Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.05.2011, Side 64

Fréttatíminn - 06.05.2011, Side 64
44 grill og matur Helgin 6.-8. maí 2011 Bröns alla laugardaga og sunnudaga Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Sími: 517 4300 | www.geysirbistrobar.is Verð aðeins 1.795 með kaffi eða te F rá þriðjudegi fram á laugardag í næstu viku verða franskir víndagar í Grillinu á Hótel Sögu. Þar verða í boði vín frá mörgum helstu vínhéruðum Frakklands og spennandi nýjungar að auki. Að sögn Guðmundar Bernhards Jóhannssonar, veitingastjóra í Grillinu, var hugmyndin sú að velja áhugaverð vín fyrst og para svo mat við þau. „Við smökkuðum fjölda vína og reyndum að finna vín sem grípa sérkenni hvers héraðs fyrir sig. Svo þegar vínin voru ákveðin fórum við að spá í matinn og hvaða bragð passaði við hvert vín,” segir Guðmundur. Matreiðslumenn Grillsins leystu verkefnið með prýði og settu saman skemmtilegan matseðil sem passar vel við þessi gæðavín. Í fordrykk verður freyðivínið Crémant d’Alsace brut frá Alsace-héraðinu sem er við landamæri Þýskalands. Þar gætir því töluverðra þýskra áhrifa enda svæðið oft verið undir stjórn Þjóðverja. Með fyrri forréttinum, sem samanstendur af þorski, agúrku og dilli, verður boðið upp á óvenjulegt og spenn- andi hvítvín frá vesturhluta Loire-dalsins þar sem not- ast er við þrúguna Melon de Bourgogne. Seinni forrétturinn er blálanga með fenniku og blá- skel sem ætti ekki að svíkja neinn með kraftmiklu Mer- sault-hvítvíni frá Búrgúndí. Það hefur klassískan þokka búrgúndí-hvítvína. Í aðalrétt er nautalund með sellerírót og lauk sem hefur verið pöruð saman við rauðvínið Côte Rôtie „La Mordorée“ sem er gert úr syrah-þrúgunni og kemur frá norðurhluta Rhone-héraðsins. Eftirrétturinn inniheldur skyr, túnsúru og sítrónu og er tónaður við Muscat de Riversaltes sem er styrkt hvítvín frá Roussillion-héraðinu í frönsku Katalóníu. Öll herlegheitin kosta 17.900 kr. á manninn og ættu ekki að svíkja neinn. G rillbúðin er eina sérverslunin fyrir grill og grillvörur á Íslandi. Hún er umboðsaðili fyrir þýska fyrirtækið Landmann sem er stærsti framleiðandi á grillum og garðhús- gögnum í Evrópu. Þar á bæ hafa verið framleidd gasgrill í 50 ár og kolagrill mun lengur. Í Grillbúðinni eru yfir 30 tegundir af gasgrillum og fimm gerðir af kolagrillum. En það er bara það sem til er á lager í Hlíðasmáran- um. Þess utan er hægt að panta það sem hugurinn girnist, beint frá framleiðandanum. Við íslenskar aðstæður er einkum þrennt sem skiptir máli þegar kveikja á upp í gasgrillinu: Fyrst bera að nefna innvolsið. Grillgrindurnar, hitajafnararnir og brennararnir þurfa að vera úr efni sem heldur hitanum inni í grillinu. Pottjárnið er talið besti málmurinn því það kólnar hægt og því helst hitinn vel í grillinu, þrátt fyrir smá íslenskt rok. Svo er það orkan sem fer í að hita allt þetta pott- járn í því misjafna veðri sem óumdeilanlega á eftir að verða hér á Fróni þetta sumarið. Síðast en ekki síst er það ending grillsins. Hún skiptir að sjálfsögðu miklu mál. Postulínsemeleruð lok eða úr ryðfríu stáli halda viðhaldi í skefjum en svo er hægt að fá varahluti í öll grillin og jafnvel fyrir fleiri tegundir.  Grillbúðin Úrval á laGer í Hlíðasmáranum Eina sérverslunin fyrir grill og grillvörur Í Grillbúðinni eru yfir 30 tegundir af gasgrillum og fimm gerðir af kolagrillum. Hægt er að panta það sem hugurinn girnist. Landmann gasgrill. Franskir víndagar í Grillinu

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.