Fréttatíminn - 06.05.2011, Qupperneq 70
50 tíska Helgin 6.-8. maí 2011
Fjölbreytt
New York-klæði
Ég er stödd í stórborginni New York og sumarið er
svo sannarlega komið. Maður skynjar gleðina í fasi
heimamanna sem valhoppa um göturnar, ánægðir
yfir að hafa kvatt veturinn. Ég hef verið hérna í
nokkra daga og er enn að reyna að átta mig á um-
hverfinu. Gjörólíkt því sem ég þekki heima. Lifandi
umhverfi. Borgin sem aldrei sefur.
Í dag þegar ég gekk niður Fifth Avenue fór ég að
hugsa um þennan pistil. Hve sniðugt væri að skrifa
um tísku New York-borgar. Þetta er nú einu
sinni helsta tískuborg veraldar. Fór að horfa
meira í kringum mig og komst að þeirri
niðurstöðu, eftir mikla rannsóknar-
vinnu, að enginn einn stíll ein-
kenndi íbúa borgarinnar. Flestir
sækjast eftir því að vera öðruvísi og er
fjölbreytilegur klæðaburður heldur betur ríkjandi,
ólíkt því sem þekkist heima.
Án þess að gera lítið úr okkar ágæta landi þá
vantar okkur það hugrekki og þor sem aðrir
búa yfir. Við erum öll eins, sækjumst eftir sama
stílnum og sama útlitinu. Kannski er ástæðan
sú hversu fá við erum og okkur finnst það vera
ákveðið öryggi að líta út eins og næsti maður.
En það einkennir okkur. Sami stíllinn. Við
þekkjumst hvar sem er af öðrum Íslendingum. Lif-
andi dæmi um það þegar ég spottaði íslenska fjöl-
skyldu úr langri fjærlægð í dag.
En kannski er óþarft að vera að velta þessu
endalaust fyrir sér. Okkar þjóð
hefur bara þróast í þessa átt
og aðrar þjóðir í hina. Við
getum þá sætt okkur við
það að vera örðuvísi að því
leyti að við erum öll eins. Það er
nú eitthvað.
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir er tuttugu
ára og stundar nám við menntaskólann
Hraðbraut. Með skólanum æfir hún fim-
leika með Gerplu og hlaut gullverðlaun á
Evrópumeistaramótinu í hópfimleikum í
fyrrahaust. Einnig kennir hún fimleikaþrek í
Sporthúsinu og er fimleikaþjálfari í Gerplu.
„Mér finnst skemmtilegt að klæðast
fötum sem eru öðruvísi. Þannig myndi
ég helst lýsa fatastílnum mínum. Ég
panta mest fötin mín af netinu, Urban
Outfitters og eBay. Hérna heima versla ég
helst í Spúútnik, Nostalgíu og Topshop.
Tískublogg finnst mér gaman að skoða
og fæ mikinn innblástur þaðan. Bloggið
hennar Svölu Björgvins finnst mér mjög
áhugavert og skemmtilegt og skoða það
mikið. Olsen-tvíburasysturnar eru líka
alltaf svalar, í flottum og töff fötum,“ segir
Kristjana Sæunn.
Pantar fötin sín helst af netinu
5
dagar
dress
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Þriðjudagur
Skyrta: Nostalgia
Hattur: Nostalgia
Skór: Dr. Martens
Belti: Spúútnik
Stuttbuxur: Falke
Mánudagur
Skór: Dr. Martens
Buxur: Spúútnik
Peysa: Cheap Monday
Eyrnalokkar: Topshop
Miðvikudagur
Skór: Kaupfélagið
Buxur: Topshop
Belti: Spúútnik
Skyrta: Spúútnik
Föstudagur:
Skór: Jeffrey Campbell
Kjóll: Nostalgía
Sokkabuxur: KronKron
Fimmtudagur
Skór: Jeffrey Campbell
Sokkabuxur: Falke
Kjóll: Nostalgía
Peysa: Nostalgía
Hálsmen: Nostalgía
Prada stígvél sem
vekja athygli
Það er eitt við stærstu hönnuði heims,
sama hvað þeir framleiða, það slær alltaf
í gegn. Hins vegar er ein lítil undan-
tekning og það á við um nýju stígvélin
frá Prada, The Mary Jane leather boots.
Þeir eru hluti af vorlínu fyrirtækisins
og gripu tískugagnrýnendur andann
á lofti þegar fyrirsætur sprönguðu um
sýningarpallinn í umtöluðu stígvélunum.
Stígvélin eru tvískipt – líta út fyrir að vera
rauðir hælaskór, með hvítum sokkum upp
að hnjám. Margir héldu að um grín væri
að ræða en svo virðist sem hönnuðum
Prada sé fúlasta alvara og mun þetta
trend því væntanlega slá í gegn á næstu
mánuðum. -kp
Stórveldið Hennes og Mau-
ritz hefur heldur betur náð
að dreifa sér út um allan
heim og eru verslanir þeirra
á finna á hverju götuhorni
í flestum borgum, fyrir
utan Ísland. Við Íslendingar
sækjumst eftir því sem við
höfum ekki aðgang að og
því eru H&M-verslanirnar
í miklu uppáhaldi. Nú hefur
fyrirtækið gefið frá sér enn
eina línuna á árinu og er
það kokteila- og samkvæm-
islína, hentug fyrir sumarið.
Þetta eru síðir kjólar,
samfestingar og
öðruvísi fatnaður en áður
hefur sést hjá fyrirtækinu.
Kjólarnir eru hentugir
fyrir sumarbrúðkaupin,
útskriftirnar eða afmælin
og hefur línan þegar slegið
í gegn í helstu verslunum
H&M á stuttum tíma. Þetta
er ekki dýr lína, frekar en
flest annað sem verslunin
selur, og er algjörlega þess
virði að fjárfesta í. -kp
Ný fatalína frá H&M slær í gegn
Sjónvarpsþáttur fyrir
upprennandi hönnuði
Svo virðist sem frægð
Carine Roitfeld,
fyrrverandi ritstjóra
franska Vogue, hafi
bara risið enn hærra
eftir að hún sagði upp
störfum hjá tímaritinu í
desember síðastliðinn.
Miklar vangaveltur
eru í gangi um hvað
stórmennið muni taka
sér fyrir hendur og eru
ýmsar tilgátur um það.
Fyrir ekki svo löngu
var því lekið á netið
að hún væri að hanna
nýja fatalínu undir sínu
nafni og fylgdu myndir
með sem rökstuddu þá
staðreynd. Nú er það
nýjast að fyrrverandi
ritstýran ætli að fram-
leiða þátt sem eigi að
hjálpa upprennandi
tískuáhugamönnum að
koma sér áfram í tísku-
heiminum. Hún sagði
í nýlegu viðtali að það
væri erfitt að koma sér
áfram í þessum bransa
og krefðist mikils metn-
aðar, ákveðni og áhuga
og því ætlaði hún að
leiðbeina þeim sem
þráðu heitt að koma
sér á framfæri. -kp
Sjónvarpsþáttur fyrir
upprennandi hönnuði
Mikið úrval af
fallegum skóm
og töskum
Gæði &
Glæsileiki
FÁKAFENI 9 - Sími: 553 7060
Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-16
Sérverslun með