Fréttatíminn - 29.10.2010, Side 15
ELKO opnar nýja
verslun á Granda
ELKO opnaði nýja
raftækjaverslun á
Fiskislóð 15 í gær,
inni í verslun BYKO á Granda. Verslunin
er um 500 fermetrar að stærð og mun
bjóða þverskurð af vöruúrvali ELKO. Hún
býður m.a. upp á stór og lítil heimilis-
tæki, snyrti- og heilsutæki, DVD-myndir,
tölvuleiki, tölvur og tölvuvörur, sjónvörp,
myndavélar, GPS-tæki, hljóðvarps-
tæki, síma og margt fleira. ELKO opnaði
sína fyrstu verslun árið 1998 en þeim
hefur fjölgað síðan og nú mynda ELKO í
Lindum, Skeifunni, Granda, vefverslun,
Fríhöfn og vöruhús heild sem þjónar
raftækjamarkaði Íslands með lágu verði
og góðri þjónustu, að því er fram kemur í
tilkynningu. Opnunartilboð standa út alla
helgina. -jh
Lífeyrissjóðirnir halda
enn um veskið
Lífeyrissjóðirnir og stjórnvöld undir
forystu Kristjáns Möller alþingismanns
hafa ekki náð samkomulagi um vexti á
lánum sjóðanna fyrir þrennum vegafram-
kvæmdum á Suðvesturlandi og Vaðla-
heiðargöngum fyrir norðan. Samkomulag
náðist um aðrar forsendur samninganna
fyrir um þremur til fjórum vikum, segir
Kristján. Hann vonast til að það takist að
semja í nóvember svo hægt verði að hefja
framkvæmdir sem fyrst, enda verkefna-
skortur hjá verktökum og hagstætt að
ráðast í framkvæmdir nú. Veggjöld eiga
að standa undir kostnaði við framkvæmd-
irnar og segir Kristján ekki tímabært að
gefa upp hvað það muni kosta að aka
um umferðarmannvirkin. „Það veltur á
vaxtakjörunum og endanlegum kostnaði
við gerð þeirra,“ segir hann. Áætlað sé að
verkin kosti tæpa 40 milljarða á næstu
tæplega fimm árum. -gag
Hækkun vísitölu
framleiðsluverðs
Vísitala framleiðsluverðs í september
2010 var 189,1 stig og hækkaði um 2,3%
frá ágúst 2010, að því er fram kemur hjá
Hagstofu Íslands. Vísitala framleiðslu-
verðs fyrir sjávarafurðir var 221,8 stig,
sem er hækkun um 3,7% frá fyrri mánuði
og vísitala fyrir stóriðju var 221,5 stig,
hækkaði um 3,8%. Vísitalan fyrir matvæli
lækkaði um 0,1%. -jh
Röð námskeiða
um skattamál
Skráning og allar nánari upplýsingar um
námskeiðin og námskeiðsgjöld er að finna
á kpmg.is
4. nóv. Virðisaukaskattskvaðir á
fasteignir og upplýsingagjöf
til skattyfirvalda
9. nóv. Virðisaukaskattur og bókhald,
hvað fer helst úrskeiðis?
11. nóv. Skattaleg áhrif af eftirgjöf
skulda og kaup á kröfum með
afföllum
16. nóv. Skattskuldbindingar og
samsköttun fyrirtækja
18. nóv. Afdráttarskattar hjá fjármála
fyrirtækjum
22. nóv. Kynning á reglum ESB
um VSK
23. nóv. Álitamál tengd virðisauka
skatts skyldri starfsemi
íslenskra fyrirtækja innan ESB
25. nóv. Afdráttarskattar af erlendri
þjónustu
30. nóv. Nýgerðar breytingar á lögum
um gjaldþrot og álitamál
tengd frádráttarbærni krafna
2. des. Fyrirhugaðar breytingar á
skattalögum
Ef þú kemur að borða á Saffran á
sunnudögum með mömmu eða pabba
þá máttu velja þér rétt af matseðli
litla fólksins og færð hann frítt!
Gildir fyrir börn 10 ára og
yngri,
til 15. des. og eingöngu ef
borðað
er á staðnum með fullorðnum.
