Fréttatíminn - 29.10.2010, Blaðsíða 30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
11
12
12
12
13
14
15
16
29.11. 2010
Mæting á Keflavíkurflugvelli kl. 06.00
1 Helsinki
07.45-13.10 (Icelandair)
21.541x2 = 43.082
Hótel: Hotel Haven (5*) 39.907
Dagur 1 (29.11.): Exista, með
Bakkabræðurna Lýð og Ágúst
Guðmundssyni í fararbroddi,
keypti stóran hlut í finnska
trygg ingarisanum Sampo. Hlut-
urinn var seldur strax eftir hrun
með tugmilljarða tapi. Heimilis-
fang Sampo er Fabianinkatu 27
í Helsinki.
30.11. 2010
2 Riga
08.30-09.25 (Baltic Air)
10.184x2 = 20.368
Hótel: Grand Palace Hotel (5*)
27.983
Dagur 1 (30.11.): Penninn keypti,
í samstarfi við Te&kaffi, lett-
nesku kaffibrennsluna Melna
Kafija árið 2007. Skilanefnd
Sparisjóðabankans seldi þann
hlut nú í október með miklu tapi.
Heimilisfang kaffibrennslunnar
er Kekevas, rétt utan við Riga.
1.12. 2010
3 Stokkhólmur
06.50-07.05 (Baltic Air)
9.262x2 = 18.524
Hótel: Hilton Slussen Hotel
Stockholm (5*) 42.039
Dagur 1 (1.12.): Milestone
keypti sænska tryggingarisann
Moderna í miðborg Stokkhólms
fyrir tugi milljarða seinni hluta
árs 2007. Eftir hrun var félagið
bútað í sundur og selt með
gífurlegu tapi fyrir kröfuhafa
Milestone.
2.12. 2010
4 Ósló
09.10-10.10 (Norwegian)
5.930x2 = 11.860
Hótel: Grand Hotel Rica (5*)
57.420
Dagur 1 (2.12.): Exista keypti
tæplega 10% hlut í norska
tryggingafélaginu Storebrand
árið 2007 og reyndi ásamt
Kaupþingi að yfirtaka félagið. Í
lok október 2008 var hlutur inn
seldur á hrakvirði, með tug-
milljarða króna tapi. Höfuð-
stöðvar Storebrand eru við
Filipstad Brygge 1.
3.12. 2010
5 Kaupmannahöfn
07.40-08.55 (Norwegian)
12.455x2 = 24.910
Hótel: First Skt. Petri Hotel (5*)
2 nætur 114.625
Dagur 1 (3.12.): Nordic Partners,
undir forystu Gísla heitins
Reynis sonar, keypti Remen
Hotels haustið 2007. Flaggskipið
er hið fræga Hotel D’Angleterre
við Kongens Nytorv.
Dagur 2 (4.12.): Fons keypti
danska flugfélagið Sterling í
annað sinn árið 2008. Það varð
gjaldþrota seinna sama ár og
kostaði Pálma Haraldsson á
annan tug milljarða. Heimilis-
fangið er Lufthavnsvej 2 í
Sønderborg.
5.12. 2010
6 Manchester
08.25-09.30 (British Midlands)
16.931x2 = 33.862
Hótel: The Lowry – Rocco Forte
Hotel (5*) 2 nætur 80.938
Dagur 1 (5.12.): Farið til
Wigan. Exista keypti tæplega
þriðjungshlut í bresku sport-
vöruverslanakeðjunni JJB Sports
árið 2007 með láni frá Kaupþingi
upp á 20 milljarða. Í dag rambar
JJB Sports á barmi gjaldþrots
og hluturinn er nær verðlaus.
Heimilisfang er Martland Park á
Challenge Way í Wigan.
