Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.05.2011, Side 34

Fréttatíminn - 06.05.2011, Side 34
4 viðhald húsa Helgin 6.-8. maí 2011 Smið ju veg i 76 Kópavog i S ími 414 1000 w w w.t eng i . i s Ba ldur snes i 6 Akur ey r i S ími 414 1050 t eng i@ t eng i . i s • Ný glæsileg hönnun • Engin sjáanleg samskeyti • Innbyggður þrýstijafnari • Brunaöryggi • 22 cm sturtuhaus • Vottuð vara MorA í 25 ár á íSlAndi Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá 10 -15 MOra cEra sturtutækI MEð öMMustöNg 42.900,- kr. Godkendelse Þ að má með sanni segja að það hafi orðið mikil umskipti hjá þeim félögum Kristjáni Sveinssyni og Arinbirni Snorrasyni á þessu ári. Um áramótin síðustu stofnuðu þeir fyrirtækið Flísaverk sem hefur vaxið hratt á þessum stutta tíma. Flísaverk sérhæfir sig í endurgerð og upp- setningu baðherbergja frá a til ö, auk þess að sjá um alla alhliða uppsetningu og viðhaldsvinnu við flísalagnir, múrverk, pípulagnir, rafmagnsvinnu og smíðar, svo eitthvað sé nefnt, ásamt því að aðstoða við hönnun og útfærslur. Hjá þeim getur fólk fengið alla þjónustu hvað þetta varðar, allt undir sama hatti. Það þarf því ekki að eltast við iðnaðarmenn- ina, og þá hvern á sínu sviði, út um allan bæ. Þeir hjá Flísaverki sjá um þetta allt saman. „Þegar kreppan skall á fórum við að vinna æ meira saman í smærri viðhaldsverkum sem óx jafnt og þétt og fórum að taka að okkur sífellt fleiri og stærri verkefni. Áður en við vissum af vorum við komnir með í kringum okkur teymi af alls konar fagmönnum og iðnaðarmönnum, hvort sem eru rafvirkjar, smiðir, pípulagningamenn, múrarar og þannig mætti lengi telja,“ segir Kristján. „Það er svo mikil hagræðing í því að taka svona höndum saman og vinna sameiginlega að hinum ýmsu og margbreytilegu verkum. Einnig höfum við byggt upp náið samstarf við verslunar- og þjónustuaðila sem tengjast okkar starfsemi. Þar má nefna fyrir- tæki eins og Tengi, Vídd, Íspan, Ísleif Jónsson, Inn- réttingaþjónustu Bjarnarins, hönnuði og arkitekta. Viðskiptavinir okkar og verkkaupar hafa notið mjög góðs af þessu öllu saman, bæði hvað varðar ódýrari og öruggari þjónustu og svo hagkvæmari kaup á öllum tækjum og búnaði sem þarf til í hvert skipti fyrir sig. Við erum þannig búnir að þegar við tökum að okkur verkefni þá getum við séð um allt. Allt frá niðurrifi til fullnaðarfrágangs, ásamt því að útvega öll hreinlætistæki, flísar, gler, sturtuklefa, nýjar pípulagnir og hvað annað sem þarf til hverju sinni. Við gerum föst tilboð í heildarpakkann þar sem allt er til staðar. Viðskiptavinurinn þarf ekki að hafa áhyggjur af neinu, við sjáum um þetta allt saman,“ segir Kristján. Flísaverk leggur mikla áherslu á að vinna verkin hratt og örugglega, ekkert stopp á milli verkþátta á hvaða sviði sem er, þannig að fólk verður fyrir litlu raski þegar framkvæmdir eiga sér stað. Menn eiga það til að mikla verkefnin of mikið fyrir sér í öllu því sem þarf að gera, en að sama skapi kemur það mönnum á óvart hversu aðgengilegt þetta er fyrir samhentan hópinn sem starfar hjá Flísaverki að leysa verkefnin eins og ekkert sé. Enda vanir menn þar að störfum með breiða yfirsýn og þekkingu. „Það hefur færst í vöxt að menn einblína meira á