Fréttatíminn - 06.05.2011, Qupperneq 45
Reitir fasteignafélag er stærsta þjónustufyrir-
tækið á sviði útleigu atvinnu-húsnæðis á Íslandi.
Reitir hafa yfi r að ráða fjölbreyttu fasteignasafni
sem samanstendur af um 130 fasteignum sem
staðsettar eru víðsvegar um landið.
Nánari upplýsingar veitir
Halldór Jensson
840 2100
halldor@reitir.is
www.reitir.is
Vönduð umgjörð fyrir vinnandi fólk
Glæsilegt skrifstofuhúsnæði
Til leigu glæsilegt skrifstofuhúsnæði í lyftuhúsi, í Lágmúla 9. Um er að
ræða tvær hæðir í húsinu (4. hæð og 6. hæð). Báðar hæðirnar hafa verið
endurnýjaðar að fullu nýlega og eru svipaðar að fermetratali.
Þær eru með eikarinnréttingu og steinteppi á gólfum, framhliðin á
skrifstofunum er glerjuð. Fjórar skrifstofur eru á hvorri hæð, bjartar og
glæsilegar með góðri vinnu- og kaffiaðstöðu – og útsýnið er frábært.
Skrifstofurnar eru lausar til útleigu nú þegar.
TIL LEIGU
Lágmúli 9
108 Reykjavík
Helgin 6.-8. maí 2011
Í fjölbýlishúsum eru tíðir árekstr-ar vegna bílastæða sem eru mörgum mikið hjartans mál.
Bílaleign hefur margfaldast og ekki
bætir úr skák faraldur húsbíla, hjól-
hýsa, tjaldvagna og tjaldhýsa. Til
að bæta gráu ofan á svart eru alls
kyns viðhengi; kerrur fyrir hesta,
snjósleða, fjórhjól og mótorhjól og
báta. Einnig geyma menn vinnubíla
á sameiginlegu bílastæði. Stundum
er um vígatrukka eða aðra stóra
og plássfreka bíla að ræða. Þegar
menn eru frekari á stæði en eðli-
legt getur talist er stutt í deilur og
illindi. Miklar tilfinningar tengjast
bílum og bílatæðum og oft er skegg-
öld og skálmöld á bílastæðum. Bíla-
stæðamál verða gjarnan mjög eld-
fim og harðvítug.
Meginreglur
Þegar gæði eru minni en svo að
allir fái fulla nægju er óhjákvæmi-
legt að setja reglur um afnotaskipt-
ingu. Hvað sameign fjölbýlishúsa
varðar, þ.á m. bílastæði, hefur
löggjafinn í fjöleignarhúsalögun-
um frá 1994 sett meginreglur og
grundvallarsjónarmið sem varða
veginn og leggja grunninn að nán-
ari reglum, sem húsfélög geta sett
sér eftir aðstæðum í hverju húsi og
vilja eigenda. Hafi húsfélag ekki
sett sérstakar reglur um hagnýt-
ingu bílastæða verður að horfa til
óskráðra meginreglna og dómafor-
dæma.
Sameiginleg stæði – einkastæði
Bílastæði eru sameiginleg nema
þinglýstar heimildir kveði á um
annað. Bílastæði eru með tvennu
móti: Sameiginleg sem er megin-
reglan og sérstæði. Eigandi hefur
einkarétt á stæði sínu og öðrum
eigendum ber að virða rétt hans.
Hann hefur þó ekki frjálsar hendur
og honum ber að virða hagsmuni
annarra eigenda og fara að settum
reglum og gæta þess við að valda
öðrum eigendum ekki óþægindum
og ónæði. Réttur eigenda til hagnýt-
ingar óskiptra bílastæða er lögum
samkvæmt jafn og óháður stærð
hlutfallstölu. Allir eigendur hafa
jafnan rétt til bílastæða og sá sem
stærri hlut í húsinu hefur ekki meiri
rétt. Einstökum eigendum verður
ekki veittur aukinn réttur til bíla-
stæða umfram aðra eigendur nema
allir samþykki.
Venjuleg hagnýting
Bílastæði eru, eins og nafnið ber
með sér, fyrir bíla að standa á.
Bílastæði eru ekki ætluð til vera
geymsla fyrir, tæki, tól og drasl.
