Fréttatíminn - 21.10.2011, Page 34
Vopnaðir úra ræningjar
Enginn hefur verið handtekinn eða yfir-
heyrður eftir að birtar voru myndir af
manni sem talinn er tengjast vopnuðu
ráni í Úra- og skartgripaverslun Frank
Michelsen á Laugavegi. Verðmæti ráns-
fengsins, dýrra úra, er sagt hlaupa á
tugum milljónum króna. Lögreglan hefur
ekki fengið haldbærar vísbendingar
eftir að boðin voru fundarlaun og birtar
myndir af manni sem grunaður er um
aðild að ráninu. Eftirlit hefur verið hert
með sendingum og ferðum úr landi. Eftir-
líkingar af byssum fundust í flóttabílum
ræningjanna. Enn er ekkert í rannsóknar-
gögnum sem bendir til þess að alvöru
skotvopni hafi verið beitt í ráninu.
CCP fækkar starfsfólki
Tölvuleikjaframleiðandinn CCP, sem
þekktastur er fyrir EVO fjölspilunarleik-
inn, hefur ákveðið að fækka starfsfólki
sínu um fimmtung. Alls missa því vinn-
una um 120 af 600 starfsmönnum fyrir-
tækisins. Flest störf tapast í Atlanta en
34 á Íslandi. Starfsmennirnir sem missa
vinnuna í Reykjavík eru um tíundi hluti
þeirra sem vinnur fyrir CCP á Íslandi.
Samdrátturinn er mun meiri í starfsemi
félagsins erlendis, þar sem rúmlega
fjórðungur starfsmanna missir vinnuna.
Ríkislögreglustjóri
ekki lögbrjótur
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra
telur að Ríkislögreglustjóri hafi ekki
brotið lög um opinber innkaup, líkt og
Ríkisendurskoðun hefur haldið fram.
Hann segir að sleggjudómar hafi verið
kveðnir upp í málinu. Innkaup Ríkis-
lögreglustjóra voru gagnrýnd harðlega
í skýrslu Ríkisendurskoðunar sem birt
var í lok september. Rannsökuð voru
viðskipti 14 löggæslustofnana við 4 fyrir-
tæki, sem öll eru í eigu lögreglumanna
eða fjölskyldna þeirra. Viðskiptin voru
að mestu með óeirðabúnað, svo sem
hjálma og grímur. Í tilkynningu Ríkis-
endurskoðunar kemur fram að stofnunin
stendur við upphaflegar aðfinnslur sínar
við innkaupin.
Brotajárn í Baugsmáli
Tugur vitna var yfirheyrður í skatta-
hluta Baugsmálsins í vikunni. Bifreiðar,
brotajárn, sófasett, og ýmis hlunnindi
bar á góma í réttarsalnum. Meðal þeirra
sem báru vitni var fjölskyldufaðirinn, Jó-
hannes Jónsson. Hann var m.a. spurður
út í skil á hlunnindum á bifreiðum sem
syni hans, Jóni Ásgeiri, er gert að sök
að hafa vantalið í skattskilum sínum.
Jóhannes sagði Porche-bifreið hafa
verið fjárfestingu, Cherokee-jeppi hefði
verið notaður af fyrrverandi eiginkonu
Jóns Ásgeirs en Hummer hefði verið lítið
notaður, enda flokkist hann frekar sem
brotajárn en bifreið í sínum huga.
Slæm vika
fyrir Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins
Góð vika
fyrir Gunnar Karlsson myndlistarmann
82%
Vilja að Guðmundar- og
Geirfinnsmálin verði
tekin upp að nýju samkvæmt
skoðanakönnun MMR.
3
Vikur í röð er tíminn sem
bókin Gamlinginn sem skreið
út um gluggann og hvarf
eftir Svíann Jonas Jonasson
hefur verið á toppi aðallista
Eymundssonar.
274
Milljarðar króna er upphæð-
in sem fjárfestingasjóðirnir
TPG, Bain, Blackstone og BC
Partners vilja greiða fyrir
77 prósent hlut skilanefnda
Landsbankans og Glitnis í
Iceland smásölukeðjunni í
Bretlandi samkvæmt frétt á
vef Financial Times.
