Fréttatíminn - 29.10.2010, Page 4

Fréttatíminn - 29.10.2010, Page 4
„snilldarbók“ EH / kiljan „… óskaplega spennandi … algjört meistaraverk … frábær bók í alla staði.“ ij / kiljan Skáldsögur 20.–26.10.10 Metsölubókin Hreinsun eftir Sofi Oksanen Bókmenntaverðlaun norðurlandar áðs 2010 veður Föstudagur laugardagur sunnudagur Fínasta veður og nokkuð bjart. strekkingsvindur, einkum undir kvöld. HöFuðborgarsvæðið: Fremur hægur vindur og sól yFir daginn. Hvasst, sérstaklega norðvestantil á land- inu og eins austast. talsverð rigning og slydda eystra, og snjókoma norðanlands. HöFuðborgarsvæðið: strekkings norðan- og norðaustanvindur. Úrkomulaust. lægir á landinu og roFar víða til með kólnandi veðri. él og snjókoma norð- austan- og austanlands. HöFuðborgarsvæðið: Fremur stillt, bjart og hiti rétt oFan Frostmarks yFir daginn. Hvasst á laugardag, en ekkert meira en það djúp lægð verður á ferðinni fyrir austan landið seint föstudag og á laugardag. verði hún nærgöngul og hægfara má búast við mjög slæmu veðri fyrir norðan og austan. liklegra er þó að hún taki stefnuna á Færeyjar og sleppum við þá betur. Á sunnudag gengur vindur niður og þá er spáð éljum eða dálítilli snjókomu norð- austan- og austanlands. 4 3 0 2 4 3 1 1 4 3 2 2 1 0 3 einar sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is É g hugsaði til hjálparstofnana í New York fyrir 120 árum og ógrynni fólksins sem stóð í röð- um hjá þeim þegar ég heyrði að hér á Íslandi stæði fólk í röðum eftir matar- gjöfum,“ sagði Mads Roke Clausen, framkvæmdastjóri Mæðrahjálparinnar í Danmörku. „Þar var fátækum gefinn matur en vandamálið ekki leyst. Til- hugsunin um fólk í röðum eftir mat er yfirþyrmandi og slík staða þætti afar sérkennileg í Danmörku,“ segir hann, enda óþekkt að fólk standi í biðröðum eftir mat. Mads Roke Clausen er einn helsti sér- fræðingur Dana í að hjálpa fólki til sjálfs- hjálpar og vill sjá íslenskar hjálparstofn- anir hverfa frá matargjöfum og stefna að því að kenna fólki að bjarga sér – til að mynda með fjárhagsráðgjöf og styrkjum til náms. En hvað gerir stöðuna hér svo ólíka stöðunni í Danmörku? „Við höfum séð vaxandi atvinnuleysi í Danmörku en þrátt fyrir það þarf fólk ekki að standa í röðum eftir mat. Þar hefur verið ein- blínt á að gera fólk ekki háð hjálparstofn- unum.“ Öflugri leið en matargjafir Vilborg Oddsdóttir hjá Hálparstofnun kirkjunnar segir að lengi hafi verið rætt um að fara dönsku leiðina, svo hægt væri að setjast niður með hverjum og einum, greina vandann og nota féð þar sem það nýttist best. „Það væri öflugri leið, því þá gætu hjálparsamtökin nýtt upplýsing- arnar til að þrýsta á stjórnvöld að leysa vandann – í stað þess að geta aðeins rétt fram pokann.“ Hins vegar hafi verið horfið frá því að hætta matargjöfum – enda sæki fólk á lágmarkslaunum, sem hafi ekki í önnur hús að venda, til hálpar- stofnana. „Lágmarkslaun eru undir fátæktar- mörkum. Bætur eru svo enn lægri,“ segir Vilborg og bendir á að samkvæmt Efnahags- og framfarastofnuninni, OECD, séu fátæktarmörkin um 160 þús- und krónur. Hún nefnir að nú, tveimur árum eft- ir hrun, sjái starfsmenn Hjálparstofn- unar kirkjunnar álagið aukast á fólki í nauð. „Við sjáum orðið í mun meira mæli hvernig álagið á foreldrana er farið að bitna á börnunum. Þeir hafa áhyggjur af því að geta ekki sent börnin í íþróttir, skólaferðalög eða haldið fyrir þau af- mæli.“ Allir aukasjóðir heimilanna eru tómir. „Foreldrar eru uggandi yfir stöðu barna sinna.