Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.02.2012, Blaðsíða 22

Fréttatíminn - 24.02.2012, Blaðsíða 22
 Páskabjórinn 2012 Reglubróðir úr belgísku klaustri bestur Benedikt Klausturbjór þótti bestur páskabjóranna í ár að mati dómnefndar. Páska-bockinn fylgdi þó fast á eftir. Þ ó enn sé rúmur mánuður til páska er páskabjórinn kominn á markað. Undanfarin ár hefur verið mikil gróska í framleiðslu árstíðabjóra hér á landi og í ár eru fimm sérbruggaðir íslenskir páskabjórar á markaðinum. Þetta er skemmtileg hefð sem vert er að halda í en hvað er það sem setur páska í páskabjór? Dómnefndin sem að vanda er skipuð miklum bjóráhugamönnum úr Fágun, Félagi áhugamanna um gerjun, vill meina að til að teljast „páska“ þurfi Teitur Jónasson og Kristinn Grétarsson matur@frettatiminn.is Víking Páskabock 6,7% 330 ml. 429 kr.- Ummæli Dómnefndar: Mjög dökkur á lit, froðumikill og flottur miðað við Bockstílinn. Lyktar af mjúkri kara- mellu sem kemur lika fram í bragðinu ásamt dökkum ávöxtum og brenndum púðursykri. Hann er mjúkur og fyll- ingin er góð. Klárlega góður páskabjór sem passar þeim sem vilja prófa eitthvað öðruvísi þessa páskana. Þennan bjór er gott að drekka með eftirmat eða einan og sjálfan. Viking Páskabjór 4,8% 330 ml. 339kr.- Einkunn: 80% Ummæli Dómnefndar: Páskalega gulbrúnn á lit. Flott karamella í lyktinni. Bjórinn er bragðmikill, þægilega humlaður með skemmtilega beiskju en vantar þó meiri sætu á móti til að halda jafnvægi auk þess sem hann mætti vera örlítið sterkari. Að öðru leyti er þetta mjög góður bjór og vantar bara herslumun- inn til að teljast frábær. Víking kemur vissulega skemmtilega á óvart í ár með sinn besta árstíðar- bjór lengi. 85% DómnefnD 80% DómnefnD Páskakaldi 5,2% 330 ml. 369 kr.- Ummæli Dómnefndar: Djúprauður og flottur litur. Brennd karamella í lykt og jafnvel útí súkkulaði sem passar vel við páskaeggið. Tónar af dökku malti í bragð- inu sem er heldur þunnt miðjumoð og mætti við meiri fyllingu. Þægileg og óágeng beiskja en vantar sætu. Þetta er samt alveg ágætis páskabjór en er þó meiri söturbjór en matarbjór. Benedikt Klausturbjór nr. 9 (Páskabjór) 7% 330 ml. 449 kr.- Ummæli Dómnefndar: Flottur litur. Fersk lykt með gerkarakter sem minnir á vorið, mjög páskalegt og gott. Appelsíukeimur í bragðinu, maltríkur og sætur. Gott og eilítið gróft eftirbragð sem lifir vel og lengi. Fjöl- breyttur og með góða áferð. Hentar eflaust betur sem lystauki fyrir mat en sem matarbjór. Ef páskabjórar eiga að minna á sumarið þá gerir þessi bjór það með glæsibrag. 80% DómnefnD 90% DómnefnD Páskagull 5,2% 330 ml. 299 kr.- Ummæli Dómnefndar: Dekkri litur en vanalega frá Gull árstíðabjórum. Skemmtileg lykt en bragðið svíkur lyktina. Það vantar meiri kara- mellu og malt til að hann teljist fullvaxta páskabjór. Hann er minnst spes af öllum páskabjórunum og minnir á hefðbundinn lagerbjór. Þó er óhætt að segja að hann sé bragðgóður bjór sem hentar vel þeim sem vilja fá sér páskabjór en vilja ekki vera mjög ævintýragjarnir í valinu. 70% DómnefnD DómnefnDin Erlingur Brynjúlfsson er verk- fræðingur sem hefur bruggað í þrjú ár og þá helst belgíska dubbel- eða bockbjóra Sigurður Guðbrandsson er í stjórn Fágunar og hefur bruggað sjálfur í þrjú ár. Hann bruggar helst humlað amerískt ljóst öl. Halldór Ægir Halldórsson Formaður Fágunar og mikill áhugamaður um bruggun sem hann hefur stundað í þrjú ár og er sjúkur í reykta bjóra. Óttar Örn Sigurbergsson Innkaupastjóri sem hefur bruggað í félagi við aðra í þrjú ár og er veikur fyrir reyktum bjórum og belgískum „strong ale“. páskabjór að hafa til að bera karamellu- og maltkeim og vera aðeins sterkari en hefð- bundinn bjór. Einnig telst það vera kostur ef bjórinn nær því að vera frísklegur og tengja þannig saman þungan veturinn og létt- lynt sumarið. Það skemmir heldur ekki ef páskabjórinn gengur vel upp með páska- máltíðinni já, eða páskaegg- inu nema hvort tveggja sé. Dómnefndi var einróma um að gæði páskabjórsins í ár væru mikil og að aukinn metnaður bjórframleið- anda í framleiðslu árs- tíðabundinna bjóra leyndi sér ekki. Föstudaginn 2. mars fylgir Fréttatímanum sérkafli um fermingar; þar segir af öllu því sem þessum tímamótum fylgir í máli og myndum. Fartölvur verða í brennidepli þann 9. mars í sérkafla og 16. mars fylgir viðamikil umfjöllun um fermingar- gjafir blaðinu. Nánari upplýsingar veita starfsmenn auglýsingadeildar í síma 531 3310 eða á auglysingar@frettatiminn.is Fermingar 22 úttekt Helgin 24.-26. febrúar 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.