Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.10.2011, Side 26

Fréttatíminn - 21.10.2011, Side 26
TILBOÐ ELDSNEYTI STAÐIRMITT N1LÍFIÐDEKK NÁÐU ÞÉR Í NÝJA N1 APPIÐ Með nýja N1 appinu geturðu keypt eldsneyti með símanum þínum, skoðað færslur og punktastöðu, kynnt þér N1 tilboðin, fundið næstu N1 stöð á korti og jafnvel réttu dekkin eftir bílnúmerinu þínu. Vertu með á nótunum og appaðu þig í gang með N1! Glæsileg ítölsk leðursófasett í nokkrum gerðum ásamt sófaborðum ofl. á tilboðsverði Opið: Má. - Fö. 12 - 18 - Lau. 12 - 16 - Sun. 13 - 16 Kauptúni 3 • 210 Garðabær • S 771 3800 • www.signature.is Á mynd: Tetris sett Útisófasett fyrir íslenskar aðstæður Nokkar gerðir og litir. Glæsileg og vönduð vara. Sumarvaran er komin Opið: Má. - Fö. 12 - 18 - Lau. 12 - 16 - Sun. 13 - 16 Kauptúni 3 • 210 Garðabær • S 771 3800 • www.signature.is Glæsileg viðhaldsfrí gr nítborð Útis f tt fyrir íslensk t ður Venice leðursófasett 3 + 1 + 1 kr. 255.000,- stgr. H elga Björg Barðadóttir og Benedikt G. Grímsson sækja bæði í ljósið í Ljósinu, en Helga segir að um það leyti sem Ljósið var stofnað hafi hún verið að ljúka krabbameinsmeðferð, en hafi ekki nýtt sér starfsemina á þeim tíma, „enda var ég búin með allt sem hét krabbamein og naut þess bara að fara aftur út í lífið, en gerði mér grein fyrir því að þarna væri örugglega þarft félag á ferð- inni. En krabbameinslífi mínu var ekki lokið, því ég greindist aftur í janúar á þessu ári. Þá var enginn vafi í huga mínum: Ég ætlaði ekki að standa ein í þessu og áður en ég byrjaði í nokkurri meðferð skellti ég mér í heimsókn í Ljósið. Það var tekið afskaplega vel á móti mér; kærleikur skein frá hverju andliti. Ég vissi líka alveg hvað ég vildi: Ég ætlaði ekki að fara í gegnum sjúkdómsferli aftur án þess stuðnings sem ég vissi að væri hægt að fá hjá Ljósinu.“ Dýrmætur félagsskapur Benedikt hafði heyrt um Ljósið í fjölmiðlum og aðstandendur hans sögðu honum frá því, jafnframt sem læknar og hjúkrunarfólk á Land- spítala háskólasjúkrahúsi hafi bent honum á það: „Eftir fyrstu eða aðra lyfjameð- ferð fór ég inn á vefsíðu Ljóssins, til að athuga hvað þar væri að finna, hvort þar væri eitthvað sem ég gæti nýtt mér í minni baráttu. Ég sá að það voru í boði námskeið og fyrir- lestrar sem ég gat vel hugsað mér að fara á. Fyrir valinu varð nám- skeið sérsniðið fyrir karlmenn, tíu fræðslufundir og ýmsir fyrirlesarar. Ég fór í Ljósið til að leita stuðnings hjá fleirum en aðeins ættingjum og þá hjá þeim sem voru í svipuðum sporum en einnig til að láta daginn líða, ekki einangra mig heima því ég gat ekki hugsað mér að loka mig af.“ Helgu fannst alls ekki erfitt að koma í Ljósið fyrst. „Í Ljósinu starf- ar fagfólk, þar eru iðjuþjálfar sem kunna vel til verka og manneskjur úr öðrum stéttum, allt þetta fólk hefur mikla reynslu og tekur vel á móti manni, þar að auki hittir maður fljótt fólk sem er í krabbameinsmeð- ferð, er að byrja eða að klára. Benedikt tekur í sama streng. „Ég byrjaði á að hringja þangað og var boðið að koma í viðtal. Ég fékk mjög góðar móttökur, það þarf enginn að vera smeykur við að fara og kynna sér hvaða starf- semi fer fram þarna, það er byrjunin. Mér fannst alls ekki erfitt að koma þarna inn í fyrsta sinn. Þegar ég kom hitti ég vinalegt starfsfólk og aðra sem eru að glíma við sama sjúkdóm, fólk sem er að mæta í sín fyrstu skipti og aðra sem eru búnir að koma oft. Fólk kemur til að sækja námskeið eða bara að spjalla við aðra í sömu sporum og leita sér félagsskapar.