“ reikna upp framfærsluna Hjálparstofnanir mættu á fund Velferðar- vaktar félags- og tryggingamálaráuneyt- isins í gær þar sem rætt var um hvernig aðstoð þeirra til hinna efnaminni komi að sem bestum notum og hvernig hægt sé að örva samstarf milli þessara aðila, og var Mads Roke gestur á fundinum. Lára Björnsdóttir, formaður Velferð- arvaktarinnar, segir að á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins sé nú unnið að því með háskólasamfélaginu að reikna út lágmarksframfærslu. Hvað sú vinna leiði af sér eigi eftir að koma í ljós. „Það er jú skylda sveitarfélaganna að sjá fólki fyrir lágmarks framfærslu.“ gunnhildur arna gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is  samráðsdagur hjálparsamtök Funduðu Við sjáum orðið í mun meira mæli hvernig álagið á for- eldrana er farið að bitna á börnunum. Þeir hafa áhyggjur af því að geta ekki sent börnin í íþróttir, skóla- ferðalög eða haldið fyrir þau afmæli. Biðraðir fátækra minna á New York fyrir 120 árum Matargjafir leysa ekki vanda fátækra til lengdar, segir Mads Roke Clausen, framkvæmdastjóri Mæðrahjálparinnar í Danmörku. Tilhugsunin um fólk í biðröðum eftir mat er yfirþyrmandi og minnir á stöðu fátækra í new york fyrir 120 árum. í röð hjá Fjölskylduhjálpinni staða sem er óþekkt í danmörku og minnir framkvæmdastjóra mæðrahjálparinnar þar á stöðuna í new york fyrir 120 árum, þegar um 900 þúsund lifðu í fátækt og sóttu hjálp til hundrað hjálparstofnana. Ljósmynd/Hari kynferðisdómur mildaður Hæstiréttur mildaði í gær dóm yfir Jóni dagbjartssyni, starfsmanni meðferðar- heimilis, vegna kynferðisbrota gagnvart stúlkum sem vistaðar voru á heimilinu á vegum barnaverndaryfirvalda. Héraðs- dómur norðurlands eystra dæmdi manninn í tveggja og hálfs árs fangelsi en hæstiréttur stytti dóminn í tveggja ára fangelsi. héraðsdómur sakfelldi manninn fyrir brot gegn tveimur stúlkum en hæsti- réttur sakfelldi hann fyrir gróf kynferðis- brot gegn annarri og staðfesti bótadóm héraðsdóms, 1.250 þúsund krónur, en sýknaði hann af brotum gegn hinni. -jh sex mánaða líkams- árásardómur stað- festur hæstiréttur staðfesti í gær sex mánaða fangelsisdóm yfir karlmanni vegna hættu- legrar líkamsárásar en hann sló annan með glerflösku í höfuðið á skemmti- staðnum nasa í september árið 2008. sá hlaut skurð ofan við hársvarðarlínu sem þurfti að sauma. Árásarmanninum var einnig gert að greiða 360 þúsund króna miskabætur. Fangelsisdómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára. -jh óvæntur sonur hins myrta „Þetta er óvænt ljós í myrkrinu,” sagði helgi vilhjálmsson í góu í viðtali við Pressuna en þar segir frá því að sonur hans, hannes Þór, sem var myrtur í ágúst síðastliðnum, eigi ársgamlan son. Fjölskyldan komst nýlega að því að hannes ætti ársgamlan son í eistlandi. hin eistneska barnsmóðir er stödd hér á landi. helgi segir að fjölskyldan sé ekki enn búin að átta sig fyllilega á fréttunum en segir drenginn velkominn í hóp fjölskyldunnar. -jh Jonathan Motzfeld, fyrsti formaður grænlensku land- stjórnarinnar, er látinn. Hann fæddist árið 1938 og var um áratugaskeið áhrifamesti grænlenski stjórnmálamaðurinn. Jona- than var giftur íslenskri konu, Kristjönu Guðrúnu Guðmundsdóttur. Hún lifir mann sinn. Í frétt mbl.is um dauða Motzfelds var vitnað í grænlenska vefinn sermitsi- aq.gl en þar kom fram að hann hefði lengi barist við krabbamein. Motzfeld var formaður flokksins Siumut, sat á grænlenska þinginu frá 1979 til 2009 og var for- maður grænlensku land- stjórnarinnar 1979 til 1991 og aftur 1997 til 2002. -jh jonathan motzfeld látinn 4 fréttir helgin 29.-31. október 2010

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.