Fréttatíminn - 29.10.2010, Blaðsíða 44
Danska skáldkonan Lene Kaaberböl, sem
átti fyrr á þessu ári krimmann Barnið í
ferðatöskunni á metsölulistum, sendi frá sér
nýlega skáldsögu fyrir fullorðna lesendur.
Fáir hér á landi þekkja fjórleik hennar
fyrir börn og unglinga um Skammarann
sem Jentas gaf út fyrir fáum árum við litla
athygli. Enn færri vita að hún skrifaði níu
bækur fyrir Disney í W.H.I.T.C.H.-röðinni.
Kaaberböl, sem er fædd 1960, fór að gefa
út bækur þegar hún var fimmtán ára. Hún
hefur sent frá sér 34 skáldsögur, fyrir börn,
unglinga og fullorðna. Nýja sagan heitir
Kadaverdoktoren og gerist í Frakklandi á
átjándu öld. -pbb
Ævisaga Keith Richards er komin út. Life kallar
hana ópusinn sem er skrifaður af blaðamanninum
og rithöfundinum James Fox (White Mischief).
Flestallir Stones-nördar munu væntanlega ná
sér í eintak. Að sögn erlendra fjölmiðla er bókin
skemmtileg. Upphafið er réttarhöld í Arkansas þar
sem Keith var dreginn fyrir dómara sem gerði upp-
tækan dálkinn hans og lét taka mynd af sér, hinum
ákærða og vopninu. Vitaskuld er mikið nafnaróf
í sögunni sem svalar þorsta þeirra forvitnu um
svallið og sullið. Richards dregur fátt undan, sem
hann man, en Fox hefur haft í mörg horn að líta til
að kanna sögurnar. Hvort þar er flökkusagan um
það þegar Keith týndist í Mexíkóborg og fannst
ekki fyrr en leitað var til undirheimaforingja þar í
bæ skal ósagt látið. Við bíðum spennt. -pbb
Saga fyrir fullorðnaTórir hann enn
Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir Hæfileiki hennar til sviðsetninga er mikill. Margt feikivel gert.
Bókadómur Þórunn Erlu-Valdimarsóttir mörg Eru ljónsins Eyru
n ý skáldsaga eftir Þórunni Valdi-marsdóttur, fyrirgefið Erlu-Valdimarsdóttur, sýnir hversu
skýr mörk eru milli þeirra blekbænda
sem henda reglulega saman reyfurum
og hinna sem skrifa metnaðarfullar og
merkilegar skáldsögur. Því er þetta sagt
að ný skáldsaga Þórunnar, Mörg eru
ljónsins eyru, er kynnt lesendum frá upp-
hafi og á kápu sem krimmi. Auðvitað er
hún það í bland, byggir á Laxdælu-plott-
inu um þau Guðrúnu, Bolla og Kjartan,
en hún er miklu meira en það: flókin og
athugul, spurul skoðun á mannlífi sem
er, eins og oft vill verða, dálítið uppstillt,
en allt um kring og leiftrandi stíll sögu-
skáldsins, merkileg höfundarafstaða
hennar sem sundrar og greinir ólíkleg-
ustu hluti í samlífi, kynlífi og fjölskyldu-
lífi.
Hér er þríhyrningurinn úr Laxdælu
dreginn skríkjandi inn í okkar tíma, þótt
sumir partar sögunnar séu sýnilega skrif-
aðir fyrir hrun, aðrir eftir. Þegar stuðst
er við svo rækilega fyrirmynd – Þórunn
hefur gert þetta áður í Kalt er annars
blóð – þá er lesandinn settur í stelling-
ar; stífur leggur hann af stað eftir þræð-
inum en verður þess fljótt var að hollast
er að gleyma bókinni, fylgja ræmunni.
Fyrirmyndin heldur samt áfram að trufla
mann og sagan nýtur seint sannmælis
fyrir bragðið.
