ Hjá Rhein-Neckar Löwen er valinn maður í hverju rúmi og nokkrir af betri handboltamönnum heims eru liðs félagar Stefáns. Ungi Íslendingurinn fékk þó aldrei einhvers konar stjörnustæla frá liðsfélögum sínum. „Það voru allir mjög vinsamlegir og ekkert að pönkast í nýlið- anum. Þetta er þéttur hópur og það eru allir leikmenn með fæt- urna kyrfilega fasta á jörðinni. Gummi er líka mjög jarðbund- inn og með góðan fókus á verkefnið og það smitast út í leik- mennina.“ Landsliðið stóra markmiðið Stefán spilaði mikið í skyttuhlutverk- inu með Haukum en sú ákvörðun að einbeita sér algjör- lega að vinstra horn- inu hefur heldur betur skilað sér. „Það var eitthvað smá vesen með skyttustöðuna hjá Haukum og því var ég að spila þar en ég er 100% hornamaður og hef verið alveg síðan í þriðja flokki. Ég er mjög ánægður með að hafa einbeitt mér að minni bestu stöðu.“ Íslendingar hafa alltaf átt frambæri- lega hornamenn og nú eru margir efni- legir leikmenn að banka á landsliðs- dyrnar, ekki síst í vinstra horninu þar sem Stefán Rafn, Bjarki Már Elísson og Oddur Grétarsson eru fremstir meðal jafningja. Þeir þurfa þó að ryðja heimsklassaleikmanni úr veginum, þar sem Guðjón Valur Sigurðsson hefur einokað þessa stöðu í mörg ár. „Eitt af mínum stóru markmiðum er að verða lykilmaður í landsliðinu og það hefur ekkert breyst. Gaui er enn þá ansi frambærilegur leikmaður en ég held bara áfram að mæta á æfingar, gera mitt besta og svo er bara að sjá hvort ég næ þessu markmiði eða ekki,“ segir Stefán að lokum. - bg VAXIÐ MEÐ VERKEFNINU Ég er nettur egóisti Stefán Rafn Sigurmannsson, leikmaður Rhein-Neckar Löwen, hefur komið sterkur inn í þýsku deildina. Kann að spila handbolta en kann ekki á þvottavél. Stefnir á stórt hlutverk með landsliðinu. Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Rhein- Neckar Löwen, segir að nokkrir leikmenn hafi verið undir smásjá félagsins þegar þýski landsliðsmaðurinn Uwe Gensheimer sleit hásin í nóvember sl. „Það voru nokkur nöfn sem við skoðuðum og á endanum varð Stefán fyrir valinu. Haukarnir voru mjög sanngjarnir og þetta ferli gekk allt saman mjög vel. Stefán hefur frá fyrsta leikdegi staðið sig mjög vel og vaxið með verk- efninu, sem er mjög mikilvægt.“ Að sögn Guðmundar var Stefán Rafn hugsaður sem byrjunarliðs- maður frá upphafi og að hann myndi spila stórt hlutverk hjá Löwen. „Stebbi býr við þann munað að æfa með heimsklassa- leikmönnum og þarf t.d. að glíma við tvo af betri markvörðum heims á nánast hverjum degi.“ Stefán samdi við Rhein-Neckar Löwen til vors og er því með lausan samning í lok tímabils. Guðmundur segir Uwe Gensheimer hafa verið undir miklu álagi undanfarin tímabil og því þurfi liðið að eiga tvo góða horna- menn. Það eru því ágætar líkur á því að Löwen bjóði Stefáni nýjan samning. 1750 POTTURINN STEFNIR Í Fyrsti vinningur stefnir í 120 milljónir og Ofurpotturinn stefnir í 1.630 milljónir. Ekki gleyma að vera með, fáðu þér miða fyrir klukkan fimm í dag á næsta sölustað eða á lotto.is 120.000.000 +1.630.000.000 ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM! MIÐINN GILDIR 27. MARS 2013A. 12 14 17 21 41 48 B. 05 16 23 36 37 38 C. 07 09 13 22 34 38 D. 03 06 19 24 25 31 E. 11 19 21 25 38 42 F. 01 25 35 36 39 46 G. 18 19 20 23 28 46 H. 22 27 29 39 40 42 82310000183296 SÝNING Stefán Rafn gengur inn á völlinn í mikilli ljósadýrð sem hæfir leikjum í stærstu deild heims. NORDICPHOTOS/GETTY
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.