Fréttatíminn - 24.02.2012, Blaðsíða 2
Oddný plús þrír til New
York fyrir 1,4 milljónir
Fjórir fulltrúar skóla og frístund-
aráðs fóru í sex daga ferð til New
York borgar til að kynna sér meðal
annars „hvernig skapandi greinar
eru samþættar öðrum námsgreinum
í leik- og grunnskólastarfi.“ Heildar-
ferðakostnaðurinn var 1.390 þúsund
krónur.
Samkvæmt
upplýsingafull-
trúa sviðsins,
Sigrúnu
Björnsdóttur,
fóru borgarfull-
trúinn Oddný
Sturludóttir,
sem er for-
maður sviðsins,
Ragnar Þorsteinsson, sviðsstjóri,
Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir
og Laufey Ólafsdóttir. Hún greiddi
flugfargjaldið sjálf og var þrjá daga
með hópnum.
Í skriflegu svari Sigrúnar segir að
einn dagur ferðarinnar hafi tengst
Biophiliu-verkefninu, sem borgin
vinnur með Björk. Í október keypti
borgin fimmtán spjaldtölvur vegna
verkefnisins fyrir eina milljón króna.
„Framtíðarfjárfesting,“ var svar
borgarinnar. - gag
Bónus oftast með
lægsta verðið
Bónus var oftast með lægsta verðið
þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði
verð í þremur lágvöruverðverslunum
og fjórum stórmörkuðum á höfuð-
borgarsvæðinu og Ísafirði 20. feb-
rúar. Verslanirnar Kostur og Víðir
neituðu að taka þátt. Hæsta verðið
var oftast hjá Samkaupum-Úrvali eða
í um helmingi tilvika. Í yfir helmingi
tilvika var verðmunurinn á hæsta og
lægsta verði allt að 25 prósent og í
þriðjungi tilvika var á milli 25-50 pró-
senta verðmunur. Flestar vörurnar
sem skoðaðar voru í könnuninni voru
til hjá Hagkaupum eða 104 af 110,
næstflestar hjá Fjarðarkaupum eða
101, Nóatún og Samkaup Úrval áttu
til 94. Fæstar vörurnar í könnuninni
voru fáanlegar í Bónus eða 81, Nettó
átti 85 og Krónan 92. Bónus var með
lægsta verðið á 63 vörutegundum af
þeim 110 sem skoðaðar voru. Krónan
var lægst í 29 tilvikum og Fjarðar-
kaup í 15. -jh
Krónuverð olíu aldrei hærra
Olíuverð á heimsmarkaði hefur ekki verið hærra í krónum talið en nú,
þótt dollaraverð hafi áður verið hærra. Í gær kostaði tunna af Brent-
olíu 123,8 dollara. Algengt verð á bensínlítra í sjálfsafgreiðslu er nú
252,9 krónur en var 229,9 krónur um áramótin. Þar sem eldsneyti vegur
tæplega 6 prósent af vísitölu neysluverðs hefur þessi þróun sett mark á
verðbólguþróunina. Greining Íslandsbanka segir að eldsneytishækkunin
hafi hækkað vísitölu neysluverðs um 0,3 prósent í janúar en vísitalan
hefði verið óbreytt ef eldsneytið hefði ekki hækkað. - jh
L ögreglan skráði 78 brot og verkefni á Monte Carlo í skýrslu sem lögð var fyr-
ir borgarráð til þess að styðja þá
ákvörðun hennar að framlengja
ekki rekstrarleyfi staðarins. Önnur
48 voru skráð í nágrenni staðarins.
Úr þeirri skýrslu sem snýr beint að
staðnum má sjá ótal dæmi, þar sem
lögreglan hefur verið kölluð á vett-
vang og Margeir Margeirsson, eig-
andi Monte Carlo og Mónakó – sem
einnig hefur verið synjað um rekstr-
arleyfi, rengir að tengist staðnum.
Dæmi:
1) Klukkan er 18.43 þann 25. júní
2010 situr ofurölvi maður ská á móti
Monte Carlo á Laugavegi þegar lög-
reglan kemur að. Málið er skráð á
Monte Carlo.
2) Fjórða júlí sama ár klukkan
15.25 kom lögreglan á vettvang
vegna deilna milli konu með hníf og
starfsfólks Monte Carlo. Málið er
skráð á Monte Carlo. Eigandi stað-
arins segir að starfsmennirnir hafi
verið að varna því að konan, sem
hafi verið til vandræða á Laugavegi
í mörg ár, kæmist inn.
3) Þann 6. ágúst er góðkunningja
ekið í Gistiskýlið „hvar tekið var við
honum.“ Hann var öldauður utan-
dyra. Málið er skráð á Monte Carlo.
4) Fjórum dögum síðar var brotin
lítil rúða í vinstri afturhurð bifreið-
ar. Inn í henni svaf karlmaður. Eig-
andi bifreiðarinnar saknaði einskis.
Málið er skráð á Monte Carlo.
5) Tilkynnt þann 7. september að
þrír séu að berja einn. Fórnarlambið
segir þá hafa ráðist á sig fyrir utan
Monte Carlo. Málið skráð á Monte
Carlo.
6) Starfsmaður Monte Carlo
hringir á lögreglu og biður hana
um að fjarlægja mann fyrir utan hjá
þeim, sem sé æstur og til leiðinda.
Málið skráð á Monte Carlo.
