Fréttatíminn - 24.02.2012, Síða 32
4 ferming Helgin 24.-26. febrúar 2012
S ólveig Eiríksdóttir eða Solla, eins og hún er köll-uð, er flestum kunn fyrir
frábærar heilsuvörur og dýr-
indis grænmetis- og hráfæðis-
rétti. Ekki er hún aðeins fræg
fyrir rétti sína á Íslandi því ný-
verið sigraði hún í keppni um
besta hráfæðiskokk heims sem
fram fór vestanhafs. Sístækk-
andi hópur Íslendinga hefur
tileinkað sér hollari matargerð
og segir Solla það ekki þurfa
að vera flókið eða umturna lífi
fólks. Með nokkrum góðum
ráðum sé til dæmis hægt að
gera fermingarveisluna bæði
holla og girnilega.
„Á tímamótum sem þessum
vilja margir bera fram uppá-
halds kökurnar eða réttina
sína. Hér á landi er svo mikið
til af góðu hráefni að það er
ekkert erfitt að skipta því
óholla út fyrir betri kost. Þegar
verið er að baka er til dæmis
hægt að nota hrásykur, kókos-
sykur eða agave-sýróp í stað
sykurs eða í staðinn fyrir hluta
af sykrinum. Einnig er hægt
að skipta hveitinu út fyrir
spelt eða blanda þessu tvennu
saman til helminga. Nú einnig
er hægt að skipta út majonesi
fyrir sýrðan rjóma. Það þarf
ekki endilega að ganga alla
leið til þess að maturinn verði
hollari. Það skemmtilegasta í
dag er að fólk þorir að breyta
aðeins til og úr því koma oft
rosalega fínar uppskriftir.
Áhrifaríkasta leiðin er að nota
heilbrigða skynsemi.“
Solla lét okkur í té tvær upp-
skriftir sem bæði eru hollar
og sérstaklega bragðgóðar í
fermingarveisluna.
Silunga eða laxarúllur
10 tortillakökur, hægt að nota
spelt eða heilhveiti
Fylling:
250 gr reyktur silungur eða lax
400 gr rjómaostur
2 msk sætt sinnep
¼ rauðlaukur
½ búnt ferskur kóríander
himalayasalt
nýmalaður svartur pipar
– setjið allt í matvinnsluvél og
maukið saman – einnig er hægt
að saxa laxinn niður í litla bita og
hræra öllu saman í skál.
– smyrjið vænu lagi af fyllingu á
tortillakökuna, rúllið henni upp
og skerið síðan í 2-3 sentímetra
þykka bita. Gott er að setja tann-
stöngul í hvern bita.
Litlar pítsur
250 gr spelt, gott að nota ½ gróft
& ½ fínt í byrjun
3 -4 tsk vínsteinslyftiduft
1/2 tsk salt
1 tsk oreganó
1-2 msk ólífuolía
125 ml heitt vatn
– þurrefnum blandað saman í skál
eða það sem mun auðveldara er:
Sett í hnoðarann í matvinnslu-
vélinni
– olíunni bætt út í & síðan vatninu
& deigið hnoðað
– smá spelti stráð á borðið &
deigið flatt út frekar þunnt
– notið glas eða eitthvað hringlótt
til að móta fyrir botnunum, skerið
út úr öllu deiginu
– bakið við 200°c í nokkrar mín
fylling:
1 dós niðursoðnir tómatar
1 dós tómatpúrra
2 hvítlauksrif
3 tsk ítölsk kryddblanda
rifinn sojaostur
– hrærið öllu saman og setjið 1
msk ofaná hverja pítsu
– bakið við 200° í 3-5 mín
solla í Gló
Hollari fermingarveisla
án mikillar fyrirhafnar
67
%
... kvenna á
höfuðborgar-
svæðinu
lesa
Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011