Margt er feikifallega gert í þessari
skáldsögu. Hæfileiki Þórunnar til svið-
setningar er mikill. Hún hefur firnanæmt
auga fyrir hinu smágerða í fasi og fyrir-
gangi, les sig inn í persónur af mikilli
lyst og list, setur upp stóran vef sem hún
dregur alls kyns þræði í, flóknar hugsanir
og athuganir sem hún læðir inn í frásögn-
ina, skáldlega orðskviði sem eru heima-
smíð upp úr gömlu eða sindrandi silfur
úr hennar pússi.
Persónusköpunin er á köflum býsna
mikill útskurður, flekar og gægist fyrir-
myndin oft í gegnum nýja liti, sem er mið-
ur. Það er erfitt að sækja sér fyrirmynd í
sögu sem gnæfir alltaf yfir vitundinni svo
að við hvern stafkrók rekur ritarinn sig í
bókahilluna. En af þeim skáldsögum sem
þessi penni hefur lesið á þessu hausti er
Mörg eru ljónsins eyru sú merkilegasta
vegna stílgáfu, næmni og skáldlegra til-
þrifa. Þessa bók verða menn að lesa hægt
og helst hafa yfir orðin til að finna galdur-
inn. Hér er efni fyrir afburðasnjallan leik-
ara að lesa bók fyrir lata á disk.
Stílgáfa, næmni og
skáldleg tilþrif
Skáldsaga Þórunnar Erlu-Valdimarsdóttur byggist á Laxdælu-plottinu um þau Guðrúnu, Bolla
og Kjartan, þetta er flókin og athugul skoðun á mannlífi.
snjóblinda
Ragnar Jónasson
286 bls. Veröld
Misindismenn
á Sigló
Snjóblinda er
annar krimmi Ragnars
Jónassonar og segir frá
ungum lögreglumanni
sem ræður sig til Siglu-
fjarðar um hávetur.
Eldri herra dettur niður
stiga í leikhúsinu og
hálfnakin kona finnst í
skafli. Þessi löggusaga
er hefðbundin í bygg-
ingu, snotur í hvers-
dagslegum stíl, hæg í
uppbyggingu en sætir
engum tíðindum. Flétta
Ragnars er prýðilega
byggð og lesand-
anum komið á óvart í
bókarlok. Persónulýsing
sakamanns sögunnar er
athyglisverðasti partur
verksins. -pbb
leyndarmál
annarra
Þórdís Gísladóttir
36 bls. Bjartur
Leyndarmála-
ljóð
Þórdís Gísladóttir fékk
á dögunum verðlaun
kostuð af Reykvíkingum
sem kennd eru við
Tómas Guðmundsson.
Kverið kallar Þórdís
Leyndarmál annarra. Á
rétt 30 síðum eru þar
dregin saman skemmti-
leg kvæði undir frjáls-
um hætti, borin fram af
einurð á hversdagslegu
máli, nærri óábyrg í
óskammfeilnum at-
hugasemdum. Þórdís er
nösk, ljóðastarf hennar
hressandi og kemur
lesanda bæði á óvart og
í gott skap. -pbb
allt fínt ... en þú?
Jónína Leósdóttir
279 bls Mál og menning
Fjölskyldu-
drama
Bókin segir frá fjöl-
skylduerfiðleikum sem
koma upp þegar full-
orðinn faðir, nýorðinn
ekkill, finnur sér
kærustu. Á meðan
önnur systirin afneitar
föðurnum stendur hin,
syrgjandi ofurkonan, á
milli steins og sleggju
og reynir að redda mál-
unum. Bókin er fyndin
og vel skrifuð um konu
sem á alveg nóg með
sig en lætur aðra hafa
forgang. -LK
mörg eru
ljónsins eyru
Þórunn Erlu-
Valdimarsdóttir
324 bls. JPV-forlag
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
44 bækur Helgin 29.-31. október 2010
Bókadómar
FræðiBókin
Stjórnskipunar-
réttur eftir Gunnar G.
Schram, er ein fárra
bóka sem fjalla um
stjórnskipun Íslands
á heildstæðan hátt.
Kjörið lesefni í aðdrag-
anda stjórnlagaþings.
Af þeim
skáld
sögum sem
þessi penni
hefur lesið á
þessu hausti
er Mörg
eru ljónsins
eyru sú
merkileg
asta.“