viðhald og það sem þarf að endurnýja í húsnæði þeirra í stað þess að breyta um húsnæði eða standa í einhverri nýsmíði. Svo er það nú bara þannig að fólk á erfiðara með en áður að selja húsnæðið sitt og tekur frekar þann kost í stöðunni að endnur- nýja, breyta og gera upp. Við gerðum til dæmis upp meira en eitt hundrað baðherbergi á síðasta ári í húsum sem eru á ýmsum aldri og í misjöfnu ástandi. Einnig höfum við komið mikið til hjálpar eldra fólki og hreyfihömluðum, gert aðstæðurnar hjá því aðgengilegri á allan hátt. Breytt því sem þarf að breyta, t.a.m. baðherbergjum, og bætt að- gengi fyrir hjólastóla. Þarna er oft um að ræða fólk sem situr fast í húsnæði sínu og getur ekki selt og breytt um húsnæði sem hentar því. Við höfum get- að hjálpað þessu fólki mikið,“ segir Kristján. „Því má bæta við að við erum einnig mikið í endurnýjun skólplagna, allri almennri múrvinnu innanhúss sem utan, raflögnum, lýsingarhönnun, pallasmíði og allri almennri smíðavinnu.“ Kristján segir að átakið „Allir vinna“ hafi hjálpað mikið til að koma hjólunum af stað og gert fólki auðveldara með að sinna viðhaldi á sínu húsnæði.  Kynning Flísaverk Sérhæfa sig í endurgerð og uppsetningu baðherbergja Frá a til ö. Arinbjörn Snorrason og Kristján Sveinsson, eigendur Flísaverks ehf. Tilboð gert viðskipta- vinum að kostnaðar- lausu.  Viðhald Fagmenn.is Framsækið fyrirtæki iðnaðarmanna Alhliða þjónusta veitt í viðhaldi húsa. F agmenn.is er framsækið fyrir-tæki iðnaðarmanna sem leggur áherslu á að veita viðskiptavin- um sínum alhliða þjónustu við viðhald húsa. Fyrirtækið hefur verið starfrækt um árabil og hefur áratuga reynslu í við- haldi húsa. Fyrirtækið er með iðnaðarmenn í öllum helstu iðngreinum. Hvort sem það eru rafvirkjar, múrarar, málarar, smiðir, píparar eða blikkarar sem vant- ar, leysa Fagmenn málið fyrir viðskipta- vini. Hvort sem verkið er innanhúss eða utan, eða hvort eignin er lítill eða stór geta Fagmenn séð um málið. Fagmenn sjá um smíðavinnu, múr- vinnu, málun og jafnvel hönnun, ef því er að skipta. Þarna er öll þjónusta við viðhald húsa á einum stað. Að sögn Jóhanns A. Einarssonar, framkvæmdastjóra Fagmanna, sparar það töluvert fé og tíma viðskiptavina að hafa alla iðnaðarmenn á sama stað. „Viðskiptavinurinn þarf ekki að leita að iðnaðarmönnum hér og þar og passa að verkið gangi snuðrulaust fyrir sig held- ur sjá Fagmenn um verkið í heild,“ segir Jóhann. „Hjá Fagmönnum vinna allir sem ein heild og verkið tekur styttri tíma fyrir vikið. Við spörum sporin fyrir viðskiptavini með þessum hætti,“ bæt- ir hann við. Það er gríðarlegur kostn- aður og tími sem fer í það að samhæfa störf ólíkra iðnaðarmanna. Með því að skipta við Fagmenn er það vandamál úr sögunni. Fagmenn gera viðskiptavinum til- boð þeim að kostnaðarlausu, það er öll venjuleg tilboð. Þeir gera líka ástands- skoðun á eignum, meta hversu mikil þörf er á viðgerðum og skila skýrslu eftir óskum viðskiptavina. Það getur verið allt frá munnlegri skýrslu til ítar- legar úttektar. Hjá Fagmönum er séð um allt varð- andi viðhald húsa, bæði hið minsta og hið stærsta. Þeir skipta hvort heldur er um vask eða gera við heilu blokkirnar.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.