Fréttatíminn - 29.10.2010, Page 6

Fréttatíminn - 29.10.2010, Page 6
Kanntu að klifra? Stóra skrímslið er komið hátt upp í tré en litla skrímslið heldur sig við jörðina þótt hugurinn fari á flug. Kann það kannski ekki að klifra? Ný bók í margverðlaunuðum bókaflokki. „Ber frjórri samvinnu vitni, frumlegri kímnigáfu og fágætri hugmyndaauðgi.“ Helene Ehriander / Bibliotekstjänst Græni risinn Græni risinn á Grensásvegi er með létta og holla rétti. Staðurinn er sérlega hagstæður fyrir fjölskyldufólk til 15. nóvember því réttir af barnamatseðli fylgja frítt fyrir allt að tvö börn þegar foreldrar kaupa rétti af matseðli. Hamborgarabúllan Búlla Tómasar Tómassonar er traustur staður. Barnaskammtur: Borgari eða samloka, franskar og gos fyrir 12 ára og yngri kostar 790 kr. Í útibúinu á Bílds- höfða er boðið upp á barnahorn. Lauga-ás Veitingahúsið Lauga-ás varð fyrst ís- lenskra veitingastaða til að taka í notkun sérstakt barnahorn. Sjö réttir eru í boði fyrir börn (yngri en 12 ára) á verðbilinu 695 til 995 kr. Piri-Piri Allir barnaréttir á Piri-Piri við Geirs- götu kosta 710 kr. Á Piri-Piri er Piri-land. Það er 30 fermetra leiksalur fullur af leikföngum, og inniheldur þar að auki brúðuleikhús, víkingaskip, risakubbahorn og sjónvarpsherbergi. Potturinn og pannan Á Pottinum og pönnunni í Brautarholti er vítt til veggja og barnahorn. Ýmsir réttir fyrir 12 ára og yngri eru í boði á verðbilinu 980-1.390 kr. Ruby Tuesday Þægilegt er að fara með krakka á Ruby, nóg pláss og mikið á veggjum sem dreifir athyglinni. Börnin fá bók og liti og geta valið um ýmsa rétti á bilinu 590-790 kr. Saffran Saffran hefur slegið í gegn síðustu misserin með létta og holla rétti. Dags- daglega eru í boði fimm réttir fyrir börn á bilinu 450-600 kr. Á sunnudögum til 15. desember fá svo krakkar að 10 ára aldri fría rétti af barnamatseðli þegar foreldrar kaupa rétti af matseðli. Shalimar Séu krakkarnir tilbúnir í framandi kost er gaman að fara með þá í krydduðu réttina í Shalimar í Austurstræti. Þar er boðið upp á nokkra bragðsterka rétti fyrir 12 ára og yngri á verðbilinu 890-1.290 kr. Super Sub Í Super Sub er eitt metnaðarfyllsta barnahorn landsins, rennibraut og bolta- land í fjörutíu fermetra plássi. Barnasam- lokur má fá á 499 kr., en vinsælast meðal barnafólks er að fá sér fjölskyldutilboð: Tvær pítsur með tveimur áleggstegund- um og 2 lítrar af gosi á 2.990 kr. Í eftirrétt er tilvalið að fá sér ís á Yo Yo ís, nokkrum húsum neðar á Nýbýlaveginum. T. G. I. Fridays Í Smáralindinni er Íslandsdeild þessarar amerísku keðju og þar má fá ýmsa rétti fyrir 12 ára og yngri á bilinu 395-965 kr. Börnin fá litablað og liti. Á fimmtudögum er fjölskyldutilboð. Þá fást allt að tvær fríar barnamáltíðir með hverjum aðal- rétti. Og til að gera kjörin enn betri eru ókeypis Buffalo-vængir með öllum aðal- réttum á fimmtudögum. Dr Gunni er UmboðsmaðUr neytenda Ábendingar og kvartanir: drgunni@centrum.is Út að borða með krakkana Gunnar Hjálmarsson drgunni@centrum.is Hvað gerir veitingahús að fjölskylduvænum stað? Er það ekki helst það að gert sé ráð fyrir börnum á staðnum? Að þangað sé þægilegt og gaman að fara með krakkana? Nú bjóða nokkrir veitingastaðir upp á ódýran – jafnvel ókeypis – mat fyrir yngstu fjölskyldumeð- limina, auk þess að leggja metnað í leikhorn og afþreyingu. Kíkjum á tíu dæmi af höfuðborgarsvæðinu. Það mætti jafnvel kalla þetta Topp 10 af fjölskylduvænum veitingahúsum í höfuðborginni. Þessi listi er þó auðvitað langt í frá tæmandi.  