Fréttatíminn - 29.10.2010, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 29.10.2010, Blaðsíða 2
Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@ frettatiminn.is BARA KREISTA! H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 0 -1 2 0 4 Móðir sextán ára stúlku sendi bréf á blogg fjölmiðlamannsins Sölva Tryggva- sonar í vikunni þar sem hún lýsti yfir miklum áhyggjum af afdrifum ósak- hæfra ungra kynferðisafbrotamanna. Dóttur hennar var nauðgað af fjórtán ára strák sem var ósakhæfur sökum aldurs. Móðirin sagði frá því hvernig atburð- urinn hefði farið með líf dóttur hennar og spurði síðan hvað væri gert í tilfelli gerandans þar sem hún hefði hvarvetna komið að lokuðum dyrum með fyrir- spurnir sínar. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barna- verndarstofu, segir í samtali við Frétta- tímann að það sé eðlilegt að konan hafi ekki fengið nein svör enda gildi trúnaður um hvert einstakt mál. Hann segir hins vegar að því fari fjarri að engin úrræði séu til fyrir kynferðisafbrotamenn undir lögaldri. „Við höfum fjölgað úrræðunum á undanförnum árum,“ segir Bragi. Úrræðin eru þrenns konar, að sögn Braga, eftir að einstaklingar hafa sætt greiningu. Í fyrsta lagi er um að ræða vistun á meðferðarheimilinu Stuðlum þar sem einstaklingar fá meðferð og geta síðan verið vistaðir á öðrum stofnunum í okkar umsjá. Í öðru lagi er svokölluð fjöl- kerfameðferð eða MST-meðferð sem er veitt á vettvangi fjölskyldunnar. Þá koma meðferðaraðilar og veita fjölskyldunni allri viðeigandi meðferð. Í þriðja lagi er síðan hópur sérfræðinga, sem hafa sér- hæfingu á þessu sviði, og veita einstak- lingum sem sýna óviðeigandi kynferðis- lega hegðun sérhæfða meðferð, bæði innan og utan stofnana. Bragi segir þetta gífurlega mikilvægt því reynslan sýni að mestur árangur ná- ist ef byrjað er að vinna með kynferðisaf- brotamönnum á unga aldri.  Barnaverndarmál Ungir kynferðisafBrotamenn Þrjú úrræði fyrir unga kynferðisafbrotamenn  HeilBrigðismál BorgarafUndUr á Ísafirði Um niðUrskUrð Sparnaðurinn hverfur með auknum sjúkraflutningum Verði fjárveitingar til Heilbrigðisstofn- unar Vestfjarða skornar niður um 185 milljónir króna skilar það innan við 30 milljóna króna sparnaði vegna aukinna sjúkraflutninga til Reykjavíkur. Þetta kemur fram í úttekt sem kynnt var á borgarafundi í stjórnsýsluhúsinu á Ísa- firði í gærkvöld. Dóra Hlín Gísladóttir verkfræðing- ur og Kristinn Hermannsson hagfræð- ingur unnu skýrsluna fyrir Heima- varnarliðið, grasrótarsamtök sem vilja standa vörð um heilbrigðisþjónustu á norðanverðum Vestfjörðum. Þar segir að búast megi við að segja þurfi upp fimmta hverjum starfsmanni stofnun- arinnar. Viðbótarútgjöld leggist síðan á íbúa og fyrirtæki vegna sjúkraferða- laga. Í skýrslunni kemur fram að á hverju ári eru 600 -800 sjúklingar lagðir inn á sjúkrahúsið á Ísafirði og verði starfsemi sjúkra- og hjúkrunarsviða skert samkvæmt tillögunni þurfi að flytja 400-700 sjúklinga suður. Dóra Hlín segir að í raun sé verið að loka sjúkrasviði stofnunarinnar. Slíku fylgi óöryggi fyrir íbúa enda 450 km land- leið suður, oft ill- eða seinfær og flug stopult. Áætlað er að aukinn kostnaður rík- isins vegna þessara sjúkraflutninga nemi tæpum 60 milljónum króna á ári. Skýrsluhöfundar segja vandséð að það leiði til nettósparnaðar að leggja niður hjúkrunarrými í einum landshluta til þess eins að bæta við nýjum hjúkrun- arrýmum annars staðar. - jh Frá borgarafundinum á Ísafirði. Ljósmynd: Hálfdán Bjarki Hálfdánarson Lífseig flökkusaga um innbrotsþjófa Tveggja mánaða gamlar upplýsingar um grunsamlegar mannaferðir í Árbænum hafa dúkkað upp víða á netinu og breyst eftir að þær voru fyrst sendar frá lög- reglunni. „Nú eru fleiri hverfi tínd til, jafnvel ný bæjarfélög, og alltaf eru upp- lýsingarnar gefnar í mínu nafni,“ segir Árni Þór Sigmundsson aðstoðaryfir- lögregluþjónn kíminn. Sagan segir af dökkklæddum, erlendum mönnum með bakpoka sem taki myndir af húsum. „Þetta er orðið að góðri flökkusögu,“ segir hann en upplýsingarnar birtust á innri vef grunnskólanna í gær. „Það er þó afar jákvætt hve mikil vakning hefur orðið í nágrannavörslu,“ segir Árni. „Fólk getur verið gríðarlega öflugt í gæslu ef það gerir hlutina í samráði hvað við annað.