Fréttatíminn - 06.07.2012, Síða 46
46 matur Helgin 6.-8. júlí 2012
Veitingahús nýtt á gömlum grunni
Naut á grillið
Stundum er stór og djúsí nautasteik
það eina rétta á grillið og þarf
ekkert að ræða það sérstaklega. Í
Kjötbúðinni á Grensásvegi eru allar
þarfir steikarunnandans uppfylltar.
Stór og góð 300-400 gr nauta-
steik, fitusprungin og vel meyrnuð,
helst um 3-4 cm á þykkt, til dæmis
ribeye með beini, entrecode, t-bein
eða framfile.
Gott er að steikin nái stofuhita
fyrir eldun. Kryddið með grófmöl-
uðum svörtum pipar og grófu salti
og berið svo truffluolíu á steikina
eftir eldun. Eldunartími er 4
mínútur á hvorri hlið á mjög heitu
grilli fyrir medium eldun (mikilvægt
er að opna ekki grillið nema þegar
steikinni er snúið við), hvílið steikina
í 5-8 mín áður en hún er borin fram.
Þetta má ekki vera of flókið,
stendur fyrir sínu sem slíkt en
köld grillsósa er ákjósanleg með.
Í hana fer: 1 dós sýrður rjómi, 100
ml matreiðslurjómi, 1 matskeið
hunang, 2 hvítlauksgeirar smátt
saxaðir, smá appelsínuþykkni, salt
og pipar. Hrært saman (má notast á
kartöfluna líka).
Meðlæti, stór bökunarkartafla og
grillað grænmeti eins og zucchini,
paprikur, sveppir, rauðlaukur, sætar
kartöflur.
Geiri í Kjötbúð-
inni með kjöt á
grillið. m aturinn sem boðið er upp á er blanda af japönsk-um- og kantónískum mat.
Bræðurnir Torfi og Hákon Arasyn-
ir, sem eiga og reka staðinn, sækja
hæfileikana í asískri matargerðarlist
ekki langt því þeir ráku ásamt föður
sínum veitingastaðinn Indókína í
um tvo áratugi. Þeir byggja
því á ríkulegri hefð í mat-
reiðslu og veitinga-
húsarekstri og gestir
staðarins fara ekki
varhluta af því. Að
undanförnu hafa
þeir lagt í viða-
miklar endurbæt-
ur á húsnæði sem
áður hýsti meðal
annars Búnaðar-
bankann og veitinga-
staðinn Kaupfélagið.
Eftir að Indókína
lokaði 2007 starfaði
Hákon á Hótel Holti og var einnig í
Kokkalandsliðinu um tíma. Hann er
núna yfirmatreiðslumeistari á nýja
veitingastaðnum og hefur með sér
kokka sem eru sérhæfðir eru í jap-
anskri matargerð.
Fyrrum fastagestir á Indókína
munu kannast við einn
rétt og annan innan
um á fjölbreyttum
matseðlinum á
Buddha Café en
klassísk jap -
önsk matar-
gerð á borð
við sushi bæt-
ist þar við.
Enginn
sem sækir
staðinn ætti að
velkjast í vafa um
að mikill metnað-
ur er lagður í matar-
gerðina. Af seðlinum má
nefna sérlega bragðgóðan og lunga-
mjúkan nautakjötsrétt í sósu nefnd-
an eftir staðnum og þar með Buddha
sjálfum, kjúklingaspjót í yakitori-sósu
og andabringusalati að japönskum
hætti. Allar sósur eru gerðar á staðn-
um frá grunni og kjötið er hægeldað
í fjóra tíma sem gerir það einstaklega
meyrt og gómsætt.
Óhætt er að mæla með þessum nýja
veitingastað sem eykur fjölbreyttn-
ina í ört vaxandi veitingahúsaflóru
Reykjavíkur.
hari@frettatiminn.is
Frábært asískt fusion á Buddha Café
Buddha Café er nýr asískur veitingastaður í hjarta Reykjavíkur,
staðsett að Laugavegi 3 sem er á mótum Skólavörðustígs, Lauga-
vegar og Bankastrætis.
Bræðurnir Torfi og Hákon Arasynir fyrir miðju með úrvalsliði kokka á Buddha Café.
Maturinn er sérlega vel framsettur, mjúkur undir tönn og einstaklega bragðgóður. Salurinn er stór og andrúmsloftið er skemmtileg blanda; asísk áhrif í bland við íslensk.