Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.05.2011, Síða 37

Fréttatíminn - 06.05.2011, Síða 37
viðhald húsa 7 Helgin 6.-8. maí 2011 Akrýllitir 200ml kr. 985,- Akrýllitir 400ml kr. 1.540,- kr. 399,- Olíulitasett 12x12ml, 18x12ml og 24x 12ml Frá kr. 1.245,- Skissubækur Frá kr. 685,- Strigar Frá kr. 195,- Vatnslitasett 12x12ml, 18x12ml og 24x 12ml Frá kr. 1.240,- Þekjulitir Frá kr. 730,-Skissublöð Frá kr. 320,- D V EH F. / J Ó N IN G I Smáratorgi 1 | 201 Kópavogi sími 588 6090 | vl@simnet.is OPNUNARTÍMI Mán.- m. kl. 9 - 18 | fös. kl. 9 - 18:30 | lau. kl. 10 - 18 | sun. kl. 13 - 18 Verkfæralagerinn16 ára kr. 2.370,- Bílabónvél 110W 240mm kr. 4.995,- Gólftjakkur 2,25T Lyftihæð 53,5cm kr. 19.995 Loftpressa 236L 24L kútur 8Bör Kr 26.995,- Vélastandar Þrjár gerðir frá kr. 18.485,- Loftdæla 12V 30L kr. 8.995,- Háþrýsti- þvottatæki kr. 15.750,- Kassabíladekk kr. 2.865,- Verkfæratöskur frá kr. 480,- Sorppokar svartir kr. 2.750,- Hleðslutæki 12V 2-6A kr. 12.995,- Hleðsluborvélar, Frá kr. 3.995,- Ljósahundur, hleðslu 60LED 12/230V Kr. 4.995,- Legubretti Kr. 9.985,- Airbrush-sett Kr. 4.995,- Fyrir hestamanninn, Steðjar 10 Kg Kr. 9.380,- 25 kg Kr. 22.145,- Loftlykill 1/2" m/ 11 toppum Kr. 11.995,- Myndlistarvörur í miklu úrvali Rafmangstalíur 200 - 800 kg Frá kr. 22.995,- Dráttarspil 12V kr. 43.695 Akrýllitir 75ml kr. 480,- Akrýkllitasett 12x12ml, 18x12ml og 24x12ml Frá kr. 1.240,- Akrýl-, Olíulita- og Vatnslitaspjöld Frá kr. 335,- Slípirokkur 500w kr. 2.995,- Bílaþvottakústar kr. 2.995,- Laufsugur 2400W kr. 9.600,- Hekkklippur kr. 7.995,- Höggborvél 500w kr. 2.395,- Glansþvottalögur 1 lítri kr. 815,- Hjólbörur kr. 5.985,- Pökkunarlímband kr. 299,- Hard Wax 500ml kr. 1.550,- Úðabrúsi 5 lítra kr. 2.695,- Klaufhamrar Frá kr. 499,- Keðjusög 2000W kr. 16.995,- Loftmælir Strekkibönd mikið úrval Gólftrönur Country verð frá kr 4,995 eign sé jöfn og að sameiginlegur kostnaður og sameiginleg réttindi skiptist að jöfnu. Þessi regla er forn og hefur einnig stuðning í fjöleign- arhúsalögum. Þessari reglu er beitt í langflestum tilvikum og hún á vel við. Þó kann að vera að gluggaum- búnaður sé afbrigðilegur þannig að sýna megi fram á að önnur skipt- ing eigi betur við. Afar fá dæmi eru um það. Því má ekki gleyma að yfir vötnum svífur sú meginregla að ávalt séu líkur á því að kostnaður í fjöleignarhúsum sé sameiginlegur fremur en sérkostnaður. Þannig að vafatilvik falla yfirleitt undir megin- regluna. Sá sem heldur því fram að meginreglan um jafna skiptingu sé bersýnilega ósanngjörn og eigi illa við verður að sýna fram á það og að önnur en jöfn kostnaðarskipting sé eðlilegri og sanngjarnari. Efniskostnaður að jöfnu en kostnaður við ísetningu er sameiginlegur Vegna grundvallarreglunnar um að ávallt sé líkur séu á því að kostn- aður í fjöleignarhúsi sé sameigin- legur og að sérkostnaður sé undan- tekningin og þeirrar reglu að allt ytra byrði hússins sé sameign og að viðhald á húsi að utan sé sam- eiginlegt og þeirrar reglu að eig- endur eig að vera sem jafnast settir án tillits til þess hvort íbúðin sá á jarðhæð eða á 10. hæð, verður að túlka ákvæði fjöleignarhúsalagana um glugga og kostnað vegna þeirra þannig að það sé fyrst og fremst efniskostnaðurinn, kaupverð glugga(fyrir utan glerið) og annað efni, listar, kítti og þess háttar, sem skiptist að jöfnu. Til sérkostnaðar eigenda telst þannig helmingur efniskostnaðarins. Kostnað vegna ísetningar og annarrar vinnu utan frá og kostnað vegna , vinnupalla, körfubíla og annarra tækja og til- færinga ber yfirleitt að heimfæra undir meginregluna um sameigin- legan