“ Karlmenn einangra sig frekar Helga segist nýta sér Ljósið að meðaltali tvisvar í viku og Benedikt tvisvar til þrisvar. „Ég hef nýtt mér Ljósið að meðaltali tvisvar í viku,“ segir Helga. „Ég fer í göngu og jóga og einnig hef ég verið að tálga. Svo hef ég tekið þátt í styttri námskeiðum sem lúta að andlegri og líkamlegri heilsu. Stundum „droppa“ ég inn í hádeginu og fæ mér dýrindis máltíð á vægu verði og hitti gott fólk.“ Benedikt nýtir sér líka hreyfinguna. „Ljósið býð- ur upp á líkamsrækt í samvinnu við Hreyfingu í Glæsibæ. Það eru sér tímar fyrir ljósberana, fólk sem er að koma úr meðferð og aðra sem hafa lokið henni fyrir nokkru, þannig að það er hver á sínum forsendum. Þeir sem eru að byrja fara rólega, hinir sem búnir eru að vera dálítinn tíma taka meira á. Ég hef nýtt mér að fara þangað tvisvar til þrisvar í viku og hef gert það frá því í byrjun apríl og stefni á að halda því eitthvað áfram, því það er svo auðvelt að hætta, eða draga það að fara ef maður mætir ekki í þessa hóptíma. Ég hef ekki sótt aðrar tóm- stundir hjá Ljósinu, ennþá. Ég er það heppinn að vera búinn að ná bata og er á leið út í atvinnulífið aftur.“ Þegar ég spyr þau hvað þeim finn- ist mest gefandi við að mæta í Ljósið svarar Helga: „Það er að hitta fólk – fólk sem er í svipaðri stöðu og maður sjálfur og skilur þar af leiðandi betur en aðrir hvað maður er að fara í gegn- um. Í Ljósinu fær maður hvatningu og gleði. Við erum ekkert að velta okkur upp úr sjúkdómum það er langt frá því.“ „Mér finnst mest gefandi að hitta aðra sem eru í sömu sporum,“ segir Benedikt, „og fá tækifæri til að ræða um reynslu mína og heyra reynslu annarra. Það er mjög gott að eiga þess kost að geta farið á einhvern stað og leitað sér félagsskapar auk þess að fá upplýsingar og fræðslu hjá frábæru starfsfólki Ljóssins.“ Lokaspurningunni beini ég til Bene- dikts þar sem karlmenn eru í svo mikl- um minnihluta þeirra sem sækja Ljós- ið. Hvers vegna heldurðu að það sé? „Ég held að það sé frekar að karl- menn bíti á jaxlinn og ætli að takast á við þetta einir og sér, fremur en að þeir þori ekki, treysti sér ekki til eða telji sig ekki þurfa aðstoð, ég skal ekki segja. Mín reynsla er sú að ég hefði ekki viljað fara á mis við að kynnast og nýta mér þessa þjónustu, það hefur hjálpað mér mikið, á því er ekki nokkur vafi í mínum huga. Ég hvet aðra karlmenn sem eru í og eiga eftir að fara í gegn um krabbameinsmeðferð að nýta sér starfsemi Ljóssins.“ Mikilvægur stuðningur frá öðrum í svipuðum sporum Helga Björg Barðadóttir og Benedikt G. Grímsson koma í Ljósið að minnsta kosti tvisvar í viku. Benedikt hvetur karla til að vera duglegri að koma þangað, en konur eru í miklum meirihluta þeirra sem sækja Ljósið. Ljósmyndir/Hari Ég held að það sé frekar að karl- menn bíti á jaxlinn og ætli að takast á við þetta einir og sér, fremur en að þeir þori ekki, treysti sér ekki til eða telji sig ekki þurfa aðstoð, ég skal ekki segja. Mín reynsla er sú að ég hefði ekki viljað fara á mis við að kynnast og nýta mér þessa þjónustu. Benedikt Getur þú styrkt barn? www.soleyogfelagar.is Getur þú tyrkt barn? www.soleyogfelagar.is 26 viðtal Helgin 21.-23. október 2011

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.