“ - gag Pósturinn fær ekki að hækka verð Íslandspóstur fær ekki að hækka verðskrá einkabréfa eins og hann vildi. Póst- og fjarskiptastofnun hafnaði beiðn- inni, meðal annars á þeim forsendum að Pósturinn vildi velta kostnaði af afslætti til fyrirtækja yfir á almenning. Hins vegar er ekki útséð um verðhækkanir hjá Póst- inum því stofnunin fer nú yfir nýja skil- mála og gjaldskrá Póstsins eins og beðið var um í endaðan júní 2010. - gag RÚV og 365 berjast um ungmennin RÚV og 365 skiluðu inn tilboðum í sjón- varpsréttinn á úr- slitakeppni Evrópumóts U-21 árs landsliða í knattspyrnu þar sem Ísland er meðal þátttökuþjóða. Tilboðsfrestur rann út á hádegi síðastliðinn þriðjudag og staðfestu bæði Páll Magnússon útvarpsstjóri og Ari Edwald, forstjóri 365, sem rekur Stöð 2 Sport, að þeir hefðu sent inn tilboð. Hvorugur hafði þó fengið svar þegar Fréttatíminn ræddi við þá seint í gær, fimmtudag. -óhþ Nokkrir íslenskir málarar halda í ævintýraferð í nóvember til Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þar sjá þeir Formúlu 1 kappakstur í boði norska málningarrisans Jötun. Húsasmiðjan, umboðsaðili Jötun á Ís- landi, sendi Norðmönnunum lista yfir málara sem fengu síðan símtal um boð á Formúluna. Eftir því sem Fréttatím- inn kemst næst greiðir Jötun uppihald og miðann á kappaksturinn en málar- arnir sjálfir greiða flugið. -óhþ Málarar á Formúlu í Abu Dhabi Málararnir gætu hitt Naomi Campbell í Abu Dhabi. Bragi Guðbrands- son, forstjóri Barnaverndar- stofu, segir úrræðum fyrir unga kynferðisaf- brotamenn hafa fjölgað Bragi Guðbrands- son, forstjóri Barnaverndarstofu.  málefni fatlaðra flUtningUr frá rÍki til sveitarfélaga Framkvæmdastjórn og fulltrúaráð Sólheima segja grundvöll brostinn fyrir starfi Sólheima vegna flutn- ings ríkisins á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga nema því aðeins að rík- ið tryggi þjónustu Sólheima í búsetu og atvinnumálum með samkomulagi til ársins 2014. Í samþykkt fulltrúa- ráðsins segir að Sólheimar fari fram á að búa við sömu stöðu og sveitar- félögin sem tryggt sé fjárhagslegt rekstraröryggi við yfirfærsluna en Sólheimum ekki. „Liggi ekki fyrir samkomulag eigi síðar en 1 desember n.k. felur fulltrúaráðið framkvæmdastjórn að gera viðeigandi breytingar á rekstri Sólheima og ef nauðsyn krefur und- irbúa breytingar á meginstarfsemi Sólheima,“ segir enn fremur. Í greinargerð með samþykktinni segir að þau sveitarfélög, sem Sól- heimar starfa í, svo og félagsþjón- usta uppsveita Árnessýslu, hafa ítrekað brotið rétt á fötluðum ein- staklingum á Sólheimum og neitað að uppfylla lagaskyldur sínar þrátt fyrir að sex stjórnsýsluúrskurðir liggi fyrir um brot þessara aðila. Eðlilegt sé að spurt sé hvernig þessi sveitarfélög eigi að vera fær um að bera ábyrgð á og annast þjónustu við fatlað fólk. „Með yfirfærslunni tryggir rík- ið sveitarfélögunum fjármagn til þjónustu við fatlaða án þess að veita sjálfstæðum þjónustuaðilum samsvarandi tryggingu,“ segir og í greinargerðinni. -jh Sólheimar búi við sömu stöðu og sveitarfélögin. Segja grundvöll fyrir rekstri Sólheima bresta 2 fréttir Helgin 29.-31. október 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.