1
Lítill bjór sem Ólafur Páll
Gunnarsson fékk ekki af-
greiddan á Ölstofu Kormáks
og Skjaldar um síðustu helgi
varð efni í tvær mest lesnu
fréttir á Eyjan.is. Barstúlkur
staðarins sögðust ekki
afgreiða rudda.
Hetjur Valhallar slá í gegn
Gunnar Karlsson myndlistarmaður er aðalmaðurinn á bak
við hönnun og útlit dýrustu kvikmyndar sem hefur verið
framleidd á Íslandi: Hetjur Valhallar. Myndin er fyrsta íslenska
teiknimyndin í fullri lengd og sló umsvifa-
laust í gegn þegar hún var frumsýnd
um síðustu helgi. Fyrir frumsýninguna
var þegar búið að selja myndina til 55
landa en Gunnar og félagar eru nánast
tilbúnir með handrit að næstu mynd. Hetjur
Valhallar var í smíðum í um sjö ár. Hún
segir frá hinum kornunga járnsmiði
Þór sem býr í Mannheimum og
áttar sig ekki á að hann er sonur
Óðins fyrr en hann fær hamarinn
Mjölni í lúkurnar. Öruggt má telja
að Gunnar og starfsfélagar hans
hjá Caoz, sem gerðu myndina,
munu hafa nóg að sýsla á næstu
mánuðum. Næsta mynd þeirra
verður ábyggilega ekki sjö ár í
vinnslu.
Ekki rannsakaður en fékk forsíðuna
Í pólitík er góð regla að taka frumkvæðið og stýra umræðunni ef
þess er nokkur kostur. Illa getur farið þegar menn láta slík tæki-
færi fram hjá sér fara. Þetta fékk Bjarni Benediktsson að reyna í
vikunni þegar DV sló honum upp á forsíðu með frétt um að hann
hefði verið kallaður til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara í
tengslum við sakamálarannsókn á Sjóvá. Til skoðunar voru við-
skipti félags, sem Bjarni tengdist, við Sjóvá en sjálfur var hann
ekki til rannsóknar né verður ákærður í því máli. Skýrslutakan
var fyrir nokkrum mánuðum og hefði Bjarna verið
í lófa lagið að senda þá strax frá sér stutta
fréttatilkynningu og hnykkja á því að með
komu sinni til saksóknara hefði hann verið að
aðstoða við rannsókn málsins. Því miður fyrir
Bjarna fór slík tilkynning aldrei út. DV gat því
skúbbað fínni frétt um yfirheyrslu formanns
Sjálfstæðisflokksins og Bjarni var
tilneyddur til að leggjast vörn sem
hefði verið með öllu óþörf ef hann
hefði bara sagt frá málinu sjálfur
á sínum forsendum nokkrum
mánuðum fyrr.
185,4
vikan í tölum
Stóra systir stuðar
Femíníska neðanjarðarhreyfing-
in Stóra systir lét heldur betur
til skarar skríða í vikunni. Fólki
á Facebook var misskemmt yfir
aðgerðum hreyfingarinnar.
Sölvi Tryggvason
Er ekki pínulítil hræsni að ganga
um bæinn og hóta að birta allar
upplýsingar um vændiskaup-
endur en vera sjálfur hulinn frá
toppi til táar?
Lísa Kristjánsdóttir
Brynjar Níelsson var í
morgunútvarpinu. Þar sagði
hann aðgerðir Stóru systur refsi-
verðar og jafnvel refsiverðari en
hin ekki svo alvarlegu brot að
kaupa vændi ...
Það er augljóst að á meðan
hæstaréttarlögmönnum finnst
þessi brot ekki alvarleg þá er
þeim „eðlilega“ ekki mikið sinnt
annars staðar í kerfinu. Nauðsyn
Stóru systur er því auðsjáanlega
alger!
Eiríkur Örn
Er nú svona yfirleitt fram og til
baka í allri þessari vændisum-
ræðu. En mikið djöfull vildi ég að
jörðin gleypti Brynjar Níelsson
og skilaði honum aldrei aftur.
Stefán Hrafn Hagalín
Ég er stóra systir.
Rangláti dómarinn
Dómur í héraði yfir Jóni Bjarka
Magnússyni hleypti illu blóði í
fólk á Facebook í vikunni og bar
þar mest á pirringi blaðamanna
sem að vonum voru óhressir
með að blaðamaður væri
dæmdur til persónulegra fjár-
sekta fyrir að fjalla um hjónin
sem kennd eru við Aratún og
ýmsan djöfulgang við þá götu.
