Fréttatíminn - 29.10.2010, Síða 70

Fréttatíminn - 29.10.2010, Síða 70
70 dægurmál Helgin 29.-31. október 2010 Skoðið yfirhafnir á laxdal.is Laugavegi 63 • S: 551 4422 NÝTT COVERED- BANDOLERA FALLEGAR YFIRHAFNIR L ára Björg, sem er einstæð móðir í Vesturbænum, rekur í bókinni raunir sínar eftir efnahagshrun- ið og gerir óspart grín að sjálfri sér og öðrum. Henni tekst líka oftar en ekki að kenna hinum alræmdu útrásarvíkingum um vandræði sín. „Ég kom til landsins á mánudaginn. Ég gat ekki misst af útgáfudegi bókarinn- ar,“ segir Birna Anna. „Hún hefur heldur aldrei misst af neinu í lífi mínu,“ segir Lára. „Hún var meira að segja viðstödd fæðingu sonar míns.“ Birna Anna stendur þétt að baki litlu systur sinni og hefur fulla trú á því að hún muni spjara sig á bókamarkaðnum. „Ég hef alla trú á henni. Í fyrsta lagi er hún búin að skrifa frábæra bók og ég veit að þetta á eftir að ganga vel enda er eins og hún hafi aldrei gert annað. Það er enginn byrjendabragur á henni.“ „Hvaða vitleysa ...“ grípur Lára hógvær fram í en Birna Anna gefur sig ekki: „Jú. Þetta er satt!“ Birna Anna hefur búið í New York um árabil en þær systur eru það nánar að það kemur vart að sök. „Það er ekkert gam- an að vera í burtu frá Láru en við erum í  Lára Björg Björnsdóttir sækir stuðning tiL stóru systur  jökuLL sóLBerg á hLut í netheimsmeti Bruddu flúor í tvö ár Bókin Takk útrásarvíkingar eftir Láru Björgu Björnsdóttur kemur út í dag, föstudag. Birna Anna, stóra systir hennar, flaug heim frá New York til þess að leiða Láru og bókina út í jólabókaflóðið en hún synti sjálf í því ölduróti fyrir nokkrum árum sem einn höfunda Dísar sem sló eftirminnilega í gegn. Birna Anna leyfir Láru Björgu að fara á McDonald´s þegar hún kemur í heimsókn til New York. Hún óttast samt unna mat- vöru á meðan Lára vill að spægipylsa verði þjóðarréttur Íslendinga. Ljósmynd/Hari Rúmlega 7.000 manns hafa merkt sig, eða „taggað“ eins og það heitir á Facebook-máli, inn á risastóra ljósmynd af áhorfendaskara á Glastonbury-tónlistarhátíðinni í Englandi í sumar. Ekki er vitað til þess að jafn margir hafi merkt sig inn á eina ljósmynd á netinu áður og Heimsmetabók Guinness hefur staðfest að hér sé um heimsmet að ræða. Jökull Sólberg Auðunsson var einn fimm forritara sem komu að gerð myndasíðunnar þannig að Íslendingum er óhætt að slá eign sinni á þetta met, í það minnsta að hluta til. „Þetta kom þannig til að ég var að vinna hjá net-auglýsinga- stofu í London en einn stærsti við- skiptavinur hennar er Orange-far- símafyrirtækið. Orange er helsti stuðningsaðili Glastonbury og á hverju ári er reynt að gera eitthvað nýtt til þess að vekja athygli og að þessu sinni var ákveðið að koma þessari risamynd á vefinn og gefa tónleikagestum kost á að merkja sig og vini sína inn á myndina.“ Um 70.000 manns eru á myndinni og það kom í hlut Jökuls að forrita viðmótið sem gerði fólki kleift að stækka myndina nógu mikið til að geta greint andlit og komast síðan inn á Facebook til þess að merkja sig inn. „Ég er hættur á auglýs- ingastofunni og er fluttur heim en tek enn að mér verkefni fyrir þá og vann þetta bara hérna heima,“ segir Jökull sem er einyrki á netmarkaði og rekur Netfélagið.is og hefur nóg að gera við heima- síðugerð. „Taggaðasta“ mynd í heimi Þegar það þyrmir yfir Birnu Önnu í neðanjarðar- lestinni í New York veit hún að eitthvað hræðilegt er að koma fyrir mig hér heima. rosalega þéttu sambandi og erum eigin- lega í stöðugum samræðum alla daga í tölvupósti og á MSN.