Fréttatíminn - 24.02.2012, Síða 54
Helgin 24.-26. febrúar 201246 tíska
Eftirsóttasta fyrir-
sætan á tískuvikunni
Tískutímaritið Style stóð fyrir könnun
á dögunum þar sem hægt var að
kjósa flottustu og faglegustu fyrir-
sætuna á tískuvikunni í New York. Var
það Victoria’s Secret-ljóskan Candice
Swanepoel sem bar sigur úr býtum
og fór fjórðungur atkvæða til hennar
– sögðu kjósendur að frammistaðan
hennar í Michael Kors-sýningunni hafi
gert útslagið. Þær Kati Nescher og
Aymeline Valade deildu öðru sætinu
en 24 prósent kjósenda kusu þær. Ofur-
fyrirsætan Gisele Bündchen, sem hefur
verið eftirsóttasta fyrirsætan síðstu ár,
þurfti að sætta sig við fjórða sætið en
aðeins 7 prósent kjósenda kusu hana.
Kolfinna lokar sýningu Marc Jacobs
Hin nítján ára Kolfinna
Kristófersdóttir, sem
hafnaði í öðru sæti í ís-
lensku Ford fyrirsætu-
keppninni í fyrra, lokaði
– eða kom síðust fram
– tískusýningu hönnuð-
arins Marc Jacobs á
tískuvikunni í New York
dögunum. Þetta þykir
mikill heiður að vera
síðasta fyrirsætan af
tískupallinum og gerði
hún það vel í fallegum
svörtum kjól með glans-
andi hatt í stíl. Kolfinna
var eftirsótt af fleirum
en Jacobs, stór tísku-
hús falast eftir kröftum
hennar og var þetta
áberandi á tískuvikunni
í London; eins og House
of Holland, Acne og opn-
aði hún sýninguna hjá
hönnuðnum Christpher
Kane, sem þykir einnig
mikill heiður.
Þrátt fyrir að rúmt
ár sé síðan Kolfinna
hóf feril sinn er ljóst að
hún er að gera eitthvað
rétt og verður gaman
að fylgjast með henni í
framtíðinni.
Candice
Swanepoel
í tísku-
sýningu
Michael
Kors á
dögunum.
1 Kolfinna þann 14. febrúar á tískuvikunni í
New York þar sem hún lokaði sýningunni.
2 Kolfinna sýnir fyrir tískuhúsið House of
Holland þann 18. febrúar í London.
3 Kolfinna opnaði tískusýningu Christopher
Kane þann 20. febrúar.
1 2 3
Tískuvikunni í New York lauk í síðustu
viku en þar sýndu helstu hönnuðir heims
nútímalega tísku fyrir næsta haust. Þar
mátti sjá hvað hönnuðir eru samstíga
þegar kemur að hanna tísku fyrir fram-
tíðina og á tískuvikunni í New York voru
sum „trend“ meira áberandi en önnur.
Kringlótt gleraugu voru áberandi á tísku-
pöllunum vestanhafs og sækja hönnuðir
innblástur til hippatímans. Þrátt fyrir að
gleraugun séu klassísk og töff, ná þau
ekki fótfestu sinni í tískuheiminum ef
marka má tískugagnrýnendur.
Mittisbelti voru einstaklega vinsæl meðal
hönnuða á tískuvikunni, en þessi tíska
var síðast áberandi á tískupöllunum
fyrir fimm árum. Það þykir áhugavert
meðal tískuspekúlanta þegar slíkt kemur
aftur inn, en yfirleitt þarf að bíða eftir
því í nokkra áratugi. Beltin voru í öllum
regnbogans litum en hönnuðurinn Phillip
Lim skar sig úr og notaði eingöngu glær
mittisbelti á sínar fyrirsæturnar.
Tískan á
pöllunum
Glæru beltin vinsælu
hjá hönnuðinum
Phillip Lim.
Ameríski
hönnuðurinn
Anna Sui
með flotta
hönnun.
– Lifið heil
Fyrir þig
í Lyfju
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
82
18
0
1/
12
Spirulina
Sunny Green
Eykur brennslu, þrek og þol.
67%
... kvenna á
höfuðborgar-
svæðinu
lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011
Tískumerkið Betsey
Johnson frumsýnir
hvít og áberandi
gleraugu í New
York.
Svartir leðurhansk-
ar sem dregnir eru
upp á olnboga var
tíð sjón á tískupöll-
unum. Hönnuður-
inn Diane Von Fur-
stenberg er líklega
sá sem notaði
þetta helst, en hún
paraði saman allan
fatnað við svarta,
mismunandi leður-
hanska.
Tískuhúsið Rag & Bone
notaði eingöngu brún
belti.