Og munið:
Skrímsli borða ekki krakka
sem borða hollan mat!
Tína milljarða til viðbótar
upp úr vösum borgarbúa
Orkuveitan kappkostar
að endurfjármagna lán
því háar upphæðir gjald-
falla á næstu árum, svo
háar eftir þrjú ár að
reksturinn stendur
ekki undir því.
Ljósmynd/Hari
hliðar í rekstri sínum, þurfi að reiða
fram fé vegna vanda Orkuveitunnar,
sem hefur aðeins nægilegt rekstrarfé
út árið. Hvorki Borgarbyggð, sem á
eitt prósent í Orkuveitunni, né Akra-
neskaupstaður, sem á fimm prósent,
hafa enn sem komið er gert ráð fyrir
því í bókum sínum að það þurfi að
leggja fram hundruð milljóna króna
í reksturinn. Ljóst er að í báðum til-
fellum yrði bitinn stór fyrir sveitar-
félögin því þau eru mjög skuldsett.
„Í augnablikinu bíðum við –
kannski ekki róleg – eftir því að
niðurstaða fáist um það hvort lánar-
drottnar eru til í að ræða við Orku-
veituna,“ segir Hrönn Ríkharðs-
dóttir, bæjarfulltrúi á Akranesi og
stjórnarmaður í Orkuveitunni. „Við
erum í fjárhagsáætlunargerð og ef
við þurfum að bera ábyrgð þá gerum
við það.“
Yfirstjórn fyrirtækisins vinnur
nú hörðum höndum hér heima og
erlendis að því að endurfjármagna
lán Orkuveitunnar, en hefur ekki
tekist það. Stuttur tími er til stefnu
en aðstoðarmaður borgarstjóra, S.
Björn Blöndal, er bjartsýnn á lausn.
Hann segir undirbúning að skulda-
bréfaútboði innanlands og endurfjár-
mögnun gefa góða von, þótt enn sé
ekkert fast í hendi.
„Við höfum fengið staðfest frá lán-
ardrottnum erlendis og þeim sem
kaupa skuldabréf að þær aðgerðir
sem ráðist hefur verið í hafi styrkt
fyrirtækið og við erum því bjartsýnni
en við vorum fyrr í sumar.“ Hann vill
ekki leggja mat á líkurnar á því að
borgin reiði fram milljarðana tólf eða
hve lengi þeir dygðu Orkuveitunni.
Æskilegt að styrkja eigið fé
En er staðan svo björt? Fannar Jóns-
son, greinandi hjá Arion banka, segir
stöðuna augljóslega betri en hún hafi
verið þótt hún sé ekki sérlega góð.
Hann segir æskilegt að eigendur
Orkuveitunnar leggi fé til reksturs-
ins til að styrkja stöðu hennar. Orku-
veitan sé skuldsettari en svipuð félög
víða og eigið fé of lágt, eða rúm 16
prósent. Til samanburðar sé eigið fé
norska orkufyrirtækisins Statskraft
um 40 prósent og fé sænska fyrir-
tækisins Vattenfall um 25 prósent.
„Þá sést að eiginfjárhlutfall Lands-
virkjunar er í kringum 35%. Það er
enginn að segja að það verði að vera
svona hátt hjá Orkuveitunni en æski-
legt væri að það væri hærra,“ segir
hann en bendir þó á að standist áætl-
anir Orkuveitunnar og eigið fé verði
24% í árslok 2011, sé staðan óneitan-
lega vænlegri. En eru erfið ár fram
undan?
„Í viðtali við stjórnarformanninn,
í Fréttablaðinu í ágústlok, sagðist
hann eftir gjaldskrárhækkanirnar
vonast til að aðgerðir Orkuveitunn-
ar tryggðu fyrirtækinu fjármagn út
næsta ár. Því má ekki gleyma að það
er ekki búið að fara í skuldabréfa-
útboð og ekki er búið að semja um
skuldirnar. Fyrr er þetta fyrirtæki
ekki komið í var.”
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Orkuveitan ekki venjulegt fyrirtæki
fréttir 15 Helgin 29.-31. október 2010