“ Hér grípur Lára inn í og er nokkuð niðri fyrir: „Við erum líka svo andlega tengdar og finnum alltaf á okkur hvernig hinni líður. Þannig að þegar það þyrmir yfir Birnu Önnu í neð- anjarðarlestinni í New York veit hún að eitthvað hræðilegt er að koma fyrir mig hér heima.“ Faðir þeirra systra, Björn Ragnars- son tannlæknir, kemur nokkuð við sögu í Takk útrásarvíkingar og er lýst sem vægast sagt ofverndandi föður. Þær systur fullyrða að þar sé ekki um neinar ýkjur að ræða og hrópa svo í kór: „Eng- in skemmd!“ Báðar státa þær af því að aldrei hefur þurft að gera við eina einustu tönn í þeim. „Og veistu af hverju? Pabbi lét okkur bryðja flúortöflur daglega í tvö ár á meðan tennurnar voru á sérlega við- kvæmu stigi. Þetta voru einhverjar töflur sem voru á tilraunastigi þá,“ segir Lára og brosir sínu blíðasta þannig að skín í skjannahvítar tennurnar og getur lík- lega þakkað pabba gamla fyrir geislandi brosið. Símaskráin og handbók heimskingjans Agli Gilzenegger er einkar lagið að hertaka alla umræðu þegar hann tekur sér eitthvað fyrir hendur og hann hefur drottnað yfir netmiðlum þessa vikuna eftir að hafin var undirskirftasöfnun gegn því að hann tæki þátt í ritstjórn Símaskrárinnar. Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður forsætisráð- herra, er í hópi þeirra sem skrifað hafa undir. Á listanum skýtur einnig upp kollinum Hávar nokkur Sigurjónsson og kemur kannski ekki á óvart. Árið 20o6 slátraði hann Biblíu fallega fólksins, eftir Egil, í ritdómi í Morgunblaðinu. Kallaði bókina „handbók heimskingjans, og sagði Egil vera fordómafullan, sjálfhverfan og óupplýstan drengstaula. Hann hefur greinilega ekki skipt um skoðun á síðustu árum. Ágúst Borgþór Sverrisson rithöfundur lenti nýlega í skaki við Gilzenegger á síðum Fréttablaðsins en tjáir sig í anda Voltaires á Facebook og fordæmir undirskriftasöfnunina. Ákveðið var að koma þessari risamynd á vefinn og gefa tónleikagest- um kost á að merkja sig inn á hana.Jökull Sólberg er 24 ára gamall forritari sem fór um tvítugt til London þar sem hann aflaði sér mikillar reynslu. Þráinn Bert- elsson, sem lauk nýlega eyðimerkur- göngu sinni sem utan- flokkaþing- maður þegar hann gekk til liðs við Vinstri-græna, er á skjön við meirihluta flokksins í hinu eldfima og háskalega ESB-máli. Þráinn virðist þó hafa ákveðnar grunsemdir um að Evrópusinnar í röðum VG séu mun fleiri en útlit er fyrir en það fólk þori ekki að stíga fram og segja hug sinn. Þráinn veltir þessu fyrir sér á Facebook- síðu sinni þar sem hann spyr: „Hvað ætli það séu margir Evrópusinnar í Vinstrigrænum (auk mín) sem þora að koma út úr skápnum?“ Systurnar Þóra og Kristín Tómasdætur blanda sér í jólabókaslaginn í ár með bókinni Stelpur! Hér er á ferðinni uppbyggileg hand- bók, uppflettirit og sann- kallaður stelpnafræðari sem er ætl- aður unglingsstúlkum. Þóra og Kristín eru eldheitir femínistar og ætla má að með bókinni reyni þær öðrum þræði að leiðbeina ungum stúlkum um refilstigu staðalmynda kynjanna. Þóra, sem gerði það lengi gott í Kastljósinu, býr nú í Noregi en flýgur heim á föstudag til þess að taka þátt í útgáfugleðinni með Kristínu.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.