Fréttatíminn - 29.10.2010, Qupperneq 48

Fréttatíminn - 29.10.2010, Qupperneq 48
Fórnarlömb tískunnar Hvenær varð fatnaður svona svakalega mikil árátta meðal fólks? Mannkynið hefur jú klæðst fatnaði í gegnum aldirnar, en tilgangurinn er orðinn allt annar en hann hefur verið í gegnum tíðina. Mannkynið hefur alltaf viljað líta sem best út. Það er eðli okkar. En við höfum allt annað í huga nú í dag. Það ætti að vera eðlilegt að eiga flíkur til skipt- anna. En kröfur samtímans eru svo miklar að við verðum að eignast mikið af fötum til þess að standast þær. Sumir reyna að skapa sinn eigin stíl en aðrir fylgja straumnum og reyna að falla sem best inn í hópinn. Við hugsum í flestum tilfellum um hvað öðrum finnst og látum það stjórna því hvernig við högum okkur. Þetta kall- ast svo sannarlega að vera fórnarlamb tískunnar. Ég fór að pæla aðeins í þessu öllu saman þegar ég var stödd í verslunarferð í Kaupmannahöfn um daginn. Allir dagarnir fóru í það að versla og ég ráfaði um borgina í algjöru kaupæðiskasti. Í leit af meiri fötum. Svo var komið að heimferð. Ég var sátt við árangurinn og það var tími til kominn til að pakka öllu nýja dótinu í stóru ferða- töskuna. Endalaust af nýjum skóm, yfirhöfnum og aukahlutum. Ég reyndi að koma þessu fyrir í töskunni, en allt kom fyrir ekki og þetta endaði með því að ég þurfti að fá lánað pláss í annarri ferðatösku til að sleppa við yfirvigt. En hvað er það sem knýr okkur til að hendast úr landi með spennuhnút í maganum, til þess eins að eyða aleigunni í fatnað? Ég get ekki sagt að allir séu haldnir þessari þrá, en þeir eru vissu- lega margir. Fatnaður? Erum við orðin langt leidd af þessari áráttu? 48 tíska Helgin 29.-31. október 2010 F Á K A F E N I 9 - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0 O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6 www.gabor.is Sérverslun með HEILSUSKÓR St. 35-44 Verð 7.495.- Fyrsta flokks innlegg tíska Kolbrún Pálsdóttir skrifar Föstudagur: Skór: H&M Sokkabuxur: Hagkaup Kjóll: Gina Tricot 5 dagar dress Eyðir endalausum tíma í að skoða á netinu Lilja Kristjánsdóttir er tvítug Vesturbæjarmær sem stundar nám við Menntaskólann í Hamrahlíð. Hún hefur mikinn áhuga á tísku, líkamsrækt og kraftlyftingum en stundar þær þó ekki. „Minn stíll er frekar þægilegur og ég klæði mig mest eftir skapi,“ segir Lilja. Hún elskar föt og eyðir miklum tíma í að skoða og kaupa þau á netinu. „Bandaríska búðin Forever21 er í miklu uppáhaldi hjá mér. Get eytt endalausum tíma í að skoða á heima- síðunni hjá þeim, kaupa föt og láta senda þau heim til mín. Annars er það Topshop sem ég versla mest í hérna heima.“ Lilja fær mikinn innblástur úr gömlum tískutíma- ritum. „Ég held að innblásturinn fái ég frá níunda áratugnum. Elska þannig föt. Svo eru Blake Lively og Rachel Bilson í miklu uppáhaldi hjá mér í sambandi við klæðaval.“ Mánudagur: Skór: Forever 21 Buxur: Forever 21 Bolur: Urban Outfitters Þriðjudagur: Skór: Manía Leggings: Gina Tricot Stuttbuxur: Topshop Peysa: H&M Kragi: Forever 21 Jakki: H&M Miðvikudagur: Gallastuttbuxur: Rokk og rósir Skór: Forever21 Peysa: Spútnik Sokkabuxur: H&M Toppur: Urban Outfitters Jakki: Forever21 Eyrnalokkar: H&M Fimmtudagur: Sokkabuxur: Topshop Kjóll: Topshop Bolur: All Saints Skór: Forever21 Sokkar: H&M Hringur: Gina Tricot Sóley Organics er íslenskt húðsnyrtivörufyrir- tæki sem eingöngu framleiðir snyrtivörur úr hreinum náttúrulegum efnum og íslenskum jurtum. Sóley Elíasdóttir er konan á bak við fyrirtækið og hóf hún framleiðslu á þeim árið 2007. Jurtablöndurnar sem hún setti saman komu flestar frá langalangömmu hennar, Grasa-Þórunni, sem stundaði lækningar með íslenskum jurtum. Uppskriftir Sóleyjar hafa því varðveist í fjölskyldu hennar um áraraðir. Vörurnar eru framleiddar úr villtum íslenskum lækningajurtum og engum óæskilegum auka- efnum eru bætt í. Hún hefur mikla sérfræði- þekkingu, vandar vinnubrögðin vel og leggur mikinn metnað í að vörur hennar séu hreinar og úr ómengaðri náttúru. Umbúðirnar eru um- hverfisvænar og mikil vinna er lögð í hönn- unarvinnu. Mark- mið fyrirtækisins er að standast fyllilega samanburð við flest af þeim dýru merkjum sem eru á markaðnum í dag. Snyrtivörurnar eru fjölbreyttar, fara vel með húðina og er markhópurinn helst fólk sem er meðvitað um umhverfið, heilsuna og tísku. Umhverfisvænar snyrtivörur Hátísku vinnuskór Uppreimaðir grófgerðir skór, sem myndu sóma sér vel ofan í skurði eða uppi á vinnupöllum, hafa verið áberandi undan- farin misseri og verða það áfram í vetrartískunni. Enski hönnuðurinn Paul Smith býður í nýjustu skólínunni sinni upp á svörtu stígvélin, sem hér má sjá, og sækir einmitt fyrirmyndina í klassískan vinnuskófatnað. Brúnu stígvélin eru einmitt frá rótgrónum bandarískum vinnuskóframleiðanda sem heitir Red Wing, og eru níðsterk lífstíðareign. Paul Smith-útgáfan kostar ríflega 50.000 krónur, stíg- vélin frá Red Wing eru á rúmlega 20.000 krónur. Áhugasamir finna báðar gerðir í netverslunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.