HeilbrigðismÁl ljósmæðUr óttast atvinnUleysi Landflótti ljósmæðra Nærri helmingur ljósmæðra á Suðurnesjum stefnir út og staðan er svipuð á Suðurlandi. Vænlegra þykir að fara úr landi en skipta um starfsvettvang. Óvissa um framtíð sjúkrastofnana virkar lýjandi. F jórar af átta ljósmæðrum Heilbrigðisstofnunar Suður-nesja skoða að flytja úr landi verði fæðingardeildinni lokað en í það stefnir verði fjárlögin sam- þykkt óbreytt. „Við höfum það góða menntun að við getum unnið um all- an heim. Alls staðar vantar fólk með okkar menntun og við horfum því til Skandinavíu, en einnig til Banda- ríkjanna, Nýja-Sjálands og Ástralíu,“ segir María Haraldsdóttir, ljósmóð- ir og hjúkrunarfræðingur. Staðan er sú sama á Selfossi, segir Sigrún Kristjánsdóttir, yfirljósmóðir á Heil- brigðisstofnun Suðurlands: „Ljós- mæðurnar sem og aðrir starfsmenn heilbrigðisstofnana sem missa vinn- una hér horfa til Grænlands, Noregs og Kanada.“ Báðar segja þær óvissuna sem ljósmæður Heibrigðisstofnunar Suð- urnesja og Suðurlands búa við lýj- andi. „Hún er hreinlega afar erfið,“ segir María. „Og hér er andrúms- loftið skrýtið. Fólk er leitt og dapurt og hefur grátið. Því líður ekki vel.“ Hún veltir nú fyrir sér hvenær upp- sagnarbréfið berist í pósti. „Hugsan- lega verður það nýársgjöf til okkar frá stjórnvöldum,“ segir hún enda óljóst hversu hressilega verður skor- ið niður á stofnuninni fyrr en í þriðju umræðu um fjárlögin á Alþingi í des- ember. Sigrún óttast að missa hæft fólk úr landi áður en skýrist hver niður- skurðurinn verður. „Það er ekki skrýtið að fólk vilji eyða óvissunni þegar það hefur haft snöruna um hálsinn í svo langan tíma.“ Ráðningabann á Landspítala Þær benda á að útilokað sé að fá vinnu á Landspítalanum. Þar ríki ráðningabann. „Ég hafði samband og það er ekkert í boði,“ segir María. Hún sér því ekki fram á að fá vinnu í heilbrigðisgeiranum hér á landi, hvorki sem ljósmóðir né hjúkrunar- fræðingur. „Ég hefði aldrei getað ímyndað mér að ég stæði uppi án vinnu eftir sex ára nám á heilbrigð- issviði, það átti ekki að vera hægt.“ Kristín Gunnarsdóttir, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur á Selfossi, hefur í áratugi star fað sem ljósmóðir á Sel- fossi. „Það er erfitt að breyta um starfsferil eftir þrjátíu ár í starfi og mun vænlegra að fara úr landi, þar sem alltaf virðist vanta ljósmæð- ur, heldur en að sitja heima á bótum eða í vinnu sem krefst ekki fagþekkingar.“ Á báðum stofnunum hefur starf- semi fæðingardeildanna breyst gíf- urlega á milli ára. Nú eru engin inn- grip í fæðingar og konur sem þurfa að fara í keisara, fá deyfingu eða aðra meðferð sendar á Landspítalann. „Það er því rangt að halda því fram að úti á landi séu reknir „litlir Land- spítalar“. Hátæknistörfin hafa þegar verið lögð niður,“ segir Sigrún. Fæðingum fækkað verulega Fæðingum hefur fækkað á báðum stöðum um þriðjung. Fæðingar á Suðurnesjum voru 270 í fyrra en eru 130 það sem af er ári. Þær voru 160 á Selfossi en 80 börn hafa fæðst þar í ár. Sigrún heldur því í þá von að ráðamenn átti sig á þeirri stöðu og leyfi því kon- um sem þurfa ekki á sérstakri læknisaðstoð að halda að fæða í heimabyggð og María elur þá von í brjósti að snúið verði frá niður- skurðinum. „Verði fæðingardeildinni þyrmt, færi ég líkast til ekki neitt. Mér finnst mikilvægt að konur hafi val um að fæða í heimabyggð,“ segir hún og bendir á að verði fæðing- ardeildinni lokað sparist aðeins launakostnaðurinn og ódýr rekstur deildarinnar þar sem hvorki lyf né launakostnaður lækna sligi hana. Undir þetta tekur Anna Rut Sverr- isdóttir, yfirljósmóðir á Suðurnesj- unum: „Hátæknisjúkrahús einfald- lega miklu dýrari valkostur.“ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is Fæddist í sigurkufli, en 33% barna fæðast í vatni á Suðurnesjum. Ljósmóðirin greiðir hann úr belgnum og hjálpar í heiminn. Ljósmynd/HSS María Haralds- dóttir, ljósmóðir á Heilbriðisstofnun Suðurnesja. Sigrún Kristjáns- dóttir, yfirljós- móðir á Heil- brigðisstofnun Suðurlands. 6 fréttir Helgin 29.-31. október 2010

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.