7) Karlmaður stelur kjöti í Bón-
us 11. október kl. 16.11. Lögregl-
an fær tilkynningu um mann með
ætlað þýfi við Monte Carlo. Mað-
urinn fannst við bílastæðahúsið
við Laugaveg 86. Málið er skráð á
Monte Carlo.
8) Lögreglan fær þann 17. október
2010 tilkynningu um meðvitundar-
lausan mann eftir líkamsárás. Sá
engan og vissi ekki hver hefði til-
kynnt um atburðinn. Málið skráð á
Monte Carlo.
Í óbirtu samtali við Fréttatímann í
lok janúar sagði Óttarr Proppé, for-
maður borgarráðs, kvartanir íbúa,
verslunareigenda og afskipti lög-
reglu af viðskiptavinum staðanna
Monte Carló og Mónakó á Lauga-
vegi ástæðu þess að lögreglan hafi
synjað Margeiri um áframhaldandi
rekstrarleyfi fyrir staðina.
Málið er nú í meðferð innanríkis-
ráðuneytisins og verður úrskurður
þess kveðinn upp áður en bráða-
birgðaleyfi staðanna, sem fékkst
með kærunni Margeirs þangað,
fellur úr gildi.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri,
segir að allar athugasemdir og
ábendingar frá Margeiri hafi verið
teknar til skoðunar að hálfu borg-
aryfirvalda. Ekki sé hægt að tjá sig
meira um málið vegna kærumeð-
ferðinnar. Spurður hvort hann teldi
að staðan í miðbænum yrði betri
hyrfu þessir staðir á braut svarar
hann. „Ég hef enga sérstaka skoðun
á því.“
Margeir rak umdeildan Keisar-
ann frá 1989, sem margt óreglu-
fólk sótti. Árið 1993 opnaði hann
Mónakó og keypti Langa barinn
og breytti í Monte Carlo árið 2005.
Þangað hafa ógæfumenn sótt en
Margeir bendir á að staðirnir hafi
aldrei farið í þrot og skipt um kenni-
tölu. Á öðrum staðanna, Monte
Carlo, var framið morð í fyrra.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Kjöti stolið í Bónus en
málið skráð á Monte Carlo
Margeir Margeirsson, eigandi staðanna Monte Carlo og Mónakó sem margir ógæfusamir menn
sækja, er afar ósáttur við að brot sem framin eru í námunda við Monte Carlo séu skráð á staðinn.
Hann berst nú fyrir lífi staðanna, sem hafa misst rekstrarleyfi en eru reknir þar til innanríkis-
ráðuneytið hefur úrskurðað um réttmæti leyfissviptingarinnar.
Hér er Margeir Margeirsson á Mónakó en hann á einnig Monte Carlo. Margt ógæfusamt fólk sækir þessa staði en Margeir bendir
á að staðir hans hafi aldrei farið í þrot eða skipt um kennitölu. Mynd/Hari
Miðborgin
Laxá á ásuM „gegndarLaus“ Matskostnaður
Arðskrármatið lækkað um tvær milljónir króna
Stjórn veiðifélags árinnar telur kostnaðinn enn of háan en „með tár í auga“ er gengið að lækkunartilboði matsnefndarinnar.
M atskostnaður vegna arðskrármats Laxár á Ásum hefur verið lækk-
aður en stjórn veiðifélags árinnar
undraðist „gegndarlausan“ kostnað
við mat hennar. Matskostnaður nam
rúmlega 9,2 milljónum króna, langt
umfram kostnað við mat annarra
veiðiáa, eins og fram kom í Frétta-
tímanum síðastliðinn föstudag.
„Stuttu eftir útkomu blaðsins
fékk ég símtal þar sem mér var
boðin tveggja milljóna króna lækk-
un á matskostnaði,“ segir Páll Á.
Jónsson, formaður stjórnar Veiði-
félags Laxár á Ásum. „Eftir að hafa
ráðfært mig við stjórn félagsins og
þorra eigenda var niðurstaðan sú
að skynsamlegast væri að ganga
að þessu. Þetta gerðum við þrátt
fyrir að við séum þeirrar skoðunar
að upphæðin sé enn of há,“ segir
Páll. Fram kom í Fréttatímanum að
stjórn veiðifélagsins hafði hafnað
réttmæti reikninga matsnefndar-
innar umfram rúmlega 4,3 milljón-
ir króna. Sérstök athugasemd var
gerð við nær 10 þúsund kílómetra
akstur matsnefndarmanna og að
nefndin hefði ekki nýtt sér nútíma
fjarskiptatækni. Jafnframt var bent
á að Laxá á Ásum væri tiltölulega
stutt og ekki með neinum þverám.
Kostnaður við mat annarra áa und-
anfarið hefur verið frá 1,2 til 6,3
milljóna króna. Matsnefndin taldi
hins vegar að arðskármatið hefði
verið óvenju umfangsmikið.
„Það er óvissa með mál fyrir dóm-
stólum og alltaf hætta á að menn
standi uppi með óbættan málskostn-
að,“ segir Páll, „en einn eigandi ár-
innar orðaði það svo að við sam-
þykktum tilboðið með tár í auga.“
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Laxá á Ásum.
Ljósmynd Hanna Kristín Gunnarsdóttir
Myndatexti: (7496 Laxá)
FELLSMÚLI • SKÚLAGATA • GARÐABÆR • MJÓDD
2 fréttir Helgin 24.-26. febrúar 2012