Sölvi Tryggvason
Fólk getur ekki hrópað og
gargað um að fjölmiðlar á
Íslandi eigi að vera á heims-
mælikvarða á meðan þar eru
greidd lág laun og blaðamenn
eru dæmdir í milljónasektir úr
eigin vasa. Svo einfalt er það!
Jakob Bjarnar Gretarsson
Já, maður hefur verið að
jarma um þetta árum saman
fyrir daufum eyrum, það að
kristaltær sturlun sé að dómarar
vegi og meti hvað eigi „erindi
við almenning“ og dæmi svo á
þeim forsendum. En menn hafa
látið sér fátt um finnast. Skoðið
ummælin sem dæmd eru dauð
og ómerk! Í skjóli skinhelgi
Íslendinga er sannleikurinn
dauður og ómerkur og menn
ekki svo mikið sem depla auga.
Sigurjón Egilsson
Útgáfan borgar. Annað kemur
ekki til greina.
Eilífðarvélin Páll magnússon
Enn er deilt um ráðningu Páls
Magnússonar til Bankasýsl-
unnar og óánægjuraddirnar á
Facebook virðast seint ætla að
þagna.
Heiða B Heiðars
Ég bara hreinlega næ ekki utan
um þetta! Er Páll Magnússon
nýr forstjóri Bankasýslunnar
eða ekki?
Sveinn Andri Sveinsson
Skondið að fylgjast með
vandræðaganginum í stjórnar-
liðum út af Páli Magnússyni.
Stjórn Bankasýslunnar ákvað á
faglegum forsendum að ráða
hann forstjóra en nú vilja sumir
þeir sem fordæmt hafa „póli-
tískar stöðuveitingar” hnekkja
því og veita honum pólitískan
starfslokasamning.
Sjarmalausi Svíinn kemur
Ráðning Lars Lagerbäck, nýs
landsliðsþjálfara karlalandsliðs-
ins í knattspyrnu, var milli tann-
anna á boltabullum og öðrum á
Facebook um síðustu helgi.
Freyr Gígja Gunnarsson
Fyrsta verkefni hans verður von-
andi að skipta um treyjur, það er
ekkert landslið sem nær árangri
í svona ljótum búningum ...
Thorvaldur Örn Kristmundsson
Líst vel á ... svo þarf bara að fá
11 góða erlenda knattspyrnu-
menn í viðbót og þá mössum við
þetta!!!
Trausti Haflidason
fínasta ráðning hjá KSÍ, eini
ókosturinn er að báðir þjálfar-
arnir búa erlendis.
Bergsteinn Sigurðsson
„Sjarmalaus en nær úrslitum,“
segir DV um nýja landsliðsþjálfar-
ann. Ég held að vandi fyrri lands-
liðsþjálfara hafi ekki verið sá að
þeir „náðu ekki úrslitum“ – þau
voru bara sjaldnast okkur í hag.
HEituStu kolin á
Stóra systir
Ný samtök undir
þessu nafni
litu dagsins
ljós. Með-
limir hylja sig
undir búrkum ,
andlitsklútum
og í sumum
tilfellum bakvið
sólgleraugu.
Tilgangurinn
er baráttan
gegn meintum
vændiskaupum.
Ljósmynd/Hari
www.heilsumeistaraskolinn.com s. 892-6004
Tilboðsverð til 9. september 38.000kr
Hentar öllum sem vinna með heilsu og lækningar, hefðbundnar
og heildrænar s.s.læknum, græðurum og sálfræðingum
19. - 20. nóvember 2011
Einn virtasti frumkvöðull á sviði
lithimnugreiningar - IRIDOLOGY
Dr. Daniele Lo Rito læknir (MD)
verður með námskeið í TIME RISK
greiningu á áföllum á lífsleiðinni í lithimnum
Í fyrsta sinn á ÍSLANDI
mun ítalski læknirinn
DR. DANIELE LO RITO kenna
TIME RISK
Milljónir króna sem rekstur forseta-
embættisins kostar samkvæmt fjárlögum 2012. Til
samanburðar er kostnaður við Hæstarétt 203,5 milljónir
og skrifstofu Umboðsmanns Alþingis 116,3 milljónir.
34 fréttir vikunnar Helgin 21.-23. október 2011