kostnað. Vinna og frágangur við glugga inni í íbúðinni myndi falla á eiganda sem sérkostnaður. Eigandi er einnig þátttakandi eftir hlutfallstölu íbúðar í öllum sam- eiginlegum kostnaði. Jöfnuður óháð staðsetningu Ef framangreind túlkun er ekki lögð til grundvallar myndu eigend- ur íbúða á jarðhæð sleppa miklu betur frá gluggaframkvæmdum en þeir sem eiga íbúðir á efri hæðum, bæði við endurnýjun glugga og glers. Fjárhagsleg áhætta eigenda við rúðubrot myndi vera í mjög mis- munandi og í hrópandi misræmi. Íbúðareigandi á jarðhæð þar sem aðgengi er gott væri þá mikið bet- ur settur en gamla konan á 12. hæð þar sem erfitt og kostnaðarsamt er að komast að gluggum og beita verður tilfæringum og tækjum við það. Það mundi myndi halla óhæfilega á síðarnefnda eigandann og vera í hróplegri andstöðu við meginreglur fjöleignarhúsalaga um jafnræði og jafna stöðu eigenda óháð staðasetningu íbúða. Vanræksla á viðhaldi Sá fyrirvari er gerður ef viðhalds- þörf séreignarhluta gluggans stafar af vanrækslu á sameiginlegu viðhaldi hússins. Er talið að það geti í vissum tilvikum leitt til þess að allur kostnaðurinn og afleitt tjón verði talinn sameiginlegur, líka sá hluti sem annars teldist sérkostnaður. Þessi fyrirvari felur í sér undantekningu frá megin- reglu og ber því að setja honum þröngar skorður. Verður að gera ríkar kröfur um sönnun o.fl. svo til álita komi að víkja frá megin- reglunni. Ef breytingar eru gerðar á gluggum, t.d. stækkun, vegna sérstakra óska eða þarfa eigenda, þannig að til kostnaðarauki verður, þá á viðkomandi eigenda að greiða umframkostnaðinn. Glugginn minn og glugginn þinn Það er algengur misskilningur að eigendur telji sig eiga þá glugga sem eru á eignarhluta þeirra og telji þá séreign sína og óviðkomandi öðrum eigendum. Þeir megi hafa sína hentisemi varðandi viðhald og endurnýjun þeirra.. Álitamál rísa þegar ástand glugga er misgott vegna þess að einstakir eigendur hafa einhvern tíman án þess að spyrja kóng eða prest endurnýjað glugga meðan aðrir hafa kannski látið „sína glugga” drabbast niður. Það er einkum í minni og lægri fjölbýlishúsum þar sem gluggar eru innan seilingar sem svona mál koma upp. Eigendum slíkra húsa er nokkuð tamt að líta á glugga íbúða sinna sem sína séreign. Við upp- gjör og skiptingu kostnaðar vegna glugga er talið sanngjarnt innan vissra marka að taka tillit til fyrri viðgerða og endurbóta eigenda á gluggum sinna íbúða. Sanngirnisregla Ef eigandi hefur ráðist slíkt án sam- ráðs við aðra eigendur eða húsfélag- ið þá hefur hann vissulega ráðist í sameiginlega framkvæmd á þess að gæta reglna um sameiginleg ákvarðanatöku og þá er það grund- vallarregla að hann situr uppi með sárt ennið og kostnaðinn. Gagn- vart þessar meginreglu hefur sé regla mótast að þegar eigandi hef- ur endurnýjað sína „glugga” þannig að ekki þurfi að skipta um þá við sameiginlegar gluggaframkvæmdir, þá sé eðlilegra og sanngjarnara að hann njóti þess fremur en aðrir eigendur. Hver sparnaðurinn er fyrir heildina getur verið mjög mis- munandi og verður að meta það í hverju falli. Meðal annars verður að líta til þess hversu vandað var til verka, hversu langur tími er liðinn o.s.frv. Ástæður og aðdragandi slíkrar framkvæmdar og afstaða annarra eigenda á þeim tíma getur haft þýðingu.. Þessi sanngirnisregla á sér stoð í fjöleignarhúsalögunum og Hæstiréttur hefur lagt hana til grundvallar í nýlegum dómi. Sá hluti glugga sem er inni í séreign og gler í gluggum er séreign eig- anda og ytri hluti glugga er í sa- meign. Ljósmynd Hari

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.