Dagur 2 (6.12.): Farið til Nott-
ingham þar sem Eimskip keypti
breska flutningafyrirtækið Inn-
ovate í tveimur hlutum á árunum
2006 og 2007. Sumarið 2008
þurfti félagið að afskrifa tæpa
tíu milljarða vegna kaupanna
og átti fjárfestingin stóran þátt
í að Eimskip var á barmi gjald-
þrots áður en nauðasamningar
björguðu því.
7.12. 2010
7 Frankfurt
07.00-09.45 (Lufthansa)
6.816x2 = 17.632
Hótel: Hilton Frankfurt (5*)
56.041
Dagur 1 (7.12.): Höfuðstöðvar
Commerzbank, sem FL Group
tapaði milljörðum á að fjárfesta
í árið 2007. Commerzbank-
turninn er í miðborg Frankfurt
og er hæsta bygging í löndum
Evrópusambandsins.
8.12. 2010
8 Skopje
10.15-14.20 (Malev – millilent í
Búdapest) 26.381x2 = 52.762
Hótel: Tcc Plaza (5*) 2 nætur
35.256
Dagur 1 (8.12.): Afslöppun
Dagur 2 (9.12.): Milestone keypti
makedónska dvergbankann
Stater Bank í lok árs 2007. Einu
og hálfu ári síðar seldi þrotabú
Milestone bankann á hrakvirði.
Höfuðstöðvar Stater Bank eru
í miðborg Skopje, höfuðborg
Makedóníu.
10.12. 2010
9 Alicante
08.15-22.40 (Montenegro
Airlines, RyanAir – millilent í
Svartfjallalandi og Frankfurt)
32.351x2 = 64.702
Hótel: La Finca Golf & Spa Resort
(5*) 2 nætur 30.282
Dagur 1 (10.12.): Afslöppun
Dagur 2 (11.12.): AB Capital,
sem er í eigu Róberts Wessman
og Björgólfs Thors Björgólfs-
sonar, keypti gríðarstórt land
á La Manga á Spáni árið 2006.
Nokkrum milljörðum síðar hefur
enn ekkert risið á landinu sem
vísast rennur inn í einhvern
íslensku bankanna á endanum.
12.12. 2010
10 Djíbútí
11.10-12.00 (12.12.-13.12.)
(easyJet, Ethiopian Airlines,
Kenya Airways - millilent í
London og Addis Ababa)
151.475x2 = 302.950
Hótel: Djibouti Palace Kempinski
(5*) 2 næstur 109.779
Dagur 1 (13.12.): Afslöppun
Dagur 2 (14.12.): REI, útrásar-
armur Orkuveitu Reykja víkur,
hugðist leggja rúma níu milljarða
í jarðvarmaverkefni við Assal-
vatn í Afríkuríkinu Djíbútí.
Skemmst er frá því að segja að
þessar hugmyndir eru komnar
á hilluna enda hefur REI lokið
keppni. Búið er að leggja nokkur
hundruð milljóna í rannsóknar-
vinnu á svæðinu sem munu
aldrei fást til baka. Assal-vatn er
120 kílómetra frá höfuðborginni
Djíbútí.
15.12. 2010
11 Macau
12.45-21.05 (15.12.-16.12.) (Kenya
Airways, Ethiopian Airlines, Thai
AirAsia – millient í Addis Ababa
og Bangkok)
150.202x2 = 300.404
Hótel: Royal Hotel Macau (5*) 2
nætur 25.200
Dagur 1 (16.12.): Afslöppun
Dagur 2 (17.12.): Trygginga-
félagið Sjóvá gerði samning við
verktakafyrirtæki um byggingu
68 lúxusíbúða í Turni IV í
Macau árið 2007. Tveimur árum
síðar þurfti félagið að greiða
miskabætur til að losna undan
samningnum og tapaði þremur
milljörðum. Turninn stendur í
miðborg Macau og fer ekki fram
hjá neinum.