Fjöleignarhúsalögin segja að
óheimilt sé að nota sameiginlega
lóð til annars en hún er ætluð. Sam-
kvæmt því eru bilastæði helguð bíl-
um í venjulegri notkun. Eiganda er
skylt að taka sanngjarnt og eðlilegt
tillit til annarra eigenda við hagnýt-
ingu bílatæða og fara í hvívetna eftir
lögum, reglum og ákvörðunum hús-
félagsins. Ekkert sem er til lýta og
spillir ásýnd lóðar eða er til vansa
og trafala má vera á lóðinni nema
samkvæmt leyfi stjórnar í skamman
tíma og af sérstökum ástæðum.
Óheimil hagnýting – brottnám
Eigendum er óheimilt að leggja
undir sig sameiginleg. bílastæði.
Eigandi getur ekki eignast sérstak-
an eða aukinn rétt til sameignar á
grundvelli hefðar. Er óheimilt að
geyma á bílastæðum að staðaldri
óskráða bíla, vinnuvélar, tæki, bíl-
hluta, bílhræ, aðra hluti eða lausa-
muni og dót og drasl, sem veldur
sjónmengun, óþrifnaði, slysahættu
og ama. Óheimilt er að hafa nokk-
uð það á stæði eða aðkeyrslu að því
sem valdið getur truflun á umferð
og aðkomu. Óheimilt er að láta
bíla, kerrur og annað standa út fyr-
ir stæðamerkingar og skaga inn á
önnur næstu stæði. Er stjórn eftir
atvikum heimilt að fjarlægja slíka
muni á kostnað viðkomandi ef hann
sinnir ekki áskorun um að gera það
sjálfur. Er mikilvægt fyrir húsfélög
að standa rétt að málum áður en það
grípur til slíka ráðstafana, ella getur
það bakað sér ábyrgð.
Sameiginleg stæði
Setja skal í húsreglum reglur um af-
not sameiginlegra bílastæða. Þær
verða að vera málefnalegar og gæta
veður fyllsta jafnræðis og að ekki sé
raskað eðlilegum og sanngjörnum
forsendum eigenda. Það verður að
túlka með hliðsjón af því að bíla-
stæði séu sameiginleg og óskipt
nema annað segi í þinglýstum heim-
ildum og að þeim verði ekki skipt
nema allir eigendur samþykki. Þar
er átt við formlega eignaskiptingu
en meirihluti eigenda getur sett
reglur um afnot og hagnýtingu á
sameiginlegum bílastæðum og um
afnotaskiptingu þeirra. Slíkar regl-
ur verða að vera sanngjarnar í garð
allra eigenda og gæta verður jafn-
ræðis. Sameiginlegum bílastæðum
verður ekki skipt formlega nema all-
ir sem hlut eiga að máli samþykki.
Einnig þyrfti samþykki borgaryfir-
valda.
Einkastæði
Einkabílastæði byggjast yfirleitt á
þinglýstum heimildum en einnig
geta þau byggist á eðli máls. Svo er
um einkastæði fyrir fram bílskúra
sem teljast séreign viðkomandi bíl-
skúrseiganda. Sama getur átt við
um innkeyrslur að bílskúrum. Þær
eru þó með ýmsu móti og verður að
skoða hvert tilvik til að meta hvort
og í hvaða mæli aðrir eigendur
mega hagnýta sér þær. Í öllu falli
eiga bílskúrseigendur kröfu á því
að bílum sé ekki varanlega lagt í
innkeyrsluna þannig að hindri eða
torveldi aðkomu þeirra að bílskúrn-
um. Aðrir eigendur eiga eðlilegan
umferðar- og aðkomurétt að hús-
inu um slíkar innkeyrslur, t.d. til að
ferma og afferma bíla.
Reglur um einkastæði
Húsfélagið getur sett reglur um
einkastæði. Séu þær málefnalegar
og sanngjarnar og reistar á jafn-
ræðisgrundvell er eigendum skylt
að fara að þeim. Eigendur verða að
hlíta því að þeim séu settar viss-
ar skorður þótt um séreign sé að
ræða. Almennt er óheimilt er að
nota einkastæði til að geyma þar að
staðaldri annað en skráð ökutæki,
s.s. dót og drasl sem er til vansa og
óprýði og/eða veldur sameigendum
óþægindum. En húsfélag hefur vel
að merkja mikið þrengri heimildir
til að setja reglur um einkastæði en
sameiginleg.
BílaR TÍðir áreksTrar vegna bÍlasTæða
Bílastæðabras og þras
Bílaleign hefur margfaldast og ekki bætir úr skák faraldur húsbíla,
hjólhýsa, tjaldvagna og tjaldhýsa.
Setja skal í húsreglum reglur um afnot
sameiginlegra bílastæða.