18.12. 2010
12 Salvador (Brasilíu)
10.15-16.15 (18.12.-19.12.) (Tiger
Airways, Qantas Airways,
Condor – millilent í Singapore og
Frankfurt)
236.022x2 = 472.044
Hótel: Pestana Convento do
Carmo Hotel (4*) 1 nótt
35.899
20.12. 2010
13 Natal (Brasilíu)
12.50-14.20 (20.12.) (Gol
Transportes Aereos)
25.627x2 = 51.254
Hótel: Blue Tree Park Natal
Piramide (5*) 2 nætur
44.854
Dagur 1 (20.12.): Afslöppun
Dagur 2 (21.12.): Salt Properties,
dótturfélag Salt Investments,
sem er í eigu Róberts Wess man,
hugðist byggja lúxus frístunda-
garð í Palmeira, nálægt borginni
Natal. Þær hugmyndir hafa verið
lagðar á hilluna en í staðinn
standa yfir vindmælingar á
svæðinu sem gaman er að
fylgjast með.
22.12. 2010
14 Los Angeles
06.00-22.59 (Tam Linhas
Aereas, Copa Air – millilent í Sao
Paulo og Panama)
141.000x2 = 282.000
Hótel: Beverly Wilshire Four
Seasons (5*) 3 nætur
186.672
Dagur 1 (22.12.): Afslöppun
Dagur 2 (23.12.): Kaupþing og
Candy-bræður keyptu átta
ekru byggingasvæði fyrir 500
milljónir dollara árið 2007 í Wils-
hire í Beverly Hills-hverfinu í Los
Angeles og misstu það síðan árið
2009. Byggja átti lúxusíbúðir á
svæðinu.
Dagur 3 (24.12.): Afslöppun
25.12. 2010
15 Dallas
10.55-15.50 (Virgin America)
23.855x2 = 47.710
Hótel: Warwick Melrose Hotel
Dallas (4*) 2 nætur 44.178
Dagur 1 (25.12.): Afslöppun
Dagur 2 (26.12.): Höfuðstöðvar
American Airlines, sem FL Group
tapaði tugum milljarða á að
fjárfesta í árið 2007, eru á 4333
Amon Carter Boulevard.
27.12. 2010
16 Boston
05.20-11.59 (US Airways –
millilent í Charlotte)
37.277x2 = 74.554
Hótel: Four Seasons (5*) 2 nætur
95.330
Dagur 1 (27.12.): Afslöppun
Dagur 2 (28.12.): Dagsbrún
Media Fund, sem var í eigu
Baugs, setti á laggirnar fríblaðið
Boston Now. Blaðið lifði í ár
og tapið var talið í milljörðum.
Heimilisfangið var 30th Winter
Street í miðborg Boston.
29.12. 2010
17 Keflavík
20.30-06.40 (29.12.-30.12.)
(Icelandair)
47.691x2 = 95.382
Heimkoma 30.12. kl. 06.40
Kostnaður samtals
2.940.403
Heimsreisa
á slóðir íslensku útrásarinnar
F yrir þá ís-lensku ferða-langa sem eru
orðnir leiðir á skemmtiferða-
skipum og sólarströndum hefur
Fréttatíminn sett saman heimsreisu á slóðir íslenskra
útrásarvíkinga. Heimsóttar eru fimm heimsálfur þar sem
íslenskir athafnamenn stunduðu viðskipti af slíkri ákefð
að kappið bar forsjána yfirleitt ofurliði. Heimsreisan tekur
rétt rúman mánuð og kostar um þrjár milljónir fyrir hjón
– það er flug og hótel. Lagt verður af stað 29. nóvember og
komið heim 30.
desember. Ekki er
búið að velja fararstjóra
en Fréttatíminn leggur til að
Ólafur Ragnar Grímsson taki að sér
það hlutverk. Í honum fara saman djúp þekking á útrás-
inni, mikill ferðavilji og næmt auga fyrir alþjóðlegu sam-
hengi hlutanna.
17
30 fréttir